Dagblaðið - 17.12.1979, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 17.12.1979, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 1979. „Þetta var a/veg frábært” — verkleg æfing við vínsmökkun ,,Þetta var alveg frábært,” sagði einn gestanna i hinni „verklegu æfingu” við prófun átta léttvínsteg- unda á Loftleiðahótelinu á laugardags- kvöldið. ,,Allir drukku að minnsta kosti átta tegundir af vini og enginn var drukkinn, ekki einu sinni hreifur af vini,” sagði annar gestur og bætti þvi við að hann hefði hiklaust ekið bil sínuni heim ef hann hefði verið á honum. Eins og til stóð voru ,,æfingar” undir stjórn Jónasar Kristjánssonar rit- stjóra. Býr hann yfir miklum fróðleik og þekkingu um efnið og „andann”. Þeir sem þarna voru nutu þess að skyggnast dálítið inn fyrir tjaldið sem hylur skipulega alla umræðu og þess vegna fróðleik um góð vín og vond. Þeir ræddu það á eftir sín á milli að slik kvöld þyrfti að endurtaka þegar fleira fólk hel'ði betri tíma frá önnum dagsins. -BS. Svrinn R. Kyjólfsson framkvæmdastjðri virðist sannfærður um að vfnið sé tært. Jónas Kristjánsson ritstjóri gefur holl ráð við vinsmökkunina. Við hlið hans situr Helgi Pétursson ritstjóri Vikunnar, sem kynnti. Bjóðum upp á eftt mesta úrval af antík- og rókókó húsgögnum héríendis, og úr blómabúð: Aðventukransa, leiðiskrossar, greinar, jólarós, alparós, skreytingar o. fí Kkki vantar glasafjöldann, enda smökkuðu menn átta tegundir. Þeir ræða um gæðin Pétur Guðjónsson og Sveinn R. Kyjólfsson. DB-myndir Ragnar Th. Árni Bergmann Miðvikudagar Moskvu Um aldabil var Rússland vesturlanda- búum mikil ráðgáta. Þetta breyttist ekki með stofnun Sovét- rikjanna 1917. Fjölmargar bækur hafa verið ritaðar um sögu Sovétrikjanna, en við fullyrðum að engin þeirra likist þessari bók. Hún opnar okkur nýjan heim og er dýrmætur fengur þeim, sem vill öðlast skilning á þessari leyndardómsfullu þjóð. Bók Árna er i senn uppgjör hans við staðnað þjóðskipulag og ástaróður til þeirrar þjóðar sem við það býr. Mál og menning l|S|l

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.