Dagblaðið - 21.07.1979, Síða 6

Dagblaðið - 21.07.1979, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 1979. Staða rannsóknarmanns hjá Veðurstofu Islands er laus til umsóknar. Æskilegt er, að umsækjendur hafi stúdentspróf eða hliðstæða menntun. Laun samkvæmt launa- kerfi starfsmanna ríkisins. Upplýsingar um starfið gefur deildarstjóri veðurfarsdeildar Veðurstofunnar. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf ásamt meðmælum, ef fyrir hendi eru, sendist samgöngumála- ráðuneytinu fyrir 20. ágúst 1979. Færa- og skemmtibátur 2 tonna súðbyrðingur, 2 ára, til sölu. Smíðaður á Ströndum. Johnson 35 h vél, gengur 10 mílur. Er á vagni. Verð: 2,5 millj. Upplýsingar í síma 32418. Hornafjöróur - stór-Reykjavík Makaskipti. Til sölu nýtt einbýlishús á Höfn í Hornafirði, 155 ferm að stærð, ásamt bílskúrs- grunni, 45 ferm. Húsið er timburhús frá Hús- einingum hf. Siglufirði. Til greina koma skipti á húseign á Reykjavíkursvæðinu. Uppl. í síhia 97—8541. léttu dœlurnar ryðfríu, sjáifvirku vatnsdælurnar nýkomnar. Verð kr. 106.727 BYGGINGAVÖRUVERZLUN ÍSLEIFS JÓNSSONAR HF. BOLHOLTI4 - SÍMI36920 Þorgerður Ingólfsdóttir stjórnaf kór Menntaskólans við Hamrahlið. Hamrahlíðarkórinn tekurþáttí stærsta kóramóti í Evrópu — Kórínn orðinn formlegur meðlimur í sambandi æskukóra í Evrópu Kór Menntaskólans við Hamrahlíð heldur til Sviss á miðvikudag, þar sem kórinn mun taka þátt í stærsta kóra- móti í Evrópu. Mót þetta er haldið á þriggja ára fresti og nefnist Evrópa Cantat. Að sögn Þorgerðar Ingólfsdóttur, stjórnanda kórsins, hafa slík mót verið haldin alls sjö sinnum og tók Hamra- hliðarkórinn einnig þátt i síðasta móti. Áður hafði einn íslenzkur kór tekið þátt í móti þessu, en það var Pólýfón- kórinn. Þorgerður sagði að Hamrahlíðar- kórinn væri nú orðinn formlegur meðlimur í sambandi æskukóra í Evrópu. „Það er mikill heiður fyrir okkur, að vera tekin inn í þetta samband,” sagði Þorgerður. „Þetta er hálfgerð akademia, þar sem ströng inntökuskilyrði gilda.” Hamrahlíðarkórinn kemur fram á þessu stóra kóramóti sem fulltrúi íslands, sem mótið stendur frá 27. júlí til 6. ágúst. Kórar frá öUum löndum V- Evrópu.taka þátt, að undanskildu Irlandi, en auk þess koma þrír kórar tU mótsins frá löndum utan Evrópu, Japan, ísrael og Bandaríkjunum. „Þetta er ekki keppni, heldur sam- vinna,” sagði Þorgerður. „Dagskráin er löng, frá morgni til kvölds og hefst á hverjum degi með morgunsöng allra þátttakenda, en þeir eru um þrjú þúsund talsins. Þátttakendum er síðan skipt í 22 sönghópa, sem vinna saman 5—6 tíma á dag við æfingar stórra kór- verka til flutnings. Valdir kórar halda síðan sérstaka *\ - tónleika og er Hamrahlíðarkórinn meðal þeirra, en hann heldur tónleika með japanska kórnum. Þar eru miklar andstæður og forvitnUegt að fylgjast með. Tónleikarnir verða kvikmyndaðir og einnig teknir upp af þýzka sjónvarpinu.” Hamrahlíðarkórinn kynnir íslenzka tónlist, bæði gamla þjóðlega tónlist og nýrri verk, m.a. sex verk, sem hafa verið samin fyrir kórinn sérstaklega. Eftir kóramótið heldur kórinn í ferðalag um Sviss og verða haldnir tónleikar í boði eins helzta kórstjóra Sviss, Willi Gohl. Kórinn kemur síðan heim 8. ágúst. Hamrahlíðarkórinn heldur tónleika í hátíðarsal MH á morgun, sunnudag og hefjast þeir kl. 20.30. -JH. Bæði stúlkur og piltar eru með I heimssiglingunni. Þessar stúlkur sýndu hæfni sina f gær i Vesturbæjarlauginni. Hinrik Bjarnason, formaður Æskulýðsráðs aðstoðaði. DB-mynd Bj. Bj. Hver vill sigia um heiminn? Valið úr 60 Islendingum íslendingar eru greinilega enn mikUr ævintýramenn sem þiggja gjarnan þaui tækifæri tU forfrömunar sem bjóðast. Þegar tækifæri bauðst til að taka þátt í hluta heimssiglingar sóttu 60 ungmenni um þátttöku. 1 gærkvöldi og í kvöld fór fram prófun á 13 af þeim. f gærkvöldi i Vesturbæjarlauginni og í kvöld í Siglingaklúbbnum í Nauthólsvík. Heimssiglingin, sem nefnist Operation Drake og er í minningu Francis Drake landkönnuðar, fer fram á seglskipinu Eye of the Wind. Hún hófst að hausti til í fyrra og á að taka aUs tvö ár. 200 ungmennum hvaðanæva úr heiminum gefst kostur á að vera með og hefur þegar einn íslendingur siglt með skipinu. Er það Guðjón Amgrímsson blaðamaður á Helgarpóstinum. íslendingarnir sem valdir verða núna munu taka þátt í leiðangrinum í vetur þegar skipið siglir nálægt Austurlöndum fjær. -DS. I. deiíd V 79 LAUGARDALSVÚLLUR SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ KL. 20. (efri) KR - HAUKAR Komið og sjáið skemmtilegan leik.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.