Dagblaðið - 17.05.1979, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1979.
23
BÆJARINS
BEZTU
Stutt kynning á því athyglis-
veröasta sem kvikmyndahús
borgarinnar bjóða upp á
Capricorn One
Leikstjóri: Peter Hyams, gerfl ( Bandaríkjungm 1977.
Sýningarstaður: Regnboginn.
Hugmyndin að baki Capricorn One er nokkuð athyglisverð. Geim-
far er sent til Mars og tilkynnt að 3 geimfarar séu innanborðs þótt
það sé viðs fjarri sannleikanum. Með tæknibrellum og sjónhverf-
ingum tekst að láta þjóðina trúa þessu þangað til forvitinn blaða-
maður kemst í málið. Upp frá þvi tekur myndin á sig meira yfir-
bragð hasarmyndar. Þótt Capricorn One fari hægt af stað tekst
|leikstjóranum að skapa töluverða spennu þegar fer að líða á seinni
hlutann Heildarútkoman verður því þokkaleg afþreyingarmynd
með töluverða alvöru að baki. Leikurinn er ekkert sérstakui en
tæknivinnan mjöggóð á köflum.
Flökkustelpan
Boxcar Bertha, gerfl (Bandarikjunum 1972.
Leikstjóri: Martin Scorsose.
Sýningarstaður: Hafnarfaió.
Það er vel til fundið hjá forráðamönnum Hafnarbíós að endursýna
Flökkustelpuna eftir Martin Scorsese. Kvikmyndaunnendum hefur
nú á stuttu tímabili gefist kostur á að sjá fjórar af myndum Scor-
seses. Boxcar Bertha er önnur mynd hans í fullri lengd. Myndin er
gerð eftir ævisögu Boxcar Berth Thompson sem lifði sitt fegursta á
kreppuárunum. Boxcar Berth þessi ásamt þrem öðrum karlmönn-.
um leiddist út í gripdeildir fyrir hreina tilviljun. Það leið ekki á
löngu þar til þau voru farin að stunda umfangsmikla glæpastarf-
isemi í líkingu við Hróa hött. Stela sem sagt aðeins frá þeim ríku og
'gefa öreigunum. Þessi mynd sver sig i ætt við Mean Street og Taxi-
driver hvað varðar ofbeldið i lokauppgjöri myndarinnar.
Blue Collar
Leikstjóri: Paul Schrader, gerfl í Bandaríkjunum 1978.
Sýningarstaflur: Laugarásbfó.
Þetta er frumraun Paul Schrader sem leikstjóra en hann er þekkt-
astur hér á landi sem handritahöfundurinn að myndinni Taxidriver.
Blue Collar fjallar um 3 félaga sem vinna saman í bilaverksmiðju i
Detroit. Allir eiga þeir við sama vandamálið að glima. Tekjurnar
hrökkva ekki fyrir útgjöldunum. Því grípa þeir til örþrifaráða og
ræna verkalýðsfélag staðarins. En það dregur dilk á eftir sér.
Myndin ræðst harkalcga á forystu verkalýðsfélaganna í Bandarikj-
unum og dregur fram spillinguna bæði þar og meðal vinnufélag-
'anna. í Blue Collar hefur Paul Schrader tekist að samræma sterka
þjóðfélagslega ádeilu og gamansaman tón svo að í heild virkar.
myndin mjög sterk.
Superman
Lfltkstjóri: Richard Donnflr, gerð i Brotiandi 1978.
Sýningarstaður: Háskótabió.
Superman hefur þann vafasama heiður að vera talin ein dýrasta
mynd sem gerð hefur verið enda ber hún greinilega merki þess.
Myndin er ein tæknibrella í gegn og eru sum atriðin ótrúlega vel
unnin. Þar á stóran hlut kvikmyndatökumaðurinn Geoffrey Uns-
worth. Efni myndarinnar er byggt á teiknimyndaseríunni Super-
man, sem sköpuð var 1938 og fjallar um ofurmennið Clark Kent
sem kom til jarðarinnar frá plánetunni Krypton. Þessi Kent hefur
flesta kosti og dyggðir sem fyrirmyndarsonur flestra ætti að hafa.
Þannig má segja að Superman sé draumasonur vísitölufjölskyld-
unnar. Margt frægra leikara kemur fram en Gene Hackman í hlut-
'verki þorparans kemur sterkast út. Einnig fer óþekktur leikari,
Christopher Reeve, mjög vel með hlutverk Superman.
Kvikmyndaþættinum hefur borist fyrirspurn frá Akureyri, þar sem
spurst er fyrir um sovésk-ítalska kvikmyndun á orrustunni við
Waterloo. Þessari kvikmynd var lokið árið 1971, en hún hefur
aldrei verið sýnd hér. Leikstjóri er Sergei Bondachuk, — sá sem
stjórnaði Stríði og friði og meðal leikara var Rod Steiger, sem lék
Napóleon. Kvikmyndin hlaut nokkuðgóða dóma.
Lesendur eru hvattir til að senda kvik-
myndadálki DB línu, hafi þeir áhuga á ein-
hverri vitneskju um kvikmyndir og kvik-
myndaiðnaðinn. Heimilisfangið er: Kyik-
myndir, Dagblaðið, Síðumúla 12, Rvk.
Utvarp
Sjónvarp
LEIKRIT VIKUNNAR - útvarp kl. 20.00:
Gjaldið eftir
Arthur Miller
D
í kvöld verður flutt í útvarpinu leik-
ritið Gjaldið' eftir Arthur Miller.
Þýðinguna gerði Óskar Ingimarsson,
en leikstjóri er Gísli Halldórsson. Með
hlutverkin fara Rúrik Haraldsson,
Herdís Þorvaldsdóttir, Róbert
Arnfinnsson og Valur Gíslason.
Flutningur leiksins tekur túmar 2
klukkustundir.
Viktor Franz er kominn um fimmt-
ugt og hefur verið lögreglumaður í
nærri 30 ár. Konan hans vill að hann
breyti til, en hann er á báðunt áttum.
Nú á að fara að rífa húsið sem þau búa
i og gamall Gyðingur ætlar að reyna að
koma innanstokksmununum í verð.
Þegar allt virðist klappað og klárt
birtist Walter bróðir Victors, en hann
r— ---------------\
VIÐSJ A — útvarp í
kvöld kl. 22.50:
Samskipti
ríkra þjóða
ogfátækra
,,Ég mun fjalla um ráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna um viðskipti og
þróun,” sagði Friðrik Pál! Jónsson
fréttamaður en hann er umsjónar-
maður Víðsjár í útvarpinu í kvöld.
„Ráðstefna þessi stendur núna yfir i
Manilla á Filippseyjum. Hún hófst 7.
maí og henni lýkur l. júní. Á þessari
ráðstefnu, sem er sú fimmta sinnar
tegundar, er einkum fjallað um sam-
skipti ríkra þjóða og fátækra en bilið
milli þeirra hefur ekkert minnkað á
síðari árum. Fátæku þjóðirnar hafa
ásakað hinar ríkari á ýmsan hátt,
meðal annars fyrir að hleypa sér ekki
inn á markaðina,” sagði Friðrik Páll.
-GAJ-
^ *
Útvarp
i
Fimmtudagur
17. maí
12.00 Dagikráin. Tónlcikar. Tilkynningar.
12.20 Fríttir. 12.45 Vcóurfregnir. Tilkynningar.
Vió vinnuna: Tónleikar.
14.30 MiódegLssagan: „Þorp I dögun’’ eftir
Tsjá-sjó'li. Guðmundur Sæmundsson les eigin
þýðingu |8).
15.00 Miódegistónleikar: Halié hljómsveitin
leikur Ljóðræna svitu op. 54 eftír Edvard
Grieg; Sir John Barbirolli stj. / Fllharmonlu-
sveiiin I Ósló leikur Sinfóniu I dmoll eftir
Christian Sinding; Öivin Fjeldsiad stj.
16.00 Frétlir. Tilkynningar. (16.15 Veðuríregn-
ir).
16.20 Tónleikar.
17.20 Laglð mltt: Hclga Þ. Stephensen kynnir
óskalög barna.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvóldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mil. Árni Böðvarsson flytur þátt
inn.
19.40 Islenzkir einsöngvarar og kórar syngja.
20.00 Leikrit: „Gjaldió" eltir Arthur MlDer.
Þýðandi: Öskar Ingimarsson. Leikstjóri: Glsli
Halldórsson Persónur og leikcndur:
Victor.......æ..........Rúrlk Haraldsson
Esiher..............Herdls Þorvaldsdóltir
Gregory...................ValurGíslason
Walter................Róbert Arnflnnsson
22.10 Coneerto grosso Norvegese eftir CMaf
Kielland. Fllharmoniusveitin I Ösló leikur;
höfundurinn sljórnar.
22.30 Veðurfregnir fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.50 Vlósjá: Friðrik Páll Jónsson sér um þátt-
inn.
23.05 Afangar. Umsjónarmenn: Ásmundur
Jónsson og Guðni Rúnar Agnarsson.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
hefur ekki komið í heimsókn í sextán
ár. . .
Arthur Miller er fæddur í New York
árið 1915. Faðir hans var austurrískur
verksmfðjueigandi af Gyðingaættum.
Eftir að hafa stundað nám við Michigan
háskóla og fengizt við sitt af hverju
gerðist hann blaðamaður árið 1938.
Miller tók þátt í síðari heimsstyrjöld-
inni en hefur siðan búið ýmist í Holly-
wood eða New York. Hann sækir stíl
sinn og efnismeðferð mjög til
evrópskra leikritahöfunda, þ.á m.
Ibsens. Þótt Miller taki oftast til með-
ferðar umkomuleysi einstaklingsins i
fjöldanum er trú hans á manninn og
framtið hans einlæg og sterk. Af
mörgum verkum hans má nefna í deigl-
unni, Alla syni mína og Horft af
brúnni, sem öll hafa verið flutt í út-
varpinu. Margir telja þó Sölumaður
deyr eitt áhrifamesta verk hans.
Gjaldið er nú flutt i útvarpinu i fyrsia
sinn, en Þjóðleikhúsið sýndi |
inn 1969—70.
Gísli Halldórsson lcikstjóri.
*vH R||| r|Ol/ Nú er sterka ryksugan
w IVILNOlX ennþá sterkari...
NILFISK
ÍW
SúPER
/r
NYR
SÚPER-MÓTOR;
Áður
óþokktur
sogkraftur.
NÝ SOGSTILLING:
Auðvelt að
tampra kraftinn
NYR
PAPPÍRSPOKI
MEÐ
HRAÐFESTINGU,
ennþá stsarri og þjálli.
NY
SLÖNGUFESTING:
Samboðin nýju
kraftaukandi ‘í-’
keiluslöngunni
NYR VAGN:
Sterkari,
stöðugri,
liprari,
auðlosaður
i stigum.
sogorka í sérflokki
OfantakJar og fleiri nýjungar auka enn hina sigildu verðleika Nilfisk:
efnisgæði, markvisst byggingarlag og afbragðs fylgihluti. Hvert smá-
atriði stuðlar að soggetu i sárflokki, fullkominni orkunýtingu, dæma-
lausri endingu og fyllsta notagildi.
Já, svona er Nilfisk: Vönduð og tæknilega ósvikin, gerð til að vinna
sitt verk fljótt og vel, ár eftir ár, með lágmarks tmfiunum og tilkostn-
aði; varanleg: til lengdar ódýrust.
NILFISK
heimsins bezta ryksuga!
Stór orð, sem reynslan réttlætir.
Afborgunarskilmálar.
Traust þjónusta.
FYRSTAFLOKKSFRÁ
/Fanix
Hátúni — Sími 24420