Dagblaðið - 17.12.1979, Síða 47

Dagblaðið - 17.12.1979, Síða 47
Móðir Teresa beygir sig hér yfir einn af holdsveikum sjúklingum sfnum. MÓDIR TERESA - sjónvarp kl. 20,45: LÍKNARSTÖRF MÓDUR TERESU OG VIÐHORF HENNAR TIL HUNGURS „Þetta er finnsk heimildarmynd jiar sem finnskur spyrjandi á viðtal við móður Teresu austur í Kalkútta,” sagði Ingi Karl Jóhannesson, þýðandi myndarinnar Móðir Teresa, sem sjón- yarpiðsýnir í kvöld kl. 20,45. „Hún lýsir m.a. viðhorfum sínum til hungurs í heiminum jw sem fram kemur með hvaða hætti hún og hennar regla, sem kallar sig Kærleikstrúboða- regluna, starfar. Reglan starfar viða um heim, en hun sjálf starfar fyrst og fremst í Kalkútta. Þar hefur hún komið á fót heimilum fyrir holdsveika og þurfandi. Það er komið víða við í myndinni. Sýnt er frá heimilum, t.d. er eitt heimilið fyrir fólk sem er aðframkomið og á ekkert nema dauðann fyrir sér. Á því heimili hefur tekizt að ná þeim árangri að fólk hefur koniizt til lífsins aftur,” sagði Ingi Karl ennfremur. ,,í myndinni er einnig viðtal við Indiru Gandhi um starf móður Teresu og þau vandamál sem blasa við ind- versku þjóðinni. Þar kemur fram önnur hlið á málinu, þ.e.a.s. viðhorf hins opinbera. Það kemur lika fram i myndinni hve virt móðir Teresa er i landinu,” sagði Ingi Karl Jóhannesson að lokum. Þess má geta að móðir Teresa fékk friðarverðlaun Nóbels fyrir líknarstörf í Kalkútta fyrir stuttu. Myndin var tekin í Kalkútta fyrir mánuði siðan. -F.I.A. POPP — útvarp kl. 15,00: Jólasveinar og álfar kyrja söngva sína — í síðasta poppi Þorgeirs Ástvaldssonar á þessu ári Þorgeir Ástvaldsson ásaml dóltur sinni, Krisljönu, 8 ára, sem hjálpaði pabha við jólapoppið. Síðasta popp Þorgeirs Ástvaldssonar á árinu verður t dag kl. 15,00. Poppið mun snúast um jólasveina og álfa að’ jiví er Þorgeir sagði og í tilefni af nýút- kominni plötu Magnúsar Þórs Sigmundssonar mætir hann í þáttinn. Meginuppistaðan í jiættinum verður því Álfaplatan en auk hennar verða leikin innlend jólalög og sprell á milli. Engum ætti j)ví að leiðast á meðan Poppið glymur í dag. -F.I.A. Aðalleikarar I sjónvarpsmyndinni sem sýnd verður ikvöld KEIMK0MAN - sjónvarpkl. 22,00: Dreymir um að eignast samastað Heimkoman nefnist kanadísk flakki og jtegar henni býðst fastur sjónvarpsmynd sem sjónvarpið sýnir samastaður grípur hún tækifærið á mánudagskvöld. Myndin segir frá l'cgins hendi. unglingsstúlku, Jenný að nafni. Hún Með aðalhlutverk í myndinni fara hefur árum saman verið á stöðugum l.esley Donaldson, Auggie Schellen- ferðalögum með föður sínum og vini berg og Don Granbery. Leikstjóri er hans. Þeir eru indíánar og atvinnu- Gilles Carle. Þýðandi er Dóra Haf- menn í hestaíþróttum. steinsdóttir og er myndin klukku- Jenný er orðin leið á sífelldu stundarlöng. -FI.A. NYTS0M J0LAGJ0F Notið LUXO við lest urinn, verndið sjónina Varist eftirlíkingar. <n> ALLAR GERÐIR - ALLIR LITIR POSTSENDUM LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL LJOS & ORKA Suðurlandsbraut 12 simi 84488

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.