Dagblaðið - 05.02.1979, Side 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1979.
DB á ne ytendamarkaði
Upplýsingaseðlar
um jólamánuðinn:
Hin dýra árstíð
— stærstu fjölskyldurnar
reyndust koma með
hagstæðustu tölurnar
Útgjöld þeirra, sem sendu okkur
upplýsingaseðla fyrir desembermánuð,
reyndust allnokkru hærri heldur en i
næsta mánuði á undan. Það er ofur
skiljanlegt, jafnvel þótt engar verð-
hækkanir hefðu orðið á tímabilinu.
Fólk eyðir gjarnan meiru i jóla-
mánuðinn og lætur þá ýmislegt eftir
sér sem ekki er gert aðra mánuði
ársins. Því miður voru innsendir seðlar
nokkru færri en mánuðina á undan.
Söknum við nokkurra sem áður hafa.
sent okkur upplýsingaseðla. —
Flvetjum við fólk til þess að taka sig
nú á og senda okkur seðla fyrir
janúarmánuð! Seðlar komu frá 27
stöðum á landinu fyrir desember-
mánuð.
Stærstu
fjölskyldurnar
hagstæðastar
Að þessu sinni komu hagstæðustu
kostnaðartölurnar út fyrir stærstu
fjölskyldurnar. Átta manna
fjölskylda var með lægstan meðaltals-
kostnað á mann, eða 21.375 kr„ en
það er ekki marktæk tala því aðeins
ein átta manna fjölskylda sendi inn
seðil. Næsthagstæðust var sjö manna
fjölskyldan með 21.867 kr. á mann en
nokkuð margir seðlar komu frá þeirri
fjölskyldustærð svo sú tala gefur betri
heildarmynd.
Síðan kemur fimm manna
fjölskyldan með 24.695 kr. á mann. Sú
fjölskyldustærð hefur oft áður komið
mjög hagstætt út. Sex manna
fjölskyldan var fjórða í röðinni með
26.075 kr. á mann, þar næst fjögurra
manna með 28.488 kr. Þá kom þriggja
manna fjölskyldan með 28.607 kr. á
mann. Einn seðill var frá einstaklingi,
með 27.843 kr.
Þó nokkur bréf bárust með
upplýsingaseðlunum og þökkum við
fyrir þau. 1 einu var tekið fram að
innsend upphæð væri ekki „raunhæf’
vegna þess að viðkomandi þurfti ekki
að kaupa kjöt, rjóma, niðursoðna á-
vexti eða gos fyrir jólin. — Önnur
fjölskylda hefði fest kaup á 1/4 nauti í
desember og því var hennar upphæð i
hærra lagi. Hins vegar var meðaltals-
útreikningunum lokið þegar sá seðill
barst og því er hann ekki með í
meðaltalinu, aðeins með í úr-
drættinum.
Nú er komið fram í febrúar og allir
auðvitað fyrir löngu búnir að leggja
saman kostnaðinn í janúar. 1 dag
birtum við janúarseðilinn og biðjum
þá sem ætla að vera með að fylla hann
út og senda okkur hið fyrsta. — Við
skulum miða að þvi að seðlamir hafi
borizt blaðinu fyrir miðjan mánuðinn.
-A.Bj.
Vinningurinn í heimilisbókhaldinu: Desemberf jölskyldan fékk úttekt fyrir rúml. 85 þúsund
DREYMDIAÐ HÚN HEFÐIFENGIÐ VINNING! |
!■! Félagsmalastofnun Reykjavikurborgar'
MM________________________________
Starfsfólk
í heimilisþjónustu
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar óskar
að ráða starfsfólk í heimilisþjónustu.
Nánari upplýsingar veittar í Tjarnargötu 11,
sími 18800.
„Þú bara segir ekki? Unnum við?”
sagði Erla Sigurgeirsdóttir himinlif-
andi þegar við færðum henni þau
gleðitíðindi að fjölskylda hennar hefði
hlotið úttektarvinninginn fyrir
desembermánuð. Upphæðin reyndist
85.821 kr. en það er meðalkostnaður í
desembermánuði á þær þriggja manna
fjölskyldur sem sendu inn upplýsinga-
seðla um heimiliskostnað. — Erla er
gift Höskuldi Dungal og eiga þau einn
ungan son. Eru vinningshafarnir
okkar búsettir á Seltjarnarnesi.
Segja má að vinningurinn hafi ekki
komið Erlu algerlega á óvart þvi
nóttina eftir að hún skilaði inn
seðlinum sinum dreymdi hana að hún
ynni úttektina! — Ekki kannaðist hún
þó við að hana dreymdi fyrir daglátum
aðöllu jöfnu.
Við munum fylgjast með Erlu þegar
hún fer i fyrstu verzlunarferðina, eins
og venja er.
Fjölskylda Erlu er sjötta
fjölskyldan sem fær mánaðarúttekt á
vegum Dagblaðsins og Vikunnar.
Verðlaunahafinn er dreginn út
mánaðarlega úr innsendum upp-
lýsingaseðlum þeirra. sem taka þátt
í heimilisbókhaldinu og færa daglega
útgjóld sín á „veggspjaldið góða”. Það
fengu áskrifendur Vikunnar og Dag-
blaðsins sent í sumar. Ef einhver hefur
hug á að byrja á bókhaldinu núna er
hægt að fá sent veggspjald. Hringið til
okkar eða skrifið og við sendum ykkur
veggspjaldið.
-A.Bj.
Lítíð blóm
sem bætir loftið
Þetta litla, laglega blóm er Airbal blómið. Við
það er fest lítil plata, sem unnin er úr ferskum
náttúruefnum. Hreinsar andrúmsloftið, - gefur
góða lykt. Límist á alla slétta fleti.
Tilvalið í snyrti- og bað-
herbergi.
Fæst á bensínstöðvum
Shell, apótekum og í
fjölda verslana.
Heildsölubirgðir:
Smávörudeild. Sími 81722
Olíufélagið
Skeljungur hf
Shell
Upplýsingaseöill
tíl samanburðar á heimiliskostnaði
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlegast sendið okkur þennan svarseðil. Á þann hátt verðið þér virkur þátttakandi i
upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu
af sömu stærð og yðar.
Kostnaöur 1 Jan.mánuöi 1978
Matur og hreinlætisvörur kr----------------------------
Annaö kr.----------------------
Alls kr------------------------
W IfftlY
Fjöldi heiinilisfólks