Dagblaðið - 15.09.1979, Side 24
Ríkisvaldið ræður ekki vift neinar takmarkanir úr þessu:
„Þorskveizla” hjá
f lotanum út áríð
— ársaflinn verður mun meiri en í fyrra—ekkert hægt að gera úr þessu fyrrená næsta árí
Allt utlit er fyrir „þorskveizlu” hjá
flotanum það sem eftir er þessa árs
þar sem aflinn er nú þegar orðinn 286
þúsund tonn, eða um það bil, sem
fiskifræðingar lögðu til sem aigert
hámark og veiðitakmarkanir ríkis-
valdsins voru miðaðar við að ná.
Þær takmarkanir sem útgerðar-
menn féllust á og hafa farið eftir
duga hins vegar hvergi í ljósi þessara
talna. Útgerðarmenn skuldbundu sig
aldrei til að fara ekki fram yfir mark-
ið, færu þeir að takmörkununum.
Sl. mánaðamót var aflinn orðinn
286 þús. tonn á móti 272 þús. á sama
tíma i fyrra en þá varð ársaflinn 320
þús. tonn. Miðað við aflann frá 1.
sept. í fyrra til áramóta verður aflinn
nú miðað við áiíka veiði því 334 þús.
tonn eða 14 þús. tonnum meiri en
heildaraflinn í fyrra. Það er 40 til 50
þús. tonnum meiri afli en fiskifræð-
ingar lögðu til í ár.
Eftir því sem DB hefur kannað
meðal útgerðarmanna er ekki vilji
fyrir frekari takmörkunum og allra
sízt óvæntum þar sem útgerðin er
skipulögð talsvert fram í tímann.
Telja þeir sig hafa staðið við sitt.
Meðal þeirra hugmynda sem
stjórnvöld eru að reifa við útgerðar-
menn nú er m.a. að gefa gott jólafrí á
þorskveiðiflotanum. Einnig er uppi
hugmyndin um að fara á „skrap”
sem er veiöi á öðrum botnfiskum en
þorski. Sá hængur er á þeirri hug-
mynd að nú lítur út fyrir að allar aðr-
ar botnlægar tegundir en þorskur séu
einnig ofveiddar.
Þá er fræðilegur möguleiki á að
skipta afla niður á skip eða byggðar-
lög það sem eftir er ársins. En út-
færsla á því er allsendis óunnin og
hætt er við að „hreppapólitík” koll-
varpi öllum slíkum tillögum.
Þvi munu viðræður stjórnvalda við
útgerðarmenn nú einkum miðast við
skipulagningu slíkra mála í fram-
tiðinni, eða á næsta ári i fyrsta lagi.
Þeir höfðu ekki neinar vöflur á, nokkrir Flugfélagsstarfsmenn i gær, þegar smástund gafst á milli afgreiðslu flugvéla, heldur hífðu einkaskóda eins á loft og framkvæmdu
botnhreinsun, eins og það er kallað á togaramáli. -GS/DB-mynd H.V.
Skódinní
botnhreinsun
400 ÞJODVERJAR A LEIKINN
— milli Vals og Hamburger SV
Þjóðverjar eru knattspyrnuáhuga- tvö hundruð vestur-þýzkir sjóliðar
menn miklir eins og bezt sannast á unn- búnir að panta sér miða. Munu þeir
endum Hamburger SV sem leika á við koma til Reykjavíkur við heimsókn
knattspyrnuliðið Val á miðvikudaginn flota Atlantshafsbandalagsríkjanna.
kemur. Vitað er að hátt i þrjú hundruð Veldi Hamburger-liðsins er mikið.
munu koma beint frá Hamborg til að Það kemur í eigin þotu og með henni
horfa á leikinn og auk þess eru tæplega eitt hundrað og áttatíu manns. Þar af
Úr vinnuplaggi Þjóðhagsstof nunar um búvöruverðið:
Brúttótekjur bænda
5-földuðust á 4 árum
„Hagur bænda hefur undanfarin
ár vænkast örar en almennt i þjóðfé-
laginu. Nefna má að árin 1974
til 1978 hafa meðalbrúttótekjur
bænda að líkindum rösklega fimm-
faldast en meðalbrúttótekjur viðmið-
unarstéttanna hafa ekki alveg náð að
fjórfaldast. Launaliður verðlags-
grundvallar búvöruverðs hefur rétt
tæplega fimmfaldast frá september
1974 til jafnlengdar 1978, en á sama
tima hafa kauptaxtar ASÍ tæplega
fjórfaldast.”
Þessi tilvitnun er úr plaggi sem
Þjóðhagsstofnun vann í samráði við
landbúnaðarráðuneytið og Hagstofu
íslands um haustverðlagningu búvara
í ár. Þar kemur fram að á tímabilinu
1968—1978 er tekjuþróun bænda
gagnvart viðmiðunarhópum óhag-
stæð árið 1976. Öll hin árin er þróun-
in bændum hagstæð. Sérstaklega
hækkuðu tekjur bænda árin 1977 og
1978. Orsakir þess eru taldar þrjár:
Hagstætt árferði og töluverð fram-
leiðsluaukning, tiltölulega mikil sölu-
eru sextán leikmenn, niu fararstjórar
og nærri þrjátíu blaðamenn.
Hamburger-liðið seldi nýlega auglýs-
ingar á búninga liðs síns. Samningar
náðust við BP olíufélagið. Greiðir það
jafnvirði 675 milljóna íslenzkra króna
fyrir auglýsinguna sem þó má aðeins
nota i deildarleikjum í Vestur-Þýzka-
aukning búvöru innanlancs og
hækkun búvaruverðs til bænda.
Sexmannanefndin samdi nú um
16.6% hækkun launaliðar verðlags-
grundvallarins sem er meiri hækkun
en launafólk almennt hefur fengið.
Almennt launafólk fékk sem kunnugt
er 3% grunnkaupshækkun 25. júni
og 9.17% verðbótahækkun I.
september, samtals 12.17%. Launa-
hækkun umfram þetta, sem bændur
fá, er tilkomin vegna viðmiðunar við
járniðnaðarmenn. Þeir munu hafa
landi.
Einn frægasti knattspyrnumaður
heims, Bretinn Kevin Keegan, leikur
með Hamburger SV. Hafa bandarísk
félög meðal annarra boðið honum
stjarnfræðilegar upphæðir fyrir að
ganga til liðs við þau.
-ÓG.
—tekjurviðmið-
unarstétta
náðuekkiað
fjórfaldast
fengið meiri hækkanir en almennt
gerist og koma þær bændum nú til
góða. „Viðmiðun við taxta járniðn-
aðarmanna er athugaverð að þvi
leyti, að helstu rök járniðnaðar-
manna fyrir leiðréttingu á töxtum
sínum og fríðindum hafa verið sam-
jöfnuður við ákvæðisvinnumenn,
sem framleiðsluráðslögin undanskilja
beinlínis sem viðmiðun fyrir breyt-
ingu launaliðarins,” segir i plaggi
Þjóðhagsstofnunar.
-ARH.
frjálst, óháð dagblað
LAUGARPAGUR15. SEPT. 1979.
Framvegis mun Háteigskirkja geta kall-
að nágranna til messugjörðar eins og
aðrar kirkjur. DB-mynd Bj.Bj.
Háteigskirkja
hringir loks
kirkjuklukkum
Klukknahljómur mun í fyrsta skipti
berast frá Háteigskirkju í Reykjavík
upp úr kl. 11 i fyrramálið er fjórum
nýjum klukkum þar verður samhringt
við messu.
Klukkurnar eru frá heimsfrægum
hollenzkum framleiðendum sem einnig
hafa framleitt kirkjuklukkur .fyrir
okkur áður, í Hallgrímskirkju og
Kristskirkju. Framleiðendur, með að-
stoð byggingafélagsins Ármannsfells
og undir stjórn Einars Þorbjörnssonar
verkfræðings, sáu um uppsetningu.
Fyrir 2 árum var tekin ákvörðun um
klukknakaupin í kjölfar fyrirheits um
stuðning kvenfélags kirkjunnar sem
lagt hefur fram 3 milljónir króna.
Þrátt fyrir það myndarlega framlag
er kirkjan nú orðin skuldug vegna
klukknanna þótt safnaðargjöld hafi
runnið beint til kaupanna. -GS
með viðskipta-
tíma bankanna
„Nei, við höfum lítið fengið af bein-
um kvörtunum frá fólki. Hins vegar
hef ég orðið var við mikla óánægju
fólks á vinnustöðum,” sagði Reynir
Ármannsson, formaður Neytendasam-
takanna, er hann var spurður um af-
stöðu fólks ti! hins nýja viðskiptatíma
bankanna og hvort margir hefðu
k vartað vegna hans.
„Fyrir þá sem fá útborgað með ávís-
unum er þessi nýi tími mjög bagalegur.
Ástæðan fyrir því að fólk hefur hins
vegar ekki kvartað mikið held ég sé
fyrst og fremst sú að blöðin hafa verið
stopp. Lesendabréf um svona mál hafa
venjulega verið mjög mörg og hefðu ef-
laust verið það í þessu tilfelli. Fyrr en
fólkið kvartar geta samtökin auðvitað
ekkert gert,” sagði Reynir. - DS
Móttaka smáaug-
lýsinga um helgar
Móttaka á smáauglýsingum um helgar
verður sem hér segir í vetur: Á laugar-
dögum kl. 9 til 14 og á sunnudögum 14
til 22. Síminn er 27022.