Dagblaðið - 15.09.1979, Side 1
rianhlaft
kvöld
Hæfileikarallið:
Undanrás-
um lýkur
annað
—og aukið útflutningsbótaþörf ina um meira en 4 milljarða
5. ÁRG. — LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER1979 — 201. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
Búvöruverðhækkunin sem kemur
til framkvæmda á mánudaginn kann
að valda 8—10% samdrætti i innan-
landssölu búvara. Það myndi svo
aftur leiða til aukins útflutnings bú-
vara og útflutningsbótaþarfar er
nemur a.m.k. 5—6% af heildarverð-
mæti framleiðslunnar.
Þetta er álit Guðmundar Sigþórs-
sonar, deildarstjóra í landbúnaðar-
ráðuneytinu, sem birt er i skýrslu
Þjóðhagsstofnunar um búvöruverð-
lagninguna 1979. Guðmundur telur
ennfremur að verðhækkunin gæti
leitt af sér „mikla töf á greiðslum til
bænda fyrir afurðir og vafasamt að
fullt verð næðist nokkurn tímann,
ekki sízt þegar þess er gætt að enn er
ófundið fé til þess að greiða „um-
frambætur” til bænda vegna út-
flutningsafurða síðasta framleiðslu-
árs.” í krónutölu er aukningin á út-
flutningsbótum vegna aukinnar of-
framleiðslu búvara yfir 4 millj.
króna. -ARH.
Glaumur og gleði ríkir að vanda á
Hótel Sögu annað kvöld, sunnudags-
kvöld, þegar fram fer hæfileikarall
Dagblaðsins og hljómsveitar Birgis
Gunnlaugssonar. Þetta er lokakvöldið i
undanúrslitum en úrslitakeppnin
verður á Sögu sunnudagskvöldið 23.
september. Keppendurnir annað kvöld
eru þau Ester Guðmundsdóttir, sem
syngur einsöng, Elsa Waage, sem
syngur og spilar, og Páll Jóhannesson,
nemandi í Söngskólanum. Páll syngur
einsöng.
Ðansflokkur JSB kemur fram og
sýnir diskódansa. Einnig mun friður
flokkur hársnyrta, með Villa Þór hár-
skera i fararbroddi, mæta og skerða
hár á höfði valinna manna. Þá mun 3—
4 sigurvegarar frá fyrri hæfileika-
keppnum koma fram. Hér er þvi um að
ræða dúndrandi kvöldskemmtun og að
henni lokinni dilla menn sér við tóna-
flóðið frá Birgi t.unnlaugs og félögum.
Drifðu þig strax i siinunn og pantaðu
borð. . .
Um næstu helgi er svo sjálf hæfi-
leikauppskeruhátíðin, lokakeppnin.
Nú þegar er farið að taka við borða-
pöntunum á lokakvöldið. Fyrir kr.
7000 færðu að sjá og heyra blómann úr
hæfileikafólkinu „hæfileika” á allan
mögulegan hátt, auk þess margvisleg
skemmtiatriði og dans, að ógleymdri
tviréttaðri máltíð og drykkjarföngum.
-ARH.
Skokk er mrfcr/ heilsubót
„Sjáið þið stílinn, stúlkur!" — gæti hann
verið að segja, þessi heiðursmaður þar sem
hann skokkar sprettinn sinn einn síðsumar-
daginn á bökkum Vesturbæjarlaugarinnar.
Þær sem misstu af honum þar fá að minnsta
kosti sýnishorn sem margir taka sér til fyrir-
myndar — eða ættu að gera það.
DB-mynd Ragnar.
Rannsókn salmonellu-sjúkdómsins nyrðra stendur enn:
LBTAÐ LOGANDI
UPPRUNA SALMONELLUNNAR
Grunur sagður falla á stórt eggja- og svfnabú
„Sjúkdómur sá er vart hefur orðið
í Akureyrarlæknisumdæmi í sumar,
og rakinn er til salmonellu-bakteríu,
er enn í rannsókn hjá læknayfir-
völdum nyrðra og syðra,” sagði
Ólafur Hergill Oddsson umdæmis-
læknir á Akureyri í viðtali við DB.
„Rannsóknin mun taka 2—3 vikur i
viðbót. Við vonumst að sjálfsögðu til
að fmna hvar orsök sjúkdómsins
liggur en oft er það að hún finnst
eklji þrátt fyrir mikla leit,” sagði
Óláfur Hergill.
Fjórir einstaklingar á Svalbarðs-
strönd hafa verið í nokkurs konar
einangrun vegna þessa sjúkdóms.
Fengu þeir leiðbeiningar frá um-
dæmislækni um hreinlæti. Þeir hafa
að mestu haldið sig heima við en ekki
verið í „innilokun”.
Ólafur Hergill læknir sagði að ekki
væri vitað með vissu um nákvæmlega
þessa tegund salmonellu-sjúkdóms
annars staðar á landinu en i Akureyr-
arumdæmi.
Við erum að sjálfsögðu á vissan
hátt uggandi út af þessum sjúkdónti.
Öll salmonellu-sjúkdómstilfelli fyrri
tíma, sem upp hafa komið á Akur-
eyri eða nágrenni, hefur mátt rekja til
útlanda. í sumar hefur sýkzt af
völdum salmonellubakteríu fólk sem
ekki hefur farið til útlanda. Að þessu
leyti er sjúkdómurinn nýr hér og því
er mikil leit gerð að upptökum
hans,” sagði Ólafur Hergill.
Umdæmislæknirinn aftók með
öllu að ræða um hugsanlegan upp-
hafsstað sjúkdómsins. Grunur og
orðrómur leika á að hugsanlega sé
rætur hans að finna I stóru eggja- og
svinabúi í nágrenni Akureyrar en frá
því fara viðkvæm matvæli vitt og
breitt um Norðurland.
-ASt.
„Svörtskýrsla”umbúvöruhækkunina: . .. . ■■■ ^
GEIUR LErn TIL10% SAM-
DRÁTTAR í BÚVÖRUSÖLUNNI
1