Dagblaðið - 15.09.1979, Page 4
maturinn bragðast betur
Að hægt sé að sjóða mat án vatns
eða steikja án feiti hljómar dálítið
ótrúlega, en það er hægt í sérstökum
svissneskum pottum, AMC, sem
sýndir voru á vörusýningunni í
Laugardalshöllinni. — Þetta eru gull-
fallegir pottar úr spegilfögru gljáandi
stáli með svörtum handföngum. Þeir
eru sérstök svissnesk völundarsmíð,
þannig gerðir, að hægt er að mat-
reiða i þeim án þess að nota vatn eða
fciti. Það er meira að segja hægt að
matreiða margar matartegundir í
santa pottinum án þess að þær taki
bragð hver af annarri. Ekki kunnum
við skil á hvers vegna það er.
Talið er að það spari allt að 40%
rafmagnskostnað að nota þessa
potta. Vegna sérstakra eiginleika
þeirra er rafmagnsnotkun í algjöru
lágmarki. Þegar suðan hefur komið
upp í pottunum er straumurinn lækk-
aður á lægsta stig eða slökkt alveg
undir þeim og allt heldur áfram að
sjóða á fullu.
Allur matur sem eldaður er í þess-
um AMC-pottum bragðast betur en
ella, að sögn þeirra sem þann rnat
hafa smakkað. og það án þess að
nokkru kryddi sé bætt i matinn. T.d.
innihalda bæði kjöt og grænmeti
ýmiss konar náttúrleg sölt, sem vana-
lega fara forgörðum við hefðbundna
eldamennsku og því þarf að bæta
kryddi i matinn. Þessgerist ekki þörf
við AMC-eldamennskuna. Maturinn
heldur sínum upprunalegum söltum
og bragði. Hann er þvi einnig hollari
en matur sem er eldaður á hefðbund-
inn hátt.
Pottar þessir eru yfirleitt ekki
seldir í stykkjatali eða í verzlunum,
heldur aðeins í settum og beint til við-
skiptavinanna, eftir kynningu i
heimahúsum. Svissneska fyrirtækið
Sigurður Hálfdánarson i sýningar- _.
deild sinni á vörusýningunni.
DB-mynd Ragnar Th.
hefur hins vegar gefið leyfi til þess að
pottamir séu seldir stakir og i verzlun
hér á landi. Á pottunum er lífstíðar-
ábyrgð, en stærstu settin (fyrir stóra
og vaxandi fjölskyldu) kosta svipað
og eldavélar.
-A.Bj.
KJUKUNGARETTUR,
1100 KR. A MANN
Á dögunum clduðum við kjúkl-
ingarétt í tilraunaeldhúsi DB. Réttur-
inn er alveg sérlega góður og ætlum
við að gefa lesendum okkar tækifæri
til að reyna h?nn. Það er dálítið mas
við tilbúni gir.n en kostur er ef hann
á að nota.ii i,..r gesti að hægt er að
undirbúa matseldina löngu fyrirfram
án þess að það komi að sök. — Rétt-
urinn er síðan eldaður í ofni og
passar sig sjálfur.
í réttinn fara kjúklingabringur
(eða heill kjúklingur), broccoli eða
brokkál, niðursoðin kjúklingasúpa,'
majones, sýrður rjómi, sítrónusafi,
rifinn ostur og brúnað rasp.
Við keyptum tvo pakka af kjúkl-
ingabringum. j öðrum pakkanum
voru þrjár bringur og fjórar í hinum.
Pakkarnir kostuðu báðir 3250 kr.
Bringurnar eru soðnar og kjötið sið-
an hreinsað af beinunum.
Nokkrar greinar af brokkáli, 4—5
stk. (eða cinn pakki af frosnu káli),
eru soðnar i saltvatni i u.þ.b. 10 mín.
og vatnið síðan látið renna af kálinu.
Kálið og kjúklingakjötið er skorið i
bita og raðað-í eldfast, smurt fat. Þá
cr einurn bolla af majones, einum
bolla af sýrðum rjóma og tveimur
dósum af kjúklingasúpu hrært saman.
Út í það er látin I tsk. af karrý og saf-
inn úr 1/2 sítrónu. Þessu er síðan
hellt yfir kjúklingana og kálið. Ofan á
er látinn rifni osturinn og smjörsteikt
raspið efst. Rétturinn er bakaður i
heitum ofni (200°C) i um það bil 45
min. Gætið þess þó að raspið brenni
ekki.
Þessi réttur stendur alveg fyrir sínu
þótt ekkert sé borið fram með hon-
um, en ekki sakar að hafa með hon-
um hrásalat. Hráefniskostnaðurinn
er nokkru meiri en við eigum að venj-
ast hér á siðunni, eða nálægt 5400 kr.
Þetta nægði vel handa fimm manns
og er þá kostnaður tæplega
1100 kr. á mann. Með ýmsu móti
væri hægt að ná þeim kostnaði niður,
t.d. með því að kaupa kjúklingana i
magnkaupi og fá þannig afslátt, því
það má alveg eins nota heila kjúkl-
inga í réltinn. Brokkálið er hægt að
rækta sjálfur í garðinum og.þá kostar
það ekki nema brot af því sem það
kostar í búð, búntið kostar nálægt
670 kr.
- A.Bj.
Uppskriftdagsins
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlegast sendið okkur þennan svarseðil. Á þann hátt verðið þér virkur þátttakandi í
upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu
af sömu stærð og yðar.
Kostnaður í ágústmánuði 1979.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.
m vik w
Fjöldi heimilisfólks
40% rafmagnsspamaður og
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979.
DB á ne ytendamarkaði
ANNA
BJARNASON.