Dagblaðið - 05.10.1979, Blaðsíða 1
• r
5. ARG. — FOSTUDAGUR 5. OKTOBER 1979 — 218. TBL.
RÍTSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIDSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
Reykjavíkurborg og ný Landsvirkjun:
„Sjöfn er samþykk samn-
ingum um Landsvirkjun”
—engerdi athugasemdirum viss atriði, segir Björgvin Guðmundsson
„Alþýðuflokkurinn styður breyt-
inguna á Landsvirkjun. Það er i sam-
ræmi við stefnu tlokksins í raforku-
málum og hefur komið fram á
flokksþingum að hafa meginraforku-
vinnslu í landinu á einni hendi,”
sagði Björgvin Guðmundsson,
borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, í við-
taliviðDB.
„Sjöfn Sigurbjörnsdóttir hefur
gert athugasemdir við viss atriði
væntanlegs samnings við Reykja-
víkurborg, en hún er ekki andvíg
honum í heild,” sagði Björgvin.
Hann kvað samninginn sem borgar-
stjórn hefur til meðferðar um útvikk-
un Landsvirkjunar hafa verið sam-
þykktan í borgarmálaráði flokksins.
í samningaviðræðum um hinn nýja
samning lögðu fulltrúar Reykja-
vikurborgar höfuðáherzlu á tvennt,
sagði Björgvin. I fyrsta lagi að um-
ræddar breytingar á Landsvirkjun
leiddu ekki til hækkunar á rafmagns-
verði Reykvíkinga. í öðru lagi að
kostnaði af Kröflu verði ekki velt yfir
á Landsvirkjun. Björgvin kvað hvort
tveggja hafa náðst fram.
„Til að tryggja að ekki yrði raf-
orkuverðshækkun vegna yfirtöku
byggðalínu fengu fulltrúar Reykja-
víkur þvi framgengt að ríkið yfirtæki
það mikið af skuldum línanna að það
nægði til þess að.raforkuverðið héld-
ist óbreytt,” sagði Björgvin.
Hann sagði að varðandi Kröflu
væri ákveðið að hún yrði ekki tekin
inn i hina breyttu Landsvirkjun fyrr
en hún, þ.e. Krafla, væri orðin hag-
kvæmt og traust fyrirtæki fjárhags-
lega. Til þess að setja enn frekari var-
nagla I því efni fékk Alþýðuflokkur-
inn því framgengt, að sögn Björg-
vins, að hún yrði þó ekki yfirtekin
nema samþykki borgarstjórnar
Reykjavíkur kæmi til.
Til þess að fyrirbyggja enn frekar
raforkuverðshækkun greiðir rikið 6,2
milljarða vegna skulda byggðalin-
anna. - BS
Nýr meiríhluti skólanefndar styður Hjálmar:
„Stríðandi öfí
köstuðu mér
ámillisín"
— Hjalmar staðráðinn i að hætta
„Ég held fast við þá ákvörðun mína
að hætta skólastjórn í Grindavík,”
sagði Hjálmar Árnason við DB i
morgun.
„Starfsfriður er ekki fyrir hendi í
skólanum. Því er þetta cina bu-nin.
Mér tókst með hjálp góðra manna að
Ijúka undirbúningi til að skól'astarfið
gæti hafizt. Skólastarfið ætti að geta
gengið snurðulítið fyrir sig þrátt fyrir
allt.
Ég hef verið bolti sem kastað hefur
verið á milli stríðandi afla i Grindavík.
Fyrr eða siðar hlýtur óreyndur maður
að gefast upp í þeirri stöðu.
Nú ætla ég að hvíla mig og lita í
kringum mig eftir annarri vínnu.
Ég óska svo skólanum alls hins bezta
og vona að Grindvíkingar taki betur á
móti næsta manni sem velst þar i
starf.”
Skólanefnd Grindavikur hélt fund í
gærkvöldi.
Niðurstaða hans var sú að mciríhlut-
ínn, 2 fulltrúar Aiþýðubandalags og
fulltrúi Alþýðuflokks, samþykkti að
mælast eindregið til þess við Hjálmar,
að hann sneri aftur til starfa. Málinu
yrði vísað til fræðslustjóra ef Hjálmar
hafnaði erindinu. Fulltrúar Sjálf-
stæðis- og Framsóknarflokks vildu vísa
málinu strax til fræðslustjóra.
í morgun lá fyrir formleg afsögn
Hjálmars hjá Helga Jónassyni fræðslu-
stjóra, að sögn Helga. Ráðherra hafði
þá enn ekki fengið formlega staðfesl-
ingu áákvörðun Hjálmars.
-ARH
Gervigras á aðaileikvanginn í Laugardal?
Nei, nei, nei og aftur nei
— sjáíþróttiríopnu
Landsynningur, útsynningur og landsynningur aftur með viðeigandi
rigningum og hvössum rokum hefur verið á dagskrá veðráttunnar sið-
ustu daga og hefur fólk gripið til ýmissa úrræða tH að skýla sór fyrir
veðrinu, eins og þessi mynd úr Austurstræti i gær ber með sór. I dag
verður hins vegar hlé, a.m.k. um allt vestanvert landið, á meðan land-
synningurinn dregur andann fyrir næsta blástur.
DB-mynd H.V.
Lögbrotálögbrot
ofan
eru daglega framin í
Fríhöfninniá
Keflavíkurflugvelli
ogverðfager
óeðlilega hátt
- sjá kjallaragrein Gísla
Jónssonar prófessors
á bls. 10>11
FOLK
— nýr þáttur í DB ídag:
Þrírstjómendur
þáttarinsívikih
lokinsegjaupp
Guöbergursemur
fyrirbömin
Rættviösigur-
vegaraHæfileika-
keppmnnar
AnnaBjömsog
Graffítif
Laugarásbíói upp
úráramótum
— sjábls.23