Dagblaðið - 17.12.1979, Blaðsíða 33

Dagblaðið - 17.12.1979, Blaðsíða 33
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. DESEMBER 1979. EINAR KÁRASON Tvœr Ijóðabækur Örbylgj'uútgáfan heitir nýtt bókaforlag, sem sendir nú frá sér tvær Ijóðabækur. Einar Kárason er höfundur annarrar þeirra og ber hún nafnið Loftræsting — farir mlnar holóttar I. Þetta er fyrsta bók höfundar, en áður hefur hann birt eftir sig Ijóð í blöðum og tíma- ritum. Bókin er 35 siður og prentuð í Odda. Hin bókin er (Jt um lensportiö eftir Sigfús Bjart- marsson. Það er líka fyrsta bók höfundar, en áður hafa birst eftir hann Ijóð í blöðum og timaritum. Hún er 48 síður og prentuð í Odda. LOFTRÆSTING (FARIR MÍNAR HOLÓTTAR I) örbylgjuútgáfan Svikráðé sólarströnd eftir Linden Grierson Sama forlag hefir einnig sent frá sér bókina Svikráö á sólarströnd eftir Linden Grierson og er það önnur bók höfundar sem forlagið gefur út. Þýðandi er Snjólaug Bragadóttir frá Skáldalæk. Bækumar eru filmusettar og prentaðar í prentstofu G. Benediktssonar og bundnar I Amarfelli hf. Týndir snillingar Nú kemur út siðasta bindið af minningum Jóns óskars. Heitir það Týndir snillingar, en fyrsta bindið kallaðist Fundnir snillingar, og er það vel við hæfi. Þetta verður stærsta bók Jóns Óskars, um 300 bls. Þar segir hann á skemmtilegan og sérlega einlægan hátt frá villuferð sinni um völundarhús stjórnmálanna.. Sem verkamannssonur af Akranesi gerðist hann sósía- listi og einsýnn marxisti. Hann rekur það á mjög hreinskilinn hátt, hvaða hugmyndir beindu honum inn á þá braut. Leiðin var vörðuð góðum ásetningi, en þar kom að lokum aö draumsýnirnar reyndust blekk-, ing. Það er heillandi við sögu Jóns óskars, að hann skellir ekki skuldinni á aðra, heldur ræðir á einstaklega hreinskilinn og drengilegan hátt þessa harmsögu. Hann Htur á sig enn sem sósíalista og herstöðvaand- stæðing, en flettir ofan af mörgum blekkingum. Fjölvi gefur bókina út. út um lensportið Haustlauf Gefin hefur verið út Ijöðabókin Haustlauf eftir Stein- grim Davíðsson. Útgefendur eru aðstandendur skáldsins. Bókin er prentuð í Prentstofu G. Benedikts- sonar og Ævar Jóhannesson hannaði bókarkápu og tók Ijósmyndir. Steingrimur Davíösson er meðal kunnustu núlifandi Húnvetninga, vegna margþættra embættisvcrka og félagsmálaafskipta. Þegar hann lét af störfum fyrír tveimur áratugum, gafst honum loks tóm til að leggja rækt við skáldhneigð sína. Baldur Pálmason og Þormóður Pálsson völdu úr kvæöum hans og stökum, en bókin skiptist i fjóra þætti. Bókin er 130 bls. | ’fffmi HöPUWDUR WeTSÍ>i.t;OöKAr<INNAF? HAUOi.SW Á UCHHHifÍH&rOA FOYER Ógnvaldur öptumhHngsins •eftir Joe Poyer Bókaútgáfan öm og örlygur hefur sent frá sér bók- ina ógnvaldur ópiumhringsins eftir Joe Poyer og er það það fjórða bók höfundar sem gefin er út á íslenzku. Björn Jónsson islenzkaði. þórunnEÍfa VGRIÐ | B| tmimnmt Osetur Reykjavíkur 1930 Vorið hlær — Dætur Reykjavíkur Fjöldi hefur ákveðið að gefa nú út að nýju skáld- sögu Þórunnar Elfu, — Voriö hlær — Dætur Reykja- víkur. Þar segir frá lífi ungs fólks og ástum þess á Alþingishátíðinni I930 og er hún nú gefin út vegna þess að á nasta ári verða 50 ár frá Alþingishátlðinni. Þetta verður í endurútgáfunni sérstök skratútgáfa og er hún skreytt af Sigrúnu Eldjárn. ý- Skilnaðurinn Ingólfsprent hefur gefið út skáldsöguna Skiliiaðurinn eftir Harold Robbins. Ásgeir Ingólfsson þýddi. Bókín heitir When love has gone á frummálinu. Robbins er einn alvinsælasti skáldsagnahöfundur heims i dag og allar sögur hans hafa orðið að metsölubókum. Þær hafa verið þýddar á 40 tungumál Með þessari bók hefst ný útgáfa á bókum Harold Robbins á íslandi. Skilnaðtlrlnn er 228 bls. Stemrn A Guömundscfónir muR FLJÓTS/HS Niður fljótsins Út er komið smásagnasafnið Niöur fljótsins eftir Steinunnu Þ. Guðmundsdóttur, en hún er gefin út á kostnað höfundar. Um smásöguna segir höfundur á kápu. „Hún er lík stuttri ferð, þar sem huldir atburðir gerast fyrirvaralaust. Hún dregur upp svipmyndir minninga og reynslu. Hún minnir ósjálfrátt á liðna tíð. á þröngt athafnasvið daganna.” Niður fljótsins er 152 bls. Umleikinn ölduföldum .Skuggsjá hefur gefið út Umleikinn ölduföldum, ágrip ættarsagna Hergilseyinga eftir Játvarö J. Júliusson. Hér er skráð saga sem nær óslitið yfir tvær aldir og spannar ágrip af sögu sex kynslóða. Brot úr örlaga- sögu fólks og flutningi ætta landshorna á milli er hér raðað saman svo úr veröur samfelld heild Hér er einnig að finna staðarlýsingar, sem gera sögusviðið og lifsbaráttu fólksins Ijóslifandi. Bókin er 184 bls. Vonsviknir guðfeður við pylsuvagn „Við átium von á meiru,” sagði guðfaðir vinstri stjórnarinnar sálugu aðspurður um þetta afkvæmi sitt í Kastljósi á föstudagskvöld og var samtalið tekið upp á þeim stað sem sagan segir að vinstri stjórnin hafi orðið til á, þ.e. við pylsuvagninn í Austurstræti. Víst er um það að Guðmundur J. Guðmundsson er ekki einn um það, að hafa orðið fyrir vonbrigðum með vinstri stjórnina. Þjóðin öll hafði fengið sig fullsadda á úrræðaleysi hennar. Þess vegna er það með meiri háttar afrekum forystu Sjálfstæðis- flokksins að hafa náð að glutra niður þeirri sigurstöðu sem flokkurinn hafði við fall vinstri stjórnarinnar og skoðanakannanir sýndu réttilega fram á. Engum getum þarf að því að leiða hvað varð flokknum að falli, nefnilega leiftursóknin nafntogaða, sem virðist hafa orðið til í svo mikilli skyndingu að frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins út um allt land urðu sér til minnkunar á framboðs- fundum er í Ijós kom að þeim var alls ekki kunnugt um, hver stefna flokksins var. Þegar síðan engin skýr svör fengust um innihald jafn- róttækrar stefnu og þarna var boðuð, þá sneru kjósendur annað og í flest- um tilfellum til Framsóknar- flokksins. Þvi er nú komin upp sú furðulega staða, að líklegast er að vinstri stjórn verði mynduð á ný, með eða án blessunar Guðmundar J. og geta sjálfstæðismenn engum um kennt nema sjálfum sér. Dagskrá sjónvarpsins á föstudags- kvöld var mjög góð að minu mati. Skonrokk stendur alltaf fyrir sínu og sömu sögu er að segja af Kastljósi. Auk þess sem þar var rætt við guðfeður vinstri stjórnarinnar sálugu var rætt um aðstöðumun íbúa i dreifbýli og ibúa á höfuðborgar- svæðinu. Þar fannst mér þeir Eggert Jónsson borgarhagfræðingur og Bergur Sigurbjörnsson fram- kvæmdastjóri Sambands sveitar- félaga í Austurlandskjördæmi leita langt yfir skammt er þeir reyndu að grafast fyrir um ástæður þess, að landsmönnum hefði verið skipt í and- stæðar fylkingar. Ég held nefnilega að það sé engin „úlfúð” á milli Reykvikinga og dreifbýlinga eins og þeir vildu vera láta, og því á- stæðulaust að grennslast fyrir um á- stæður þessarar „úlfúðar”. Bíómynd sjónvarpsins á föstudagskvöld (Dúfan) var kannski ekki nein stór- mynd en hún reyndist ágætis af- þreying og i heild var sjónvarpsdag- skráin þetta kvöld mjög góð. Sömu sögu hef ég raunar að segja af dagskránni á laugardag. Ég horfði á hana alla, að undanskilinni ensku knattspyrnunni, en áhugi minn á þeirri göfugu íþrótt helzt algjörlega í hendur við árangur Tottenham- liðsins. Þegar Tottenham vegnar illa, eins og á laugardaginn, er áhugi minn rokinn út í veður og vind. Dagskráin í gærkvöldi var hins vegar lítið fyrir minn smekk. Þá hofði ég aðeins á Andstreymi. Þann þátt hef ég horft á frá upphafi þó tæpast sé hægt að segja hann upplifg- andi og litið lát virðist ætla að verða á andstreymi því sem Jonathan Garrett og Mary Mulvane búa við. Að lokum vil ég segja það, að ég tel það til mikilla bóta, að sunnudagshugvekjan hefur nú verið færð framar í dagskrána enda hafa kirkjunnar menn lengi barizt fyrir þvi. -GAJ. UM HELGINA GUNNLAUGUR A. JÓNSS0N

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.