Dagblaðið - 05.10.1979, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 05.10.1979, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐiÐ. FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1979. Hárgreiðslustofan DESIREE (Femina) Laugavegi 19 — Sími 12274 OPIÐ FRÁ9-6 LAUGAR DAGA 9-2 LITANIR TÍZKUPERMANENT LAGNINGAR LOKKALÝSINGAR KLIPPINGAR BLÁSTUR NÆRINGARKÚRAR O.FL. Rekstrarstyrkir til sumardvalarheimila í fjárlögum fyrir árið 1979 eru veittar 2,5 millj. kr. til rekstrar sumardvalarheimila og vistheimila fyrir börn úr bæjum og kauptúnum. Styrkir þessir eru einkum ætlaðir félagasamtökum, sem reka barnaheimili af framangreindu tagi. Umsóknir um styrk af fé þessu vegna rekstrarins 1979 skulu sendaf ráðuneytinu, ásamt upplýsingum um tegund heimilis, tölu dvalarbarna og aldur, dvalardaga samtals á árinu miðað við heils dags vist, fjárhæð daggjalda, upplýs- ingar um húsnæði (stærð, búnað og aðra aðstöðu) og upp- lýsingar um starfsfólk (fjölda, aldur, starfsreynslu og menntun). Ennfremur fylgi rekstrarreikningur heimilisins fyrirárið 1979. Sérstök umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, en umsóknir skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir 30. nóvember næstkomandi. Menntamálaráðuneytið, 3. október 1979. Brunahanar Vatnsveita Reykjavíkur vill, að gefnu tilefni, benda á að öll- um öðrum en Slökkviliði Reykjavíkur við skyldustörf og starfsmönnum vatnsveitunnar er stranglega bannað að taka vatn úr brunahönum. Vegna frosthættu hafa brunahanar verið vatnstæmdir fyrir veturinn. Vatnsveitan vill benda á, að hver sá sem nota bi unahana ánleyfis getur orðið vaidur að eignatjóni og skapað margvíslegar hættur. Vatnsveita Reykjavíkur. Cfj TIL BARNA 0G UNGUNGA Ráðgert er að gefa út bók er beri heitið ÍSLENSK BÖRN Á BARNAÁRI, með efni eftir börn og unglinga 16 ára og yngri. Framkvæmdanefnd alþjóðaárs barnsins beinir þeirri ósk til ykkar sem eruð á þessum aldri að senda nefndinni efni, sem lýsi daglegu lífi ykkar og skoðunum á því hvernig er að vera barn á íslandi núna. Ráðgert er að framlag ykkar verði efniviður bókarinnar. Dæmi um efni: Hvernig er heimur ykkar? Hverju munið þið reyna að breyta þegar þið eruð orðin stór og ráðið málum? Við hvað unið þið ykkur best? Hvað leiðist ykkur? Hvað hafið þið gert á barnaárinu? Hvernig er: barnaheimil- ið, skólinn, fjölmiðlar? Hvernig er heima? Hvað gleður ykkur eða hryggir? Hverju reiðist þið helst? Hvernig viljið þið hafa heiminn? Frásagnir ykkar mega vera langar eða stuttar, jafnvel örstuttar og myndskreyttar hjá þeim sem hafa gaman af að teikna. Þær mega vera í formi ritgerðarjjóðs, sögu eða leik- rits, sem þið semjið ein eða fleiri saman. Ef vel tekst til getur bókin orðið öllum sem ráða málum ykkar á einhvern veg, til umhugsunar og hjálpar og jafnvel ykkur sjálfum þegar þið verðið fullorðin og þurfið að taka mikilvægar ákvarðanir sem varða.börn. Sendið efni til framkvæmdanefndar alþjóðaárs barnsins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 24. október 1979, merkt einhverju dulnefni og fæðingarári höfundar, en nafn fylgi með í lokuðu umslagi. Verðlaun verða veitt, þátttak- endur mega gera tillögur um verðlaun. Spilverk þjóOanna bregður sér í gervi fjölskyldunnar, Valda, Línu og Einbjörns, í nýjum sjónvarpsþætti, Bráðabirgðalíf. Nýrsjónvarpsþáttur: BRÁÐABIRGÐALÍF SPILVERKSINS Nýlega er lokið gerð sjónvarpsþáttar með Spilverki þjóðanna. Spilverk þjóð- anna, skipað þeim Valgeiri Guðjóns- syni, Sigrúnu Hjálmtýsdóttur (Diddú) og Sigurði Bjólu, sendtr frá sér plötu nú fyrir jólin sem nefnist Bráðabirgða- líf. Sjónvarpsþáttur þeirra mun bera sama nafn og platan og blandast i honum bæði tónlist af plötunni og lát- bragðsleikur þeirra þremenninga. Textar á Iögum plötunnar fjalla í samhengi um eina fjölskyldu, Valda og Línu og son þeirra Einbjörn. Þau eru nýflutt að vestan í nýtt hverfi í höfuð- borginni. Valdi vinnur á skafara og Lína í pökkunarvinnu. Einbjörn er unglingur eins og gengur og gerist, ósköp venjulegur. í þættinum eru lögin leikin. Þau þrjú — Diddú, Valgeir og Sigurður — bregða sér i gervi fjölskyldunnar. Hluti af þættinum var tekinn upp i stúdiói en einnig var kvikmyndað á Hlemmi, i spilakassa-sjoppum og hér og þar á' götum bæjarins, að sögn Þráins Bertelssonar upptökustjóra. Spilverkið hefur unnið að gerð plöt- unnar síðari hluta sumars, en þau Diddú og Valgeiríeru nú á förum til náms erlendis. Diddú fer til Englands og Valgeir til Noregs. Sigurður mun aftur á móti vera hér heima í vetur. Að- spurður hvort fleira væri að vænta frá Spilverkinu á næstunni, sagði Valgeir: ,,Við höfum ekki hugsað okkur ncitt fleira i bili, látum aðeins hverjum degi nægja sína þjáningu.” Spilverkið gaf út plötu sína, ísland, fyrir ari og Bráðabirgðalíf verður þvi önnur plata þeirra frá þvi að Egill Ólafsson hætti með þeim. Áður hefur einn sjðnvarpsþáttur verið gerður með Spilverkinu aðsögn Valgeirs og var það árið 1975. Búizt er við að þátturinn Bráðabirgðalíf geti birzt á skjánum í nóvember, þá fjörutíu minútna langur. -ELA. Við upptöku ber margs að gæta, ekkert skal úr skorðum. Hér segir Þráinn Bertels- son upptökustjóri þáttarins þeim Valgeiri, Diddú og Sigurði hvað betur megi fara. Haraldur Þorsteinsson, sá er eitt sinn lék með Eik en nú með lirimkio, ser um bassaleik á nýrri plötu Spilverksins. í þættinum fær hann öðrum hnöppum að hneppa, þar bregður hann sér í gervi vinnumanns og smíðar af fullum krafti á vinnupalli. Þau virðast samhent, Valdi, I.ína og Einbjörn. Hér dansa þau hvað bezt þau geta, á inni- og strigaskóm. DB-myndir: Árni Páll.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.