Dagblaðið - 05.10.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1979.
7
Undirbjóða fslendinga
með íslenzkum fiski
— heildarverðmæti af la
útlendinga á íslandsmiðum
álíka mikið og nemur allri
olíuhækkuninni, segir
Auðunn Auðunsson skipstjóri
„Færeyingar undirbjóða nú ís-
lendinga með sölu á ufsaflökum á
þýzkum markaði og þetta ,er sá ufsi
sem þeir veiða á íslandsmiðum.
Þannig launa þeir okkur heimildina
til veiða i íslenzkri landhelgi,” sagði
Auðunn Auðunsson skipstjóri i við-
tali við DB.
,,Það er með ólíkindum að svona
vitleysa gcti gerzt á sama tíma og ís-
lenzk útgerð stendur vart á eigin
fótum vegna gifurlegs kostnaðar-
auka, ekki sízt oliunnar vegna, sem
við kaupum 70% dýrar en nokkur
önnur þjóð samkvæmt upplýsingum
sem áreiðanlegar verða að teljast,”
sagði Auðunn.
Hann kvað islenzk togskip og báta
hafa sýnt afar lélega útkomu að und-
anförnu og mjög margir hefðu ekki
veitt upp i olíukostnað, hvað þá
meira.
Kvikmyndahátíð íReykjavík ífebrúar:
Andrzej Wajda og
Carlos Saura verða
gestir hátíðarinnar
—Beðið eftir svari f rá Bertolucci
,,Ég hygg ég megi segja að undir-
búningur kvikmyndahátiðarinnar sé
á góðum vegi. Við höfum þegar
fengið tvo menn til að koma og heim-
sækja okkur á hátiðina og erum að
biða eftir svari frá þeim þriðja,”
sagði Thor Vilhjálmsson, einn sex-
menninganna sem vinna að undir-
búningi Listahátíðar 1980.
Það eru þcir Andrzei Wajda frá
Póllandi og Spánverjinn Carlos
Saura sem verða sérstakir gestir kvik-
myndahátiðarinnar. Saura lét þó
þann fyrirvara l'ylgja jáyrði sínu að
hann gæti ekki komið ef hann yrði á
kafi í verkefnum á þeinvtima sem há-
tíðin stendur yfir.
Þriðji gesturinn, sem enn er verið
að biða eftir svari frá, er italski leik-
stjórinn Bernardo Bertolucci. Hann
er án efa þekktastur þremenning-
anna, þó ekki væri nema vegna kvik-
myndarinnar Siðasti tangó í Paris.
Thor Vilhjálmsson vildi ekki gefa
neinar upplýsingar um kvikmyndir
þær, sem sýndar yrðu á kvikmynda-
hátíðinni, að öðru leyti en þvi að
hver leikstjóranna myndi hafa með
sér fleiri cn eitt af vcrkum sinum.
„Carlos Saura gaf vilyrði sitt fyrir
þvi að hann myndi hafa með sér nýj-
ustu kvikmynd sína, sem verður þá
frumsýnd hér á landi,” sagði Thor.
„Nú, og ef við fáum Bertolucci i
heimsókn þá neita ég því ekki að við
hyggjum á að sýna kvikmyndina 1900 •
eftir hann.”
Listaháuðarncfnd var innt eftir
hlut íslenzkra kvikmyndagerðar-
manna i kvikmyndaháliðinni.
„Enn sem komið er er allt
óákveðið um með hvaða hætti verði
staðið að sýningum íslcnzkra kvik-
mynda,” svaraði Njörður P. Njarð-
vík, formaður nefndarinnar. „Það er
umdeilt hvort efna cigi til samkeppni
meðal þeirra, en hvernig sem að is-
lenzka hlutanum verður staðið, þá
verður hann alla vega veigamikill
hluti hátiðarinnar.”
Kvikmyndahátið Listahátíðar í
Reykjavik hel'st 2. febrúar og stendur
i tiu daga. Sýningarstaður verður
Regnboginn i Reykjavík. Að sögn
listahátíðarnefndar gefur Regn-
boginn möguleika á allt að 250 sýn-
ingum á þeim tíu döguni sem hátiðin
stcndur yfir. Þcgar kvikmyndahá-
tíðin hefst verður vænlanlcga búið að
opna fimmta sal Regnbogans og mun
hann taka um fjörutíu manns i sæti.
-ÁT.
Landsþing Þroskahjálpar:
Óttast að lög um
opinber framlög
veröi hundsuð
—mótmælir þvíað efnahagsvandi
þjóðarinnar bitni fyrst á öryrkjum
Á nýafstöðnu þingi Þroskahjálpar
kom fram rökstuddur ótti um að hið
opinbera hygðisl skera verulega niður
þann milljarð króna, sem síðasta
Alþingi lögfcsti sem framlag til fram-
kvæmdasjóðs öryrkja og að jafnfjamt
verði ckki staðið við verðlryggingar-
ákvæði.
í framhaldi af þessu vckur þingið
athygli á að enn hafi ekki verið stofnuð
deild sú í félagsmájaráðuneytinu scm
gert er ráð fyrir i nýju lögunum og
skorur á viðkomaiuli >áðhcrraað gcra
það hið l'srsta. Það xcrður ekki l'yrr cn
Fri þinginu. Talifl frá vinslri: Marnrcl Margeirsdóll-
ir, fráfarandi formartur, Davífl Jenssnn rilari, séra
Cunnar Rjörnsson rilari, Sigurfinnur SigurAsson,
forseli þingsins, og Jón Sævar Alfonsson varafor-
maAur i ræAuslól.
að þeirri deild stofnaðri scm unnt
verður að skipa i stjórnarnclnd og
svæðastjórnir skv. lögunum.
Þá leggur þingió áherzlu i að vera
með i ráðum við samningu reglugerða
við hin nýju lög, þar scm framkvæmd
laganna vclli mjög verulega á sliku.
Annars lagnar þingið hinuni nýju
lögum, farið vcrði að þeim.
Aðsögn nýkjörins formanns Þroska-
hjálpar, Eggerls Jóhanncssonar, lýsti
þingið einnig yfir megnri vanþóknun á
skilningsleysi stjórnvalda varðandi
fjárhagsvanda stofnana l'yrir þroska-
hefta, svo sem Skálatúushcimilisions,
sem DBskvrði frá lýrir nokk.ru.
I l'ramhaldi af þ .i skorar þingið á
stjórnsöld að bæla þegar úr því
ófremdarástandi, sem rikt hcfur i
þessum málum, þannig að um stöðn-
un og afturlor i rekstri þcssara stofn-
ana verði ekki að ræða. Loks for-
dæmir þingið ef efnahagsvandi þjóð-
arinnar er látinn bitna fyrst og fremst
á þessum hópi l'ólks og hlýtur að
benda á það ósamræmi sem í þvi fclst
að gera slíkt um leið og ný og bctri
löggjöf í málcfnum þroskaheftra er
aðtakagildi.
„Hér eru þorskveiðibönn vikum
og mánuðum saman á íslenzka flot-.
ann og sóknin i aðra stofna en þorsk
hefur nú þegar náð þvi sem fiski-
fræðingar telja vera hámark. En samt
eru hér flotar annarra þjóða við
veiðar ár eftir ár.
Þjóðverjar fengu fyrir klaufaskap
eins árs lengri veiðitima hér við land
en vera átti. En siðan hefur það gerzt
að flotum Færeyinga og Norðmanna
eru hér heimilaðar veiðar — mcira og
minna eftirlitslausar. Siðast voru það
42 þingmenn sem framlengdu samn-
inga við færevinga þctta árið,” sagði
Auðunn.
„Heildarverðmæti afla útlendu
skipanna, en hann má ætla urn 30
þúsund tonn, er álika mikið og
nemur allri þeirri olíuhækkun sem Is-
lendingar hafa orðið að þola. Og
þetta samþykkir þingmeirihluti á ís-
landi kinnroðalaust,” sagði Auðunn.
Mjög gott verð fæst nú fyrir ýmsar
fisktegundir erlendis, rii.a. þær sem
Norðmenn sækja hingað. Þannig
hafa Norðmenn fengið um 1700
krónur fyrir lúðukilóið við skipshlið.
íslendingur, sem kynnti sér fisk-
verð i London á dögunum, kom til
Harrods i London og sá þar lúðu á
borðum. I smásölu kostaði kilóið 8
pund eða scm næst 7000 krónur.
-A.St.
Tvö hús með íbúnum nrir aiuruou ern nu art risa á Kirkiuhæ.jarklaiMii l*»-m\ ndir Kagnar Th.
Kirkjubæjarklaustur:
Fólksfjölgun hvergi meiri
Unga fólkirt er í miklum mcirihlula á Kirkjubæjarklauslri. Hér er Orri llermanns-
son, 2 ára, ásaml frænku sinni, Kvu Mariu Ólafsdóltur.
„Fólksfjölgunin var hvergi meiri en
hér á síðastliðnu ári, a.m.k. hvergi
meiri á Suðurlandi. Fjölgunin hér nam
20% og nú búa hér um 120 manns,”
sagði séra Sigurjón Einarsson, oddviti
á Kirkjubæjarklaustri, er DB hitti hann
að máli fyrir skömmu.
Á Kirkjubæjarklaustri cr verið að
taka í notkun nýja heilsugæzlustöð unt
þessar mundir likt og í Vik í Mýrdal.
Ýnisir hafa orðið til að gagnrýna
hversu viða heilsugæzlustöðvarnar eru
staðsettar og hal'a bcnl á, að stórar
upphæðir mælti spara mcð því að
smærri byggðarlög, eins og t.d. Vik i
Mýrdal og Kirkjubæjarklaustur, sam-
einuðust um eina heilsugæzlustöð.
Sigurjón var inntur álits á slikum sjón-
armiðum.
„Þessi stöð keniur til með að þjóna
700 manns og hjá menningarþjóðfélög-
um þykir 700—1000 manns hæfilegur
fjöldi fyrir slikar stóðsar.” sagði Sigur-
jón. Hann benti einnig á. að til Vikur
væru 80 km og frá Kirkiubæjarklaustri
væri 200 km vegalcngd t næsta læknt i
austurátt. Þannie nð ef enginn læknir
væri á Kirkiubæjarklausirr. þá \ærn
280 km milli læ-kna a þcssii ssæði. Þá
benli Sigurjón cinnig á. að þarna væri
jafnan mikill fcrðamannastraumur og
oft væru um 1000 manns i Skaftafelli á
sumrin.
Á Kirkjubæjarklaustri cru cinnig að
rísa upp ibúðir fyrir aldraða i tvcimur
húsurn og var flutt i annað þeirra i vor
og hitt er langt komið: Sigurjón sagðist
lelja það miklu varða, að gamla fólkið
þyrfti ekki að flytja úr sinni heimasveit
lil að fara á ellihcimili og með þessum
ibúðum æiti að vera séð til að lil sliks
kæmi ekki.
„Þcssi staður hefur þolið upp á
síðustu 9 árum,” sagði Sigurjón.
„Þegar ég kom hingað fyrir 15 árum
voru ekki ncma 4—5 hús hér. Mciri
parlurinn af fólki hér er ungl l'ólk. og
hér hcl'ur okkur haldizl einslaklega vel
á fólki,” sagði sr. Sigurjón Einarsson.
-GAJ-