Dagblaðið - 19.12.1979, Page 1

Dagblaðið - 19.12.1979, Page 1
 Á 5. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMEBER 1979 — 282. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022. f Björgunarmenn horfðu á þyrluna snúast til jarðar: „Kraftaverk að neista- eldurinn skyldi slokkna” Tvö fligslys á Mosfellsheiði á 5 klst Níu útlendingar og 2 íslendingar meira og minna limlestír „Það er algjört og óskiljanlegt kraftaverk að ekki varð meira úr þeim rafmagnseldi er sást í flaki þyrl- unnar á Mosfellsheiði er fyrstu tveir björgunarmennimir komu á vél- sleðum að flakinu örfáum mínútum eftir að þyrlan skall til jarðar,” sagði Karl Eiriksson í rannsóknarnefnd flugslysa í samtaii við DB. Skúli sonur Karls og Halldór Sigurjónsson einnig úr rannsóknarnefndinni, komu fyrstir að flakinu, því þeir fóru á vélsleðum frá flaki Cessnunnar 5— 800 metrum austur. „Þetta var rafmagnseldur, néista- llug í leiðslum. Skúli spurði flugstjór- ann hvar aðalrofinn væri, fékk greið svör og rauf rafstrauminn. Elds- neytið JP-4 flaut um allt og mettaði andrúmsloft flaksins. En krafta- verkið skeði. Enginn eldur blossaði upp.” Upphaf harmleiksins var að TF- EKK var saknað en í henni höfðu 4 útlendingar farið í útsýnisflug til Gullfoss. í sama mund og tekið var að kalla hana upp heyrðust neyðar- merki frá sjálfvirku senditæki í TF- EKK. Þau voru skjótlega miðuð út og björgunarleiðangur hófst. Flug- björgunarsveitarmenn fóru af stað í bílum og þyrlubjörgunarmenn varnarliðsins buðu fram hjálp. Það var um 15.20 sem TF-EKK brotlenti 4 km vestan Þingvallavatns. Þyrlan varð fyrst á staðinn. Fólkið reyndist allt lifandi í flugvélinni, þrennt fast og mikið slasað en flug- maðurinn, franskur, laus. Var farið með hann einan í þyrlunni i bæinn. Þyrlan kom aftur eftir tafir. Særða fólkið flutt um borð og lagt af stað kl. 19.06. Þyrlan komst eðlilega í 2— 300 metra hæð. En ca 2 mínútum síðar virtist hljóð hennar breytast og er menn litu upp sáu þeir óljóst i myrkrinu að hún spannst til jarðar. Enginn bjóst við að sjá lifandi fólk koma út úr flaki hennar. En í þann mund er Skúli og Halldór komu að á vélsleðunum kom Ólafur Kjartans- son læknir út um eitt opið, og síðar birtust fleiri. Á örskömmum tíma náðist allt fólkið úr vélinni, meira og minna sært. Hófst nú löng bið eftir hjálp. Ólafur gekk að hjálparstarfinu með ólýsanlegu þreki og aðdáun vakti framkoma þyrluflugstjórans sem axlarbrotinn með meiru vildi öllum V innfelldu myndinni er flak Cessnavélar- TFIak bandarisku björgunarþyrlunnar á slysstað. Mesta kraftaverk þykir að fólk skyldi sleppa lífs úr báðum flugslysunum. innar TF-EKK. DB-myndir: Hörður. sinna. Um tiu manna björgunarlið kom að, sem sent hafði verið til Cessnunnar. Við mikla erfiðleika brutust sjúkra- og björgunarbílar með lækna og hjúkrunargögn á staðinn og á stuttum tíma —eftir langa bið—- var fólkinu komið i sjúkrakörfur og börur og borið til bilanna sem ekki komust nær flakinu en 1—1,5 km fjarlægð. Það var erfið leið sem fólkið meira og minna beinbrotið átti fyrir höndum. Alls særðust fjórir i TF-EKK og 7 i þyrlunni, 5 Bandarikjamenn og is- lenzku læknarnir tveir, Ólafur þó litið. - A.St. „Ekki aftur í þyrlu” — voru bænarorð annarrar særðu stúlkunnar „Ekki aftur í þyrlu,” sagði önnur finnska stúlkan, sjúkraþjálf- ari á Reykjaiundi, er björgunar- menn sem sendir voru frá Reykja- vík er vitað var unt þyrluslysiö hjálpuðu þeim björgunarmönnum er fyrir voru að koma henni á sjúkrabörur. Stúlkan ásamt vin- stúlku sinni og landa og starfs- félaga, var mikið meidd í baki. Þær og Nýsjálendingur, höfðu verið i Cessnunni, sem fyrr fórst á Mos- fellsheiði i gær og þyrlumenn komu til hjálpar. Þau þrjú höfðu því lent í tveimur flugslysum á tæpum 4 klst.' Og það var ekki fyrr en kl. 9.05 að burðarmenn lögðu af stað með börur þeirra frá slysstað, upphaf langrar ferðar og erftörar fyrir bak- sært fólk i sjúkrahús. Tæpar 6 kiukkustundir hafði fólkið legið mikið sært í flugvélaflökum eða á snjóskafli. Hlúð var að þvi eftir mætti en kuldinn var nístandi fyrir það. Magnús Guðmundsson læknir sem einnig lá særður i baki I snjónum hafði Itka orð á að fara ekki meðþyrlu í bæinn. -A.St. J Þrír af hverjum fjórum stjóm- málaflokkum vilja virðis- aukaskatt - sjá bls. 14 Geirfinns- og Mig langar í L „Her lifa menn Guðmundarmálin: kálgarð við læk í menningar- Gæzluvarðhald upp í sveit leysi og verða sakbominga - sjá viðtal IHH að vinna eins framlengt til við Normu Samúelsdóttur og skepnur” 1. aprfl 1980 rithöfund — sjá bls. — Það er átt við ísland — sjá bls. 5 . 12-13 — sjá bls. 7 DAGARTILJÓLA

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.