Dagblaðið - 23.12.1978, Blaðsíða 19

Dagblaðið - 23.12.1978, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1978. 19 Aðventukvöld vom haldin vfða um land fyrr f mánuðinum eins og venja er. Þar byrjar jóla- stemmningin hjá mörgum — eins og þessu fólki í Kópavogskirkju, þar sem aðventukvöld var 10. desember. Við orgelið situr Guðmundur Gilsson, sem lék á orgel. DB-mynd: R. Th. Alþingi var að þar til seint f gœr og hefur ekki f langan tíma setið jafnlengi fyrir jól. Þing- menn verða hvfldinni og hátíðinni fegnir eins og aðrir. Myndin var tekin við afgreiðski fjár- lagafmmvarpsins. Ekki eraðsjáað alþýðuflokksmennirnir geri það með glöðu geðL DB-mynd: Ragnar Th. ágæt kaup og enn fleiri komið, kikt og skoðað. Ungir og aldnir sýna málinu mestan áhuga. DB-mynd: HV. FJÁRLÖG sam- ÞYKKT MED EINU MÓTATKVÆÐI Fjárlagafrumvarpið var samþykkt i gær með 40 atkvæðum gegn einu. 17 sátu hjá og tveir voru fjarstaddir. Albert Guðmundsson (S) greiddi einn atkvæði gegn frumvarpinu. Aðrir sjálfstæðismenn, sem viðstaddir voru, sátu hjá. Sjálfstæðismenn kölluðu það heig- ulshátt þegar alþýðuflokksmenn stóðu að því að fella breytingartillögu þeirra um hækkun skattvísitölu i 151 stig, sem hefði þýtt lækkun skatta og al- þýðuflokksmenn höfðu áður gert til- lögu um. Alþýðuflokksmenn sögðu að tillaga þeirra hefði verið í tengslum við niðurskurð á framlögum til landbún- aðar og stæðist ekki, eftir að þeir komu niðurskurðinum ekki fram. Jóhanna Sigurðardóttir (A) sat þó hjá við atkvæðagreiðslu um þessa tillögu sjálfstæðismanna. Allar aðrar tillögur sjálfstæðis- manna voru felldar með sameinuðu átaki stjórnarliða. Breytingartillögur stjórnarsinna voru flestar samþykktar með sárafáum eða engum mótat- kvæðum. Þegar tillögur sjálfstæðismanna um skattalækkanir höfðu verið felldar drógu þeir flestar tillögur sínar um niðurskurð til baka. Tillaga um 12 milljóna niðurskurðá framlögum til yfirstjórnar forsætis ráðuneytisins, sem talin var mundu þýða endalok á starfi blaðafulltrúa, var þó borin upp og felld með 37 at kvæðum gegn 21. Auk sjálfstæðis manna fékk tillagan stuðning Karls Steinars Guðnasonar (A) og Vilmund- ar Gylfasonar (A) enda voru þeir sjálfir með svipaða tillögu. Af öðrum spennandi atkvæðagreiðslum er sagt annars staðar i blaðinu. -HH Þrír kratar og sjálfstæðismenn gegn hækkun blaðastyrkja Mikil hækkun á styrkjum til rikis- styrktu blaðanna, úr 40 í 60 milljónir, var samþykkt með 37 atkvæðum gegn 23 á Alþingi í gær. Áður hafði verið felld með 36 atkvæðum gegn 21 tillaga frá sjálfstæðismönnum að fella þenn- an styrk niður. Allir sjálfstæðismenn og þrír al- þýðuflokksmenn greiddu atkvæði gegn hækkun styrkjanna. Þessir al- Tillag til NATO: þýðuflokksmenn voru Karl Steinar Guðnason, Ólafur Björnsson og Vil- mundur Gylfason. Allir aðrir stjórnarliðar greiddu at- kvæði með hækkuninni. Tillaga sjálfstæðismanna um lækk- un framlaga til „sérfræðilegrar að- stoðar fyrir þingflokkana” var felld með 39 atkvæðum gegn 20. -HH Gunnlaugur stóð með „kommum” Gunnlaugur Stefánsson (A) stóð með alþýðubandalagsmönnum við at- kvæðagreiðslu um tillögu þeirra um að fella niður tillög til Atlantshafs- bandalagsins á þingi í gær. Tillaga Kjartans Olafssonar (AB) og fleiri um þetta var felld með 43 at- kvæðum gegn 15. Bragi Nielson (A) og Páll Pétursson (F) sátu hjá. -HH Öll erum við félagar í jólaumf erðinni 1 dag Þorláksmessu má búast við mikilli umferð um Iand allt. Umferðar- ráð hvetur til varkárni, umhyggju og tillitssemi í dag sem aðra daga og minnir enn einu sinni á að umferðar- reglur hafa ekki verið settar sjálfrar sin vegna, heldur fyrir okkur öll. Fylgjum því reglum hvort sem við erum gangandi eða akandi i um- ferðinni. Og i tilefni dagsins má benda á, að hver tilfærsla bifreiðar eykur um- ferð og því betra að nota bilastæði sem e.t.v. eru aðeins fjær helztu verzlunar- götum og ganga síðan. Þá vill lögregl- an benda starfsfólki verzlana á, að mjög skynsamlegt sé nú að það teppi ekki sjálft bílastæði við verzlanir heldur skilji bilana eftir heima. Um leið og Umferðarráð óskar landsmönnum öllum hamingjuríkrar jólahátiðar, óskar það þess að þeir komist nú vel búnir leiðar sinnar hvort sem um langar ferðir eða stuttar er að ræða, þvi um hávetur getur veður breyzt á örskömmum tíma. Við erum öll ferðafélagar I um- ferðinni.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.