Dagblaðið - 23.12.1978, Page 24

Dagblaðið - 23.12.1978, Page 24
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 1978. T rúðar kvartmflubrautanna ✓ Um hverja helgi flykkist fólk svo milljónum skiptir út á kvartmilubraut- irnar til að fylgjast með því sem þar fer fram. Þar gefst fólki kostur á að sjá farartæki sem erætlaðaðeinseitt hlut- verk, að fara kvartmíluna á sem stytzt- um tima. Farartæki sem eru hrein listaverk í einfaldleik sínum. Til að ná góðum tíma í kvartmilukeppni verður farartækið að vera létt og kraftmikið enda eru kvartmilubílarnir byggðir með þetta tvennt i huga. Kvartmilu- keppnir eru i rauninni ekkert annað en sýningar þar sem hrá hestöfl og kraftureru til sýnis. Vinsælustu kvartmilubilamir eru grindarbílarnir (Top Fuel) og „spreng- hlægilegu bilarnir” (Funni Cars), en þeir eru kraftmestir og ná mestum hraða. Áhorfendur fylgjast gjarnan vel með því sem gerist á spólsvæðinu enda er jafnan nóg um að vera þar þegar bílarnir eru að hita dekkin fyrir spyrnurnar. Ekki tekst öllum keppendum að komast kvartmiluna á enda þó að stutt sé. Drif brotna hjá sumum og gírkass- ar hjá öðrum. Stundum þola vélarnar ekki álagið og springa. Þeytast for- þjöppurnar þá oft hátt í loft upp með viðeigandi hávaða og látum. Er jafnan veitt sérstök verðlaun fyrir stórfeng- legustu forþjöppusprenginguna á öll- um meiri háttar keppnum og þykir það nokkur heiður að fá þau verðlaun. Stundum eru vélarnar kraftmeiri en gert hafði verið ráð fyrir og lyftast bílarnir þá svo mikið að framan að þeir falla aftur fyrir sig eða ökumaður- inn missir stjórn á honum svo að bíll-. inn veltur. Þrátt fyrir miklar véla- sprengingar og tilþrifamiklar klessur skriða ökumennirnir yfirleitt ómeiddir út úr flökunum. Hljóta þeir í flestum tilvikum einungis smáskrámur en eru alltaf snarringlaðir eftir að hafa kút- velzt með bílnum. Öryggiskröfurnar sem gerðar eru til bílanna eru miðaðar við að allt það versta geti komið fyrir svo að ökumennirnir eru miklu örugg- ari á kvartmilubrautunum heldur en þeir eru í venjulegum bílum á þjóðveg- unum. Ekki taka allir kvartmílukappar þátt í flokkakeppnum. Sumir byggja bíla sina með það fyrir augum að skemmta áhorfendum og mætti kalla þá trúða kvartmílubrautanna. Eru farartæki þeirra hin furðulegustu. Flestir eru þeir með um tvö þúsund hestafla vélar sem þeir hafa komið fyrir í aftursæt- inu, eða öllu heldur þar sem aftursætið er vanalega. Fyrir bragðið eru bílarnir mjög léttir að framan og leika þeir sér að því að keyra brautina endilanga á afturhjólunum. Eldflaugabílar njóta einnig mikilla vinsælda en eins og nafnið gefur til kynna eru þeir með þotuhreyfla í stað venjulegra stimplavéla. Ná þeir gífur- legum hraða og eru einungis fjórar sekúndur að leggja kvartmíluna að baki. Stundum er sprenghlægilegum bíl og eldflaugabíl stillt upp saman til að sýna mismuninn á þessum farartækj- um. Lehgi vel vildu aðrir bílstjórar ekki Usnpa við eldflaugabílana. Ótt- uðust pfir að verða eins og grillaðir kjúklingar þegar afturbrennarinn á eldflaugabilnum væri settur i gang. ÞETTA ER EINMITT BÓKIN BÓKAMIÐSTÖÐIN Laugavegi 29, simi 26050 Einar Logi Einarsson tók saman igtíur (KÆTUMST MEÐAN KOSTUR ÉR) MINNINGAR ÚR MENNTASKDLUM Sére Ótafur Skúbion Asta linndóttir kennari nemi verirfræúingur Asgeiresan ericitekt GAUDEAMUSIGITUR Skólaárin verða flestum minnisstœð þegar árin líða. Menn horfa til baka og rifja upp það tímabil ævinnar sem mörgum hefur reynzt skemmtilegast. Hér eru saman komnar í bók Ijúf ar minningar og umsagnir um skóla og kennara skrifaðar af 18 konum og körlum. Einmitt bók sem allir hafa gaman af að eiga og lesa. — Bók sem allir í skólum landsins þutfa að eignast. — Glœsileg bók — ódýr bók. Fæst í öllum bókaverzlunum. Haiga Sóurþéndóttir

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.