Dagblaðið - 19.12.1979, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979.
° ” Fyrstajólamyndiit 1979
ÚLFALDASVEITIN
Frábær, sprenghlægileg fjölskyldumynd
fyrir alla, gerð af höfundi Benji-myndanna,
Joe Camp, með James Hampton —
Christopher Conelly. íslenzkur texti.
Sýnd kl. 3,6 og 9.
Tœkifœris-
fatnaður
ELÍZUBÚÐIN
SKIPHOLH 5. SlMI 26250.
skrifstofustólar
Við höfum mikið úrval skrifstofustóla og að sjálfsögðu
nú með sjálfvirkum hæðarstilli.
Athugið að góður skrifstofustóll er tilvalin jólagjöf
fyrir skólafólkið.
Lítið inn og fáið ykkur sæti um leið
og þið skoðið framleiðslu okkar.
STÁLIÐJANhf
SMIÐJUVEGI 5, KÓPAVOGI, SÍMI 43211
Umræður á AlþingS um skýrslu forsætisráðherra
Steingrímur vill
örstutt jólahlé
— reynir myndun „vinstrí stjómar” til hins ýtrasta
Steingrímur Hermannsson (F) lagði
til á Alþingi i gær, að þingið færi ekki i
venjulegt jólafri heldur yrði aðeins gerl
örstutt hlé yfir helgustu dagana.
Ragnar Arnalds (AB) tók undir þetta.
Steingrímur kvaðst mundu reyna
„sitt ýtrasta” til að mynda rikisstjórn
vinstri flokkanna, en hann mundi ekki
halda umboðinu til stjórnarmyndunar
„mikið fram yfir þennan dag,” ef illa
gengi í næstu atrennu, sem átti að
verða í gærkvöld.
„Engin
lausatök"
Til umræðu var skýrsla forsætisráð-
herra, Benedikts Gröndal (A), um
efnahagsmálin. „Við verðum að viður-
kenna, að aðgerðir stjórnvalda á
síðustu árum hafa ekki verið þess
megnugar að draga úr verðbólgunni,”
sagði forsætisráðherra. „Skýringin á
þessu ári er sú sama og mörg undan
gengin ár, fyrst og fremst sú, að það
hefur hvorki tekizt að stjórna rikisfjár-
málunum né peningamálunum, né
heldur hefur nægu aðhaldi verið fylgt
á sviði verðlags- og launamála.
Erlendar lántökur hafa farið úr
böndum, lánveitingar til framkvæmda
hafa farið fram úr áætlun, og þannig
mætti lengi telja. Þessi verkefni bíða
úrlausnar á þessu þingi, og er brýnt, að
tekið verði á þeim sem allra fyrst.”
„Nú er mikilvægast í islenzkum
stjórnmálum, að mynduð verði stjórn,
sem er reiðubúin til að takast á við
efnahagsvandann án alls lýðskrums.
Nú duga engin lausatök. Ríkisstjórn
Alþýðuflokksins mun þann tína, sem
hún situr, gera það, sem hún getur til
þess að koma i veg fyrir, að vandinn
ágerist, og það ér tilhæfulaust, að
vandinn hafi aukizt fyrir tilverknað
hennar,” sagði Benedikt Gröndal.
Hver ber sök?
Geir Hallgrimsson (S), talaði að lok-
inni ræðu Benedikts og sagði, að
ástandið væri mjög alvarlegt og sýndi
algert skipbrot vinstri stjórnarinnar.
Ragnar Arnalds sagði, að Sjálfstæðis-
flokkurinn og Alþýðuflokkurinn bæru
ábyrgð á 'núverandi stjórn. Því væri
þeirra sök, að ástandið hefði versnað.
Ennfremur töluðu Steingrímur
Hermannsson, sem fyrr getur, og
Friðrik Sophusson (S).
-HH.
Enginn veit hvað átt heffur fyrr en misst hefur:
SKÍTALYKTIN HORF-
IN - EN NÚ VANTAR
LAUNAUMSLÖGIN
— Mál Fiskiðjunnar í Keflavík velkist nú í nefndum,
stjómum og „kerfinu”
Frá I. ágúst sl. hefur Fiskiðjan í
Keflavík verið lokuð en fram að þeim
degi hefur hún í áratugi malað gull
m.a. úr fiskúrgangi og loðnu.
Ástæða lokunarinnar var ólykt og
loftmengun. Þarna unnu um 50
manns þegar mestu skorpurnar voru
í loðnubræðslunni, en 20—25 manns
höfðu þar fasta vinnu árið um kring,
þvi verksmiðjan var ein af stærstu
beiriamjölsverksmiðjum landsins.
Ýmsir íbúar Keflavíkur og ná-
grennis töldu sig með nokkrum rétti
hafa unnið stóran sigur er heilbrigðis-
nefnd stóð við lokunarhótunina sem
marggefin hafði verið verksmiðjunni
ef ekki yrðu gerðar úrbætur varðandi
menungarvarnir. Ólyktin sem oft
grúfði með slíkum þunga yfir Kefla-
vik að verksmiðjunni var lokað um
stundarsakir með fógetaúrskurði, var
nú horfin.
En atvinnulífið varð fátækara og
það gull sem 20—50starfsmenn sóttu
til verksmiðjunnar í launaumslögum
barst.nú ekki lengur. Og um það
munað'l.
Eigendur verksmiðjunnar töldu og
telja lokun verksmiðjunnar neyðar-
úrræði en fjármagn hafi þeir ekki
haft til úrbóta. Einnig benda þeir á
að löggjöf um mengunarvarnir sé
ekki til og engar úrbætur þó hundruð
milljóna kosti, verði samþykktar sem
framtíðarlausn nema eftir úttekt heil-
brigðisnefndarinnar. Upp á þá skil-
mála telja þeir næsta vonlitið að
leggja út i himinháan kostnað til
varnar gegn menguninni.
I vetur hafa vandamálin sem
skapazt hafa verið rædd í atvinnu-
málanefnd Keflavíkur og i bæjar-
stjórn. Atvinnumálanefndin lagði til
að vinnsla yrði hafin nú þegar i Fisk-
iðjunni gégn því skilyrði að fram-
kvæmdir samkv. þriðja lið í bréfi
tFiskiðjunnar frá 3. sept. sl. verði
ákveðnar og opnuð verði banka-
ábyrgð vegna innkaupa á búriaði,
sem nauðsynlegur er til þeirra fram-
kvæmda. Frestur til að Ijúka fram-
kvæmdum á 3. lið verði til ágústloka
1980.
DB fékk þær upplýsingar í gær að
það sem fælist í þessum umrædda 3ja
lið bréfs Fiskiðjunnar væri kaup á
gufuþurrkara, þvottaturni og gufu-
katli. Áður en bréfið var skrifað í
septemberbyrjun kostuðu þessir
hlutir hingað komnir 290 milljónir
króna, að flutningsgjöld þeirra voru
80 milljónir og uppsetning kostaði þá
um 30 milljónir, eða allar aðgerðirn-
ar rúmlega 400 milljónir isl. kr.
Bæjarstjórn Keflavíkur tók í aðal-
atriðum undir samþykkt atvinnu-
málanefndar en sendi málapakkann
til heilbrigðisráðherra með þeirri
frómu ósk ,,að ráðherrann beitti sér
fyrir því að opinberir sjóðir veiti
nauðsynlega fyrirgreiðslu til þess að
gera þær úrbætur sem ekki verður
hjá komizt í búnaði og umhverfis-
málum verksmiðjunnar.”
Síðan hefur ekkert gerzt. Fiskiðjan
er lokuð. Skítalyktin er horfin — en
núsegir það til sín að launaumslögin
koma ekki lengur frá verksmiðjunni.
Málið velkist nú „í kerfinu”. -A.St.