Dagblaðið - 23.12.1978, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 23.12.1978, Blaðsíða 23
og ég hef lært það, að það er ekki allt jafn nauðsynlegt I jólaundirbúningnum, svoég hef nógan tíma. Áramótaheit? Nei.” Matthías Bjarnason: „Konan mín sér um allt saman” „Ég hugsa að ég eyði því með fjöl- skyldu minni, að minnsta kosti jóladag- ana,” sagði Matthías Bjarnason. „Svo verður nóg hjá manni að gera á milli jóla og nýárs og eftir áramótin hef ég hugsað mér að fara vestur í mitt kjördæmi. Jólaundirbúningur mæðir ekkert á mér, konan min sér fyrir öllu,” sagði Matthías ennfremur. „Enda gæti ég ekk- ert gert. Ég held að það sé bezt að heita engu. Maður er svona heldur svartsýnn um gang þjóðmála á næsta ári, sérstaklega er áberandi hvað gengið er nærri at- vinnuvegunum í landinu. Ég er afar hræddur við það — það getur kostað stórfelldan samdrátt og í kjölfar þess at- vinnuleysi,” sagði Matthías. Steingrímur Hermanns- son. ráöherra: „Smíða með krökkunum niðri í kjallara” „Ég er allavega ákveðinn í því að sleppa pólitíkinni, eyði a.m.k. jóladögun- um með fjölskyldunni,” sagði Steingrim- ur Hermannsson. „Kannski fer ég eitt- hvað að smiða með krökkunum niðri í kjallara. Ja, jú, ég stíg sennilega á stokk og ætla að reyna að gera mitt bezta við það að ná samkomulagi um efnahagsmálin og ná verðbólgunni niður, þegar tekið verður til á ný.” Bragi Sigurjónsson: „Til Akureyrar” „Ég fer heim til Akureyrar og ætla að hafa það ánægjulegt með minni fjöl- skyldu,” sagði Bragi Sigurjónsson. „Áramótaheit strengi ég aldrei. Ég læt hverjum degi nægja sina þjáningu og fyrirheit,” sagði Bragi ennfremur. Magnús H. Magnússon, ráöherra: „Heim í Eyjar” „Ja, yftr jóladagana sjálfa ætla ég nú að fara heim i Eyjar,” sagði Magnús H. Magnússon, félags- og heilbrigðismála- ráðherra. „Ég kem svo hingað i bæinn aftur á þriðja í jólum og ætla þá að verja tímanum til þess að vinna úr því sem safnazt hefur fyrir í ráðuneytunum. Áramótaheit? Nei, ekki nema það að reyna að standa sig eins vel og maður getur.” Ragnhildur Helgadóttír: „Sé um að ekki verði kökulaust” „Við eyðum jólum nú mest heima, en annars heimsækjum við auðvitað ætt- ingja,” sagði Ragnhildur Helgadóttir. „Það hefur nú lítið orðið af bakstri af niinni hálfu. Hins vegar er ég nú orðin svo vön þessum þingönnum fyrir jólin, að einhvern veginn geng ég svo frá mál- um að það verði nú samt ekki kökulaust heima hjá mér á jólunum. í jólamatinn? Jólagraut með möndl- um, en ég er ekki alveg afráðin í hvaða kjöt ég ætla að borða, enda er það ekki aðalatriði á jólunum heldur friðurinn og stcmmningin. Já, ég stíg á stokk og strengi heit um áramót. Ég hugleiði alltaf um áramótin bæði Iiðinn tima og framtiðina. Nei, ég reyki ekki, en það ar alltaf eitthvað í fari manns sem hægt er að bæta.” auðinnaNi PflfR USTINOV ■ JAHf BIRKIN LOIS CHILB • BfTTf DAVIS MIÁfARROW • JONFINCH OLIVIA HUSSfY • I.S.J0HAR GfORGf KfNNfDY ANGfLA LANSBURY SIMON MocCORKINDALf DAVID NIVfN • MÁGGIf SMITH lAfK WARDFN íaalm htérei lllCHAfl OEELiY md IARK1SPSUMCS iamtor,mi ScnMftiy ky BWl NOfUON, B*iWmIWimritaMy'tf CWMcCAU HnrikrCRAflC aifORO PttámOr KKR! U SHEIMM Onttti k* SAM PtCWWAH . [■ ■ y ■■■ Pauvow* Iidwri«(A OatiikitW MMl flaMiA llaÚiJ PATRICIANEAL BRITT EKLAND LYNN CARLIN JEAN-PIERRE CASSEL scottjacoby WILLIAiYI IIOLDEN i ‘LOUKYIL I YTRNA LISI LIONEL JEFFRIES DincMkj ScrtupbjbjRtyuldfet MwdbjirthfLtK Di.tnbuud b, angio|

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.