Dagblaðið - 17.12.1979, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 1979.
13
Erlendar
fréttir
Moskva:
Snjórinn veld-
ur samgöngu-
erfiðleikum
Bifreiðaeigendur í Moskvu eru nú
hvattir til að skilja bíla sína eftir heima
vegna mikils snjóþunga á götum
borgarinnar. Mesta snjókoma vetrarins
í Moskvu var í gær og í gærkvöldi voru
nær allar götur ófærar þar um slóðir.
Búizt er við meiri snjókomu austur
þar á næstu dögum en hitamælar eru
komnir niður i mínus 12 stig á Celcius,
sem ekki þykir tíðindum sæta i
Moskvu.
Caracas:
Ubýumenn vilja 34
dollara á olíufatið
Saudi-Arabía vill halda sig við 24 dollara. Miklar deilur á OPEC-ráðstefnu
v'erulegur ágreiningur mun vera á
milli OPEC ríkjanna sem nú halda
ráðstefnu í Caracas höfuðborg
Venezuela. Saudi Arabia hefur
tilkynnt að hækkun á olíu rikisins
verði 6 dollarar fyrir fatið og fari upp
í 24 dollara. Er þá átt við óunna olíu.
Yamai olíumálaráðherra Saudi-
Arabíu sagði að ríki hans samþykkti
ekki meiri hækkun á grundvaliar-
verði OPEC ríkjanna.
Bæði Libýa og lndónesia hafa
þegar tilkynnt um að verð þeirra
muni fara upp fyrir 24 dollara
markið. Olíumálaráðherra Líbýu
hefur gagnrýnt Saudi-Arabiu fyrir að
bíða ekki eftir ákvörðun OPEC fund-
arins um nýtt viðmiðunarverð. Slíkt
hefði verið eðlilegt. Hann gaf i skyn
að hann mundi heimta að verðið fyrir
1980 yrði ákveðið enn hærra eða allt
að 34 dollarar fyrir olíufatið. Taldi
hann það eðlilegt verð ef tekið væri
tillit til hækkana á annars konar
orkugjöfum.
Fulltrúi Sameinuðu fursta-
dæmanna við Persaflóa fylgir Saudi
Arabíu að málum. Sagði hann í
Caracas í gær að hann mundi ekki
samþykkja frekari olíuverðshækkan-
ir en upp í 24 dollara fyrir fatið.
OPEC ríkin virðast sammála um
að koma verði sér saman um nýtt
verðskipulag á olíunni en ekki eru
taldar horfur á að samkomulag náist
um leiðir sem líklegt sé að olíukaupa-
ríki geti fallizt á. Hið eina sem virðist
Ijóst er að olia mun halda áfram að
hækka á heimsmarkaði.
Detroit:
Þrjár milljónir
lítra af olíu
bnumu í gær
Slökkviliðsmenn réðu í morgun
niðurlögum elds, sem logað hafði síðan
i gær í þrem stórum geymum í útjaðri
bifreiðaborgarinnar Detroit í Banda-
rikjunum. Þá voru um það bil þrjár
milljónir lítra af bensíni og olíu brunnir
og miklar sprengingar höfðu orðið í
geymunum.
Vegna slysahættu voru fjögur þús-
und manns fluttir frá heimilum sinum í
nágrenni við olíuhreinsunarstöðina þar
sem eldurinn var. Nú eru flestir þeirra
þó komnir aftur til síns heima.
Rúmlega eitt hundrað slökkviliðs-
menn börðust við eldinn í rúman sólar-
hring en ekki er vitað hver eldsupptök
voru. Tjónið er talið nema í það
minnsta einni milljón dollara og þá
aðeins reiknað með brunninni olíu en
annað brunatjón ótalið.
REYNA VID HUÓÐ-
MÚRINN Á LANDI
Stan Barrett ævintýramaður frá
Hollywood mun í dag reyna enn einu
sinni að rjúfa hljóðmúrinn á þurru
landi. Hann beitir til þess farartæki
sem knúið er áfram með eldflaugum.
Tilraun i gær fór út um þúfur er eld-
flaugarnar fóru ekki i gang.
Barrett verður að koma rauðu
örinni sinni á 1206 kilómetra hraða en
til þess vantar í það minnsta ekki
kraftinn því eldflaugin er hvorki meira
né minna en 60 þúsund hestöfl. Ef
tilraunin tekst ekki i dag verður Barrett
að bíða þar til næsta sumar því regn-
tími fer nú i hönd í Kaliforníu.
Skákmótið í Buenos Aires:
Yfírburöasigur
Larsens
— Najdorf, Spassky, Anderson og
Miíes þrem vinningum á eftir honum
Góðkunningi okkar íslendinga,
danski stórmeistarinn Bent Larsen,
vann um helgina einn stærsta sigur sinn
á glæsilegum keppnisferli er hann inn-
siglaði sigur sinn á alþjóðlega mótinu í
Buenos Aires.
i siðustu umferð gerði Larsen
jafntefli við Miles frá Bretlandi og
hlaut því 11 vinninga úr 13 umferðum
og tapaði ekki skák, sem er frábær
árangur í jafnsterku móti og hér var
um að ræða.
Önnur úrslit í síðustu umferð urðu
þau, að Panno, Argentínu vann landa
sinn, Tempone, Gheorghiu, Rúmeníu,
og Spassky gerðu jafntefli, Franco,
Paraguay, og fyrrum heimsmeistari
Tigran Petrosjan gerðu jafntefli,
Svíinn Ulf Andersson vann Rubinetti,
Argentinu, Ivkov (Júgóslavíu vann
Quinteros, Argentínu, og Najdorf,
Argentinu, gerði jafntefli við séra
Lombardy, Bandaríkjunum.
Lokastaðan varð þessi: 1. Larsen 11
v. 2—5. Najdorf, Spassky, Andersson
og Miles 8 v. 6—7. Gheorghiu og Ivkov
7,5 v. 8. Quinteros 6,5 v., 9—10.
Petrosjan og Panno 6 v. 11 —12.
Franco og Lombardy 5 v. 13.
Tempone 3 v. 14. Rubinetti 1,5 v.
-GAJ.
t eru börnin hennar Móður Teresu 1 Kaikútta á lndlandi. Mörg þeirra hafa aldrei átt nein heimili og gatan hefur ávallt
verið þeirra samastaður. Fyrir andvirði einnar veizlu fyrir 100 manns I Osló getur móðir Teresa gefið fimmtán þúsund þeirra
að borða á jólunum.
MEISTARAVERK NÁTTÚRUNNAR
i FÍNUM 0G VÖNDUÐUM SKARTGRIPUM
MJÚG MIKIÐ ÚRVAL
FRANCH MICHELSEN
ÚRSMÍÐAMEISTARI
LAUGAVEGI 39 - SÍM113462 - REYKJAVIK