Dagblaðið - 23.12.1978, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 23.12.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1978. 5 Uppnám út af tillögu krata um landbúnað og iðnað: KRATAR GAFUST UPP m TILLÖGUFLUTNINGINN Uppnám varð í stjórnarliðinu út af tillögu alþýðuflokksmanna um land- .{júnaðarmál og fleira, sem DB gat um í gær. Eftir harða rimmu drógu al- þýðuflokksmenn tillöguna til baka í nðtt. Tillagan var breytingartillaga við fjárlagafrumvarpið. Hún gekk út á um milljarðs niðurskurð á útflutnings- uppbótum og niðurskurð um rúman hálfan milljarð á öðrum framlögum til hefðbundins landbúnaðar. I staðinn skyldi verja 100 milljónum til eflingar aukinni framleiðni í landbúnaði, 200 milljónum til ábatasamra hliðar- búgreina, svo sem veiðibúskapar, æðarræktar, fiskeldis o. fl. 243,5 milljónum skyldi varið til greiðslu á aðkeyptu vinnuafli vegna orlofs bænda.Meginhluti þess, sem sparaðist,skyldi renna til iðnaðar, 618,4 milljónir til fyrirtækja í iðnaði og 500 milljónir til að bæta sam- keppnisaðstöðu íslenzks iðnaðar sam- kvæmt nánari ákvörðun ráðherra. Þá fylgdi tillögunni grein, um að skattvísitala skyldi hækkuð úr 150 í 151, sem leiddi til lækkunar skatta. Sjálfstæðismenn eru með tillögu um hækkun skattvísitölu úr 150 í 152 en varatillögu um hækkun i 151 stig, ásamt tillögum um niðurskurð ríkisút- gjalda á mörgum sviðum. Fulltrúar Alþýðubandalags og Framsóknar sökuðu alþýðuflokks- menn um svik. ..rýting i bakið” og fleira. Sjálfstæðismenn buðu al- þýðuflokksmönnum að sameinast sér við almennan niðurskurð ríkisút- gjalda og styðja að minnsta kosti hækkun skattvísitölu í 151, það er varatillögu þeirra. Sighvatur Björg- vinsson formaður þingflokks Alþýðuflokksins sagði, að hækkun skattvísitölunnar væri hluti af „pakkanum öllum” um landbúnaðar- málin. Loks drógu kratar tillöguna til baka og sögðu, að hún hefði ekki hljómgrunn. -HH. » Þrír þingmenn Alþýðuflokks: Árni Gunnarsson, Ágúst Einarsson og Finnur Torfi Stcfánsson. DB-mynd Hörður. / Vlða um heim eru börn sem þjást af næringarskorti. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur nú vakið athygli rfkis- stjórnar tslands á yfir 20 þúsund börnum i Zaire sem þannig cr ástatt fyrir og beðið rlkisstjórnina um aðstoð. Hún hefur hins vegar vísað þeirri beiðni til Hiálparstofnunar kirkjunnar. Brauö handa hungruðum heimi: Safnast hafa yfir 10 millj. Utanríkisráðuneytið hefur skrifað Hjálparstofnun kirkjunnar bréf, þar sem farið er fram á að hluta af þeim peningum, sem safnast í landssöfnun Hjálparstofnunarinnar verði varið til kaupa á undanrennudufti og það sent til Zaire. Ríkisstjórninni barst hjálparbeiðni frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna vegna 126 þús. flóttamanna frá Angóla sem nú eru í Zaire. í þessum hópi eru yfir 20 þús. börn, sem hafa mikla þörf fyrir hjálp. Rikisstjórnin hefur eins og áður segir vísað þessari beiðni til Hjálparstofnunar kirkjunnar. Guðmundur Einarsson, fram- kvæmdastjóri Hjálparstofnunarinnar, sagði j samtali við Dagblaðið að fram- kvæmdanefnd Hjálparstofnunarinnar hefði þegar fallizt á að verða við þessari beiðni. Núna væri i athugun hvort um kaup á undanrennudufti hérlendis gæti orðiðaðræða en Barnahjálp SÞ fór fram á að Islendingar sendu 219 lestiraf undanrennuduftinu. Gallinn er sá að undanrennuduft er mikludýrara hér á landi en erlendis. Aðspurður sagði Guðmundur að landssöfnun sú sem nú er farin undir kjörorðinu Brauð hana hungruðum heimi hefði fengið góðan meðbyr. Sagði Guðmundur að nú þegar hefðu safnazt yfir 10 milljónirsem væri töluvert meira en á sania tima í fyrra en þá söfnuðust alls 36 millj. í dag verða söfnunar- bílar frá Hjálparstofnuninni viðs vegar um land og taka á móti söfnunar- baukum. -GAJ- l\íilkcr» skórnir eru komnir—margar gerðir

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.