Dagblaðið - 17.12.1979, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 17.12.1979, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 1979. 11 Kveikt á jólatrénu á Austurvelli í gær: Jólasveinar mættu með tvöfalt lið Jólasveinar virðast koma óvenju fjölmennir af fjöllum í ár enda í mörg horn að líta. Ekki færri en átján þeirra voru mættir á þaki Köku- hússins við Austurvöll um klukkan fjögur i gærdag þar sem þeir skemmtu miklum fjölda barna sem þangað voru mætt þrátt fyrir að kalt væri i veðri og hráslagalegt. í Hafnarfirði voru jólasveinar einnig fjölmennir við félagsheimilið Hraunvang og ekki virtust börnin skemmta sér síður þar. Það virtist því heldur lítið samræmi í hlutunum þegar jólasvein- arnir hófu upp raust sína og sungu Jólasveinar einn og átta jafn fjöl- mennirog þeirvoru. Áður en jólasveinarnir hófu skemmtun sína við Austurvöll hafði verið kveikt á jólatrénu, sem er gjöf Oslóarbúa til Reykvíkinga Anne Marie Lorentsen, sendiherra Noregs á íslandi afhenti tréð og í ræðu sinni lagði hún meðal annars áherzlu á að norrænt samstarf væri annað og meira en ræðuflutningur við hátíðleg tækifæri. Sigurjón Pétursson, forseti borgarstjórnar, veitti trénu viðtöku fyrir hönd Reykvíkinga og þakkaði gjöfitta. Þá lék Lúðrasveit Reykjavíkur undir stjórn Eyjólfs Melsted og jóla- sálmar voru sungnir. Dagskrá þessi tók talsvert langan tíma og voru Jólasveinninn Þvörusleikir var dálftið feiminn og hélt sig i hæfilegri fjarlægð frá hinum jólasveinunum. mörg barnanna orðin blá af kulda með sitt tvöfalda lið. En kuldinn vafalausl hafa allir haldið glaðir þegar jólasveinarnir loksins mættu gleymdist undir skemmtun þeirra og heim. -<;AJ. A ■ ■ '"<•.*>'•S.»'V ■RIPWIZ IttftBWMHR “ pBMBWIg >| || ílSSiiil11 !• iff 2 i w ii! n : jpW ^íl Mikill mannfjöldi var samankominn á Austurvelli er jólasveinarnir átján hófu upp raust sina á þaki Kökuhússins. Jólasveinarnir f Hafnarfirði gáfu félögum sinum i Reykjavfk ekkert eftir þó ekki væru þeir eins fjölmennir. DB-myndir Ragnar Th. Ánægjan skin úr andlitum barnanna er þau sáu einum jólasveini bregða l'vrir i glugga Landsimahússins skömmu á'ður en jólasveinarnir átján komu út. Jólatréssala Hjáipar- sveita skáta í Hafnarfirði: Aukning á sölu dýrustu trjánna Hjálparsveit skáta I Hafnarfirði var í gærdag með jólasveinaskemmtun, kaffisölu og flugeldasýningu við félags- heimili sitt, Hraunvang, i Hafnarfirði til kynningar á starfsemi sinni. Fyrir þessi jól eins og undanfarin ár mun sveitin selja jólatré til styrktar starfsemi sinni. Þar gefur að líta mikið úrval trjáa sem kosta frá 7.800 krónum til 30.000 kr. Dýrast er eðalgrenið og sagði Svavar Geirsson, formaður sveitarinnar, í samtali við DB í gær að mun meira virtist ætla að seljast af eðalgreninu í ár en undanfarin ár. Sveitin býður upp á þá þjónustu að pakka trjánum, merkja þau og senda þau síðan heim til kaupenda skömmu fyrir jól. Rekstur Hjálparsveitar skáta í Hafnarfirði kostar mikið fé og um ára- bil hefur jólatréssalan verið burðar- ásinn í fjáröflun sveitarinnar, enda er hún eina sveitin í landinu sem ekki selur. flugelda til styrktar starfsemi sinni. Hjálparsveitin i Hafnarfirði er eini aðili landsins sem á og rekur sporhunda en þeir hafa margsinnis sýnt og sannað gildi sitt og bjargað mörgum manns- lífum. Jólatréssala sveitarinnar er opin alla virka daga frá kl. 14 til 22 og um helgar frá kl. lOtil 22. -GAJ. Gott verðf Frábærgæði BENCO 55rása VHF/fm skipastöð Naralec Nýtt! Bolholti 4 — Sími21945

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.