Dagblaðið - 19.12.1979, Qupperneq 1
Á
5. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMEBER 1979 — 282. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022.
f
Björgunarmenn horfðu á þyrluna snúast til jarðar:
„Kraftaverk að neista-
eldurinn skyldi slokkna”
Tvö fligslys á Mosfellsheiði á 5 klst Níu útlendingar og 2 íslendingar meira og minna limlestír
„Það er algjört og óskiljanlegt
kraftaverk að ekki varð meira úr
þeim rafmagnseldi er sást í flaki þyrl-
unnar á Mosfellsheiði er fyrstu tveir
björgunarmennimir komu á vél-
sleðum að flakinu örfáum mínútum
eftir að þyrlan skall til jarðar,” sagði
Karl Eiriksson í rannsóknarnefnd
flugslysa í samtaii við DB. Skúli
sonur Karls og Halldór Sigurjónsson
einnig úr rannsóknarnefndinni,
komu fyrstir að flakinu, því þeir fóru
á vélsleðum frá flaki Cessnunnar 5—
800 metrum austur.
„Þetta var rafmagnseldur, néista-
llug í leiðslum. Skúli spurði flugstjór-
ann hvar aðalrofinn væri, fékk greið
svör og rauf rafstrauminn. Elds-
neytið JP-4 flaut um allt og mettaði
andrúmsloft flaksins. En krafta-
verkið skeði. Enginn eldur blossaði
upp.”
Upphaf harmleiksins var að TF-
EKK var saknað en í henni höfðu 4
útlendingar farið í útsýnisflug til
Gullfoss. í sama mund og tekið var
að kalla hana upp heyrðust neyðar-
merki frá sjálfvirku senditæki í TF-
EKK. Þau voru skjótlega miðuð út
og björgunarleiðangur hófst. Flug-
björgunarsveitarmenn fóru af stað í
bílum og þyrlubjörgunarmenn
varnarliðsins buðu fram hjálp.
Það var um 15.20 sem TF-EKK
brotlenti 4 km vestan Þingvallavatns.
Þyrlan varð fyrst á staðinn. Fólkið
reyndist allt lifandi í flugvélinni,
þrennt fast og mikið slasað en flug-
maðurinn, franskur, laus. Var farið
með hann einan í þyrlunni i bæinn.
Þyrlan kom aftur eftir tafir. Særða
fólkið flutt um borð og lagt af stað
kl. 19.06. Þyrlan komst eðlilega í 2—
300 metra hæð. En ca 2 mínútum
síðar virtist hljóð hennar breytast og
er menn litu upp sáu þeir óljóst i
myrkrinu að hún spannst til jarðar.
Enginn bjóst við að sjá lifandi fólk
koma út úr flaki hennar. En í þann
mund er Skúli og Halldór komu að á
vélsleðunum kom Ólafur Kjartans-
son læknir út um eitt opið, og síðar
birtust fleiri. Á örskömmum tíma
náðist allt fólkið úr vélinni, meira og
minna sært.
Hófst nú löng bið eftir hjálp.
Ólafur gekk að hjálparstarfinu með
ólýsanlegu þreki og aðdáun vakti
framkoma þyrluflugstjórans sem
axlarbrotinn með meiru vildi öllum
V
innfelldu myndinni er flak Cessnavélar-
TFIak bandarisku björgunarþyrlunnar á slysstað. Mesta kraftaverk þykir að fólk skyldi sleppa lífs úr báðum flugslysunum.
innar TF-EKK.
DB-myndir: Hörður.
sinna. Um tiu manna björgunarlið
kom að, sem sent hafði verið til
Cessnunnar.
Við mikla erfiðleika brutust
sjúkra- og björgunarbílar með lækna
og hjúkrunargögn á staðinn og á
stuttum tíma —eftir langa bið—- var
fólkinu komið i sjúkrakörfur og
börur og borið til bilanna sem ekki
komust nær flakinu en 1—1,5 km
fjarlægð. Það var erfið leið sem
fólkið meira og minna beinbrotið átti
fyrir höndum.
Alls særðust fjórir i TF-EKK og 7 i
þyrlunni, 5 Bandarikjamenn og is-
lenzku læknarnir tveir, Ólafur þó
litið. - A.St.
„Ekki aftur í þyrlu”
— voru bænarorð annarrar særðu stúlkunnar
„Ekki aftur í þyrlu,” sagði
önnur finnska stúlkan, sjúkraþjálf-
ari á Reykjaiundi, er björgunar-
menn sem sendir voru frá Reykja-
vík er vitað var unt þyrluslysiö
hjálpuðu þeim björgunarmönnum
er fyrir voru að koma henni á
sjúkrabörur. Stúlkan ásamt vin-
stúlku sinni og landa og starfs-
félaga, var mikið meidd í baki. Þær
og Nýsjálendingur, höfðu verið i
Cessnunni, sem fyrr fórst á Mos-
fellsheiði i gær og þyrlumenn komu
til hjálpar.
Þau þrjú höfðu því lent í tveimur
flugslysum á tæpum 4 klst.' Og
það var ekki fyrr en kl. 9.05 að
burðarmenn lögðu af stað með
börur þeirra frá slysstað, upphaf
langrar ferðar og erftörar fyrir bak-
sært fólk i sjúkrahús. Tæpar 6
kiukkustundir hafði fólkið legið
mikið sært í flugvélaflökum eða á
snjóskafli. Hlúð var að þvi eftir
mætti en kuldinn var nístandi fyrir
það.
Magnús Guðmundsson læknir
sem einnig lá særður i baki I
snjónum hafði Itka orð á að fara
ekki meðþyrlu í bæinn. -A.St.
J
Þrír af hverjum
fjórum stjóm-
málaflokkum
vilja virðis-
aukaskatt
- sjá bls. 14
Geirfinns- og Mig langar í L „Her lifa menn
Guðmundarmálin: kálgarð við læk í menningar-
Gæzluvarðhald upp í sveit leysi og verða
sakbominga - sjá viðtal IHH að vinna eins
framlengt til við Normu Samúelsdóttur og skepnur”
1. aprfl 1980 rithöfund — sjá bls. — Það er átt við ísland
— sjá bls. 5 . 12-13 — sjá bls. 7
DAGARTILJÓLA