Dagblaðið - 21.07.1979, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 21.07.1979, Blaðsíða 24
í GEGN í SVÍÞJÓÐ Sæmileg grásleppu- vertíðá Ströndum Risnesið lestað fyrsta kisiljárninu frá Grundartanga. Fyrsta kísil- jámið til Þýzkalands Fyrsti farmur kísiljárns frá Járn- blendiverksmiðjunni á Grundartanga er nú á leiðinni til Þýzkalands. Eim- skipafélagið hefur tekið að sér að flytja allt kísiljárn sem framleitt verður á þessu ári og hinu næsta, og verður járnið flutt til Póllands og Bretlands auk Þýzkalands. Skipin taka í baka- leiðinni kol og koks í verksmiðjuna. Skipin Grundarfoss og Rísnes, sem er í leigu hjá Eimskip, munu sjá um flutningana. -DS. Fiskur er nú genginn á grunnmið Strandamanna þrátt fyrir mikinn kulda. Er það allmiklu seinna en í venjulegu árferði. Ámesbúar stunduðu grá- sleppuveiðar í vor og sumar og eru nýbúnir að taka upp grásleppunet sin. Veiðin er sæmileg hjá þeim, sem gátu stundað þær af kappi og sízt minni en í fyrra. Grásleppuveiðitímabilið var fram- lengt hjá Strandamönnum og víðar fram í miðjan júlí vegna íssins í vor. Það bar tii síðustu dagana að 30—40 selir veiddust í netin og hafa verið sel- kjötsveizlur víða hjá Strandamönnum. -ASt/Regína, Gjögri. íslenzki vísnasönghópurinn, Muska Nost-a, sló í gegn á vísna- hátið, er haldin var í Vástervik í Sví- þjoð daj: jiia 9—12. júli sl. í visna- sönghópnum eru Gísli Helgason, Guðmundur Árnason og Hanne Juul. Þessi tónlistarhátíð í Vástervik þykir mesti viðburður á þessu sviði á Norðurlöndum og er haldin ár hvert. Hátiðargestir voru á sjöunda þúsund, cn Vils'ers iV er bær á austurströnd Svíþjóðai Fyrirkomulagið er þannig cjs, ucjðið e, li.egu.siu lonlistarmönn- um Svía, auk þess sem þekktir erlendir gestir sækja hátiðina heim. Þá er á hverju ári nokkrum óþekktum listamönnum gefinn kostur á að koma fram á hátíðinni, tveimur til þremur aðilum hvert kvöld og úr þeim hópi velja áheyr- endur síðan bezta atriði hvers kvölds. Siðasta kvöldið velur síðan dóm- nefnd, sem skipuð er einum fulltrúa úr hópi atvinnulistamanna, einum úr hópi blaðamanna, einum af forsvars- mönnum hátíðarinnar og loks einum úr hópi áhorfenda, þann einstakling eða hóp óþekktra listamanna, sem bezt þykir hafa staðið sig. Þessi heiður féll í ár i skaut Musica Nostra og námu verðlaunin 2000 sænskum kr. Vísnahátíðin og þáttur Musica Nostra hefur vakið töluverða athygli í Svíþjóð og er Musica Nostra þar lofsamlega getið. Eftirsótt er að fá að koma fram á þessari hátið og éerir það hlut íslendinganna enn stærri. -H. Golfklúbburinn Keilir: Tveirfóru holu íhöggi Sveinn Sigurbergsson fór í gær holu í höggi á meistaramóti Golfklúbbsins Keilis á 7. braut á Hvaleyrarholti, sem er 172 metra löng. Daginn áður hafði Sæmundur Knútsson einnig farið holu i höggi á þessari sömu braut. Það er óskadraumur hvers golfleik- ara að fara holu í höggi og heyrir til al- gjörra undantekninga, að slikt gerist tvívegis á einu og sama mótinu og það á sömu brautinni. Eftir annan daginn (36 holur) hafði Júlíus Júliusson forystu í meistaramóti með 158 högg. -GAJ- Islándsk sánggrupp blev suecé pá regnig festíval Helgav-ut:. Gudstundt.' ArnKvoc ocl: Maaneiuul *at df>: úrijí fr-.livalkvailíns siura >!>vfrr»sini8jí, CrKpfotn '^jordr nt roj ekci fint frrtmtritdaxdf <!3r >»» hilázdr tradtiiuiitlfci isládska súxgci pá rtl t <>cH ká<isK>lr))ll t góða veðrínu 1 gær bar það til tfðinda að Tunguvegi 32 I Reykjavík að vatna- skjaldbakan Salka Valka varð léttarí. Þvi miður hafði hún ekki átt samneyti við sterkara kynið og þvf voru eggin hennar, átta að tölu, ófrjó.En Salka Valka fylgdi hefð ættarinnar og gróf eggin meistaralega á grasflötinni heima. 1 hópi þeirra sem sóttu Sölku Völku heim, þegar tfðindin spurðust út, var land- skjaldbakan Jónatan, sem býr I næsta húsi, og yngismærin Lovísa Dagmar, sem lika er nágranni. t hópi gesta voru Ifka blaðamenn DB og það var Árni Páll sem tók þessa mynd af Sölku, Jónatan og Lovísu. GM. ,Þjódnýting" steypustöðva: EÐULEGUR HLUTUR EÐA K0MMAVINDUR? — skiptar skoðanir forsvarsmanna sveitarfélaga um sameiginlegan rekstur sveitarfélaga á steypustöð „Hugmyndir um sameiginlegan rekstur sveitarfélga á steypustöð hafa ekkert komið til kasta borgarstjómar Reykjavíkur og því á engan hátt verið kannaðar gaumgæfilega þar,” sagði Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjómar, í samtali við DB í gaer. Hann sagði aftur á móti að sjálfur hefði hann ávallt talið það vera rétta stefnu, til dæmis þegar Reykjavíkur- borg hóf rekstur malbikunarstöðvar á eigin vegum. Eðlilegt væri að slík þjónustufyrirtæki og fleiri þjónustu- fyrirtæki, sem væru notuð af öllum þorra borgarbúa, væm í eigu sam- félagsins eða borgarbúa allra. Unnið er að könnun hugmynda um opinberan rekstur steypustöðva á vegum Alþýðubandalagsráðherr- anna, Hjörleifs Guttormssonar og Svavars Gestssonar, eins og fram komí DBÍgær. Magnús Erlendsson, forseti bæjarstjórnar Seltjarnamess, var á öndverðri skoðun. „Þetta kemur mér ekki á óvart úr þessari átt,” sagði Magnús þegar rætt var við hann um þessi mál. „Þegar eyðileggingarvindarnir blása úr austri og lénsherrar kommúnista ráða ferðinni, samanber Svavar Gestsson og kompaní. Bæjar- yfirvöld á Seltjamarnesi munu ekki vera til viðtals um þessar hugmyndir. Og fyrstu skóflustungu Sovét-íslands verða þessir herrar að taka á öðrum stað en hjá okkur,” sagði Magnús Erlendsson að lokum. Skúli Sigurgrímsson forseti bæjar- stjómar Kópavogs sagði að hug- myndir um sameiginlegan rekstur sveitarfélaganna á höfuðborgar- svæðinu á steypustöð hefðu ekkert verið ræddar í bæjarstjóm hjá þeim. Sagðist Skúli ekkert vilja segja um þessa hugmynd á þessu stigi. -ÓG. VÍSNASÖNGHÓPURINN MUSICA NOSTRA SLÓ frýálst, óháð dagblað LAUGARDAGUR‘21. JÍJLÍ 1979.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.