Dagblaðið - 17.12.1979, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 17.12.1979, Blaðsíða 1
5. ÁRG. — MÁNUDAGGR 17. DESEMBER 1979. — 280. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVFRIIOI T1 II. \D4! SÍmi Æ Endurskoðunin í Vík: Hefur endurgreitt á sjöttu milljón endur- skoðun lýkur upp úr ára- mótum ,,Við höfum lokið við endur- skoðun reikninga áranna 1975 og 1976 og munum væntanlega skila skýrslu okkar um þá endurskoðun til sýslunefndar fljótlega upp úr ára- mótum,” sagði Matthias Gíslason kaupfélagsstjóri i Vík í Mýrdal og kjörinn endurskoðandi hreppsreikn- inga í málinu, í samtali við DB í morgun um meint óreiðumál fyrrver- andi oddvita í Vík. DB skýrði frá þessu máli i fyrri viku. Samkvæmt þeim upplýsingum sem DB hefur aflað sér hefur odd- vitinn fyrrverandi endurgreitt hrepps- og rikissjóði um 5,5 milljónir króna. Nær fjórar milljónir voru borgaðar til hreppsfélagsins. Þegar núverandi hreppsnefnd tók við i Vík kom i Ijós, að oddvitinn reiknaði sér þóknun af framkvæmdafé vegna umsjónar- starfs síns, með t.d. skólabyggingu. Heimild er í sveitastjórnarlögum fyrir greiðslu slíkrar þóknunar, en ekki um hana samið í þessu tilviki. Hrepps- félagið greiddi einnig sima- og raf- magnsreikninga hans án samþykkis hreppsnefndar, svo og ýmsa einka- reikninga, skv. upplýsingum DB. Einnig hefur komið í Ijós, að rikis- sjóður hefur greitt út olíustyrk til fleiri\heimila en i raun fengu hann. Bókháldsóreiða áranna 1975 og 1976 er talsveYð og hefur það m.a. tafið endurskoðtinina. Evrir árið 1975 vantar i bókhald um tiunda hluta fylgiskjala, sjóðbók, viðskipta- mannabók og fleira. Reikningar sem þurft hafa sérstaka athugun lutfa skotið upp 'kollinum. -ÓV. : ■ r r Þœr eru glaðlegar ú svip afgreiðslustulkurnar í Tollpóststofunni þrátt fyrir miklar annir. Jólahúfurnar voru komnar upp snemma í morgun, enda styttist nú hiðin eftir hátlðinni. Sjálfsagt eiga þó margir pakkar eftir að fara í gegnum hendur stúlknanna áður en aðfangadagur rís. DB-mynd Bjarnleifur. Geirfinnsmálið: Enn beðið mikilvægra gagna gæzluvarðhald fanganna hefur varað samfleytt í fjögur ár Hinn 19. desember rennur út gæzluvarðhald samkvæmt úrskurði yfir sakborningum i Geirfinnsmáli og Guðmundarmáli, sem svo hafa verið nefnd. Hinn 19. nóvember 1974 hvarf Geirfinnur Einarsson verkamaður sporlaust í Keflavík þar sem hann bjó. Hæstarétti hefur borizt meginþátt- ur sakargagna, samtals um 25 bindi skjala, og er þó ekki alveg allt talið. Meðal gagna, sem hafa úrslitaþýð- ingu og enn hafa ekki borizt, er skýrsla læknaráðs og mat á sakhæfi sakborninga. Mun sú skýrsla þó full- unnin eftir þvi sem næst verður kom- izt. Þar sem enn hefur ekki verið ákveðinn flutningsdagur þessara mála fyrir Hæstarétti, verður að framlengja gæzlu sakborninga með úrskurði. Ekkert liggur fyrir um við- brögð sakborninga við slíkum úr- skurðum. Samráðs verður að líkind- um leitað við aðila málanna, ríkisak- sóknara og verjendur, um lokastig á meðferð þeirra fyrir dómstólum ekki síðar en á morgun. - BS MUNIÐ AÐ SKILA INN SEDLUM í JÓLAGETRAUN DB — skilafrestur til 21. des. RAUNIR VID KAUP Á ELDHÚSINNRÉTTINGU — sjá neytendasíður bls. 6—7 Guðmundur H. Garðarsson gerir upp reikningana ..Þetta er uppgjör við ákveðna innri þróun i Sjálfstæðisflokknum, sem ég tel stefna i neikvæða álf," miðað við þá þýðingu sent flokkurinn á að hafa í stjórnmálum," sagði Guðmundur H. Garðarsson, fyrr- verandi alþingismaður og formaðtir Verzlunarmannafélags Keykjavikur. í viðtali við DB í gær. Guðnumdur gerir upp rcikningana við stcfnu flokksins, sem hann telur hafa þróa/t í þröngan íhaldsflokk, i harðri grein i Morgunblaðinu i gær. ,,Ég vil láta á það rcyna innan Sjálfstæðisflokksins, hvort hann nái ekki aftur sinni fyrri stöðu 1 isienzkum stjórnmálum, að vera ílokkur, þar sem fólk scrn aðhyllist frjálslyndis- og ihaldsstefnu, geti sameinazt,” sagði Guðmundur. Sjá frétt á bls. 9. -IHI. Leitin að Ö-bíln- um enn árangurslaus Ein umfangsntesta léit sem gerð hefur verið að bil og manni hefur cnn engan árangur borið. Síðan á miðvikudagskvöld að Magnús Gunnarsson frá Keflavik hvarf á bil iinum, Ö-5803, í Mosfellsveit hefttr íkkert til hans spurzt. Búiðcraðkafa -neð hafnarmannvirkjum i sjö •löfnum á SV-kjálka landsins. Tví- vegis hafa allar götur og húsaport í Reykjavik verið kembd. Tvær flug- vélar hafa flogiðmeðan hiarl cr siðan hvarfið átti sér stað.leit.tðlu fttr riði sumarbústaðalöndum og viðar — en allt án árangurs. Leitinn* er fram haldið í dag úr lofti og á láði. -A.St. DAGARTILJÓLA 1 i 4 I 1 j \ \ 4 Á

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.