Dagblaðið - 05.02.1979, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1979.
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
STAÐA KR STERK12. DEILD
EFTIR SIGUR Á ÁRMANNI
KR sigraði Ármann 18-15 í Höllinni
KR vann þýðingarmikinn sigur á Ar-
manni i 2. deild íslandsmótsins i hand-
knattleik á laugardag. Í uppgjörí topp-
liða 2. deildar sigraði KR, 18—15, eftir
að hafa haft yfir l leikhléi, 11—9.
Það var mikil taugaspenna í Höllinni
er topplið 2. deildar mættust. Bæði lið
gerðu sig sek um mistök en viðureignin
var spennandi. KR leiddi lengst af en á
18. mínútu síðari hálfleiks náði Armann
að jafna, 14—14. Þá var Björn Jóhanns-
son, markakóngur 1. deildar i fyrra, að
verki. En KR svaraði með tveimur
mörkum. Simon Unndórsson var að
verki i bæði skiptin 16—14. Björn svar-
aði fyrir Ármann með marki úr viti,
16—15, en enn var Símon á ferðinni,
kom KR í 17—15 og aðeins tvær min-
útur eftir. Þar með innsiglaði hann i
raun sigur KR en síðasta orðið átti
Haukur Ottesen, 18—15.
KR hefur nú sett stefnuna á 1. deild.
Stendur bezt að vígi með 14 stig úr 9
leikjum. En baráttan er hörð og 1 raun
berjast fjögur lið um tvö efstu sætin.
Þór, Eyjum, KR, Ármann og Þór Akur-
eyri. Staða KR er nú bezt eins og fyrir
segir eftir hinn þýðingarmikla sigur í
Höllinni.
íþróttir
Smurbrauðstofan
BJORNINN
NjáBsgötu 49 — Simi 15105
SEKONIC
Ljósmælar
Rnlux
Litsjónvörp
w audio
technica
Pickup
Heyrnartól
M
FISHER
Hljómtæki
OCOSIIMA
Myndavélar
TSiGmfl
Linsur
Astra Music
Útvarpsklukkur
SUnPflK
Flöss
Kvikmyndatöku
Ijós og
Sýningartjöld
MAGNON
Kvikmynda
sýningavélar
HOYfi
Ljósmynda
filterar
Þrífætur
GINO
Ljósmynda
töskur
SPECTRUM
Sjónvarps
leiktæki
MallorY
Rafhlöður
ZENITH
ZORKI — KIEV
MYNDAVÉLAR,
SUPER ZENITH
Sjónaukar
Stjarnan sigraði
Leikni stórt
— og þar með er nánast víst að Leiknir
fellur í3. deild
Stjarnan sigraöi Leikni, 34—21, 1
botnbaráttu 2. deildar á laugardag. Þar
með negldi Stjarnan slðasta naglann 1
kistu Leiknis. Liðið hlýtur nú að falla 1 3.
deild — er áberandi lakasta lið 2. deild-
ar, hefur enn ekki hlotið stig.
Miklar deilur hafa verið innan Leiknis
í vetur og hefur það farið ákaflega illa
með félagið. Handknattleikur er í raun i
rúst í Leikni. Það er synd, því gott starf
var unnið innan deildarinnar. Þrátt fyrir
sigur hefur Stjarnan ekki alveg forðað
sér, því flest bendir til að hún hafni i 7.
sæti 2. deildar og þurfi því að leika við
lið nr. 2 i 3. deild um sæti i 2. deild næsta
keppnistímabil.
Sá orðrómur hefur gengið fjöllunum
hærra að lið Leiknis sé ólöglegt þar sem
einungis piltar úr 2. flokki leika með fé-
laginu í meistaraflokki. Samkvæmt
lögum HSl er þó ekki svo, þar sem ekki
eru sett takmörk fyrir því hve margir
piltar úr 2. flokki megi leika með meist-
araflokksliði.
Dan Ripley setti
heimsmet á stöng
— þrjú heimsmet innanhúss um helgina.
Ripleystökk 5.63
Dan Ripley, USA, setti nýtt heimsmet
I stangarstökki innanhúss á móti I
Edmonton i Alberta, Kanada á laugar-
dag. Stökk 5,63 metra í þriðju tilraun
Eldra metið átti landi hans Mike Pulley,
5,62 metrar. Á sama móti setti Renoldo
Nehemiah, USA, nýtt heimsmet í 50
metra grindahlaupi. Hljóp á 6,36 sek.
Annar varð Foster, USA á 6,56 sek.
Þriðji Bethel, USA, á 6,65 og Thomas
Mumkelt, V-Þýzkalandi, fjórði á 6,67
sek.
Steve Williams, USA, sigraði I 50
metra hlaupi á 5,78 sek. Haisley Craw-
ford, ólympiumeistarinn I 100 m frá
Trinidad, varð annar á 5,80 sek. og
Steve Riddick, USA, þriðji á 5,91 sek.
Eamon Coghlan, trlandi, sigraði i milu-
hlaupi á 3:57,7 sek. sem er kanadiskt
met. I 3000 m sigraði Seuliman Nyan-
bui, Tanzaníu, á 7:51,30 mín. Nick
Rose, Bretlandi, varð annar á 7:58,29
mín.
í Moskvu setti Vera Komisova nýtt
heimsmet innanhúss i 60 metra grinda-
hlaupi kvenna. Vera hljóp á 7,89 og var
hinn öruggi sigurvegari.
SJÓNVARPSBUÐIN
BORGARTÚN118 REYKJAVÍK SÍMI27099
Guðrún setti íslands-
met í kúlu innanhúss
— Guðrún Ingólfsdóttir varpaði 13.47.
Hreinn Halldórsson varpaði 20.08
Stuttgart hélt jöfnu í Hamborg
Bjöm Jóhannsson hefur snúið á Ólaf Lárusson og skorar fvrír Ármann.
sovéskra á EM
Guðrún Ingólfsdóttir Ármanni, setti
nýtt tslandsmet i kúluvarpi á innan-
félagsmóti KR, innanhúss, i gær. Hún
varpaði 13,47 og bætti eigin árangur um
tæpan hálfan annan metra.
1 kúluvarpi karla náði Hreinn Hall-
dórsson lslandsmethafinn, sér vel á strik
og varpaði 20,08 en það er bezti árangur
Hreins með leðurkúlu. Guðni Halldórs-.
son varpaði kúlunni 18,16 metra en það
er annar bezti árangur innanhúss. Þriðji
i kúluvarpinu varð hinn efnilegi Óskar
Reykdalsson en hann varpaði 15,08.
Aðeins þrír leikir voru háðlr 11. deild-
inni i Vestur-Þýzkalandi á laugardag.
Hamburger SV náði ekld nema jafntefli
á heimavelli við efsta Hðið Vfb Stuttgart.
ÚrsHt:
Dortmund—Bochum 2—2
Hamborg—Stuttgart 1—1
Frankfnrt—Bayern 2—1
Staða efstu liða:
Stuttgart 20 11 5 4 35-20 27
Hamborg 18 11 4 3 37-14 26
Yfirburðir
NataUa Linichuk og Gennadi Karpo-
sonsov urðu Evrópumeistarar I para-
keppni I skautadansi. Þau höfðu mikla
yfirburði á Evrópumeistaramótinu i
Zagreb, Júgóslavíu. Bættu þar EM-titl-
inum við heismmeistaratitilinn sem þau
unnu I Ottawa.
Ausantjaldsþjóðirnar höfðu mikla
yfirburði I Zagreb. Keppendur þaðan
röðuðu sér I fimm efstu sætin i para-
keppninni en þau Linichuk og Karpo-
sonsov höfðu yfirburði. Þau hlutu 207,02
stig samanlagt og i frjálsu æfingunum
hlutu þau 5,9 stig af sex mögulegum. í
öðru sæti urðu fyrrverandi heimsmeist-
arar, Moiseyeva og Minenkov er hlutu
201,72 stig. f þriðja sæti urðu siðan
Krisztina Regoczy og Andreas Sallay.
Þessi þrjú pör urðu einnig i þremur efstu
sætunum i Ottawa á HM.
*•
OmarTorfason
íVíking
ísifrðingurinn Ómar Torfason hefur
nú í hyggju að flytja tii Reykjavfkur og
mun hann ætla að leika með 1. deildar-
liði Vikings i sumar. Ómar hefur nú
siðustu árin verið einn af máttarstólpum
liðs tsfirðinga, sem siðastiiðið sumar var
svo nærri að vinna sæti i 1. deild. Ómar
Torfason er ekki eini tsfirðingurinn á
förum til Reykjavtkur. Jón Oddsson
hefur þegar tilkynnt félagaskipti i KR.
Guðrún fngólfsdóttir — Íslandsmet inn-
anhúss.
Kaisersl.
Frankfurt
Bayern
DUsseldorf
18 10 6 2 36-23 26
20 11 3 6 36-26 25
19 8 4 7 36-28 20
18 7 5 6 37-28 19
i v i^iyi íkjí i
K VIKM YN DASKOÐARAR
OG
SÝNINGARVÉLAR
MEÐ OG ÁN TALS