Dagblaðið - 19.12.1979, Page 8

Dagblaðið - 19.12.1979, Page 8
8 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979. Erlendar fréttir Þannig er Carlos l’etla er sögA vera fyrsta tnyndin sem hafa ávallt sýnt hann með gleraugu eða hirtist af hryðjuverkamanninum Carlos skegg en nú er fullyrt að myndin að þar sem liann er án dulargervis en hann ufan sé af honum eins og hann líti úl í hefur verið alræmdur um langt skeið. raun og veru. Fyrri myndir sem birzt hafa af Carlosi 0 © © $ ; 10.5853 @ © @ 9 OATC (u.58Su SYN, Klst, mín., sek., mán,- 0 • ni in UC.JU 5.35 Telur niður (afturábak, 001 10-9-8...) Sónn heyrist á 0. Vakjarí. (24. klst verk) Spilar lagstúf. Staðartimi (hentugt fyrir 8.5853 feröa,öo) Skeiðklukka. Mælir 1/100 úr sek., geymslu- tími (lap time). Kassi og keðja úreðalstáli, hertgler. VERÐ KR. 61.250 PÓSTSENDUM UM LAND ALLT FRANCH MICHELSEN ÚRSMfDAMEISTARI LAUGAVEGI39 REYKJAVÍK - SÍM113462 Bandaríkin: Chrysler fær 1,5 milljarða dollara Fulltrúadeild þingsins í Washing- ton samþykkti í gær að veita einum og hálfum milljarði til Chrysler bif- reiðaverksmiðjanna. Er þetta gert til að koma í veg fyrir að fyrirtækið fari á hausinn og þrjú hundruð og sextíu þúsund starfsmenn þess standi uppi atvinnulausir. Slík aðstoð við einkafyrirtæki er einstæð í sögu Bandaríkjanna þó svo að Lockheed flugvélafyrirtækinu hafi verið veitt 250 milljón dollara aðstoð árið 1971. Stjórn Chrysler fyrirtækisins hefur sagt að ef ekki komi til aðstoð frá stjórnvöldum verði félagið gjald- þrota innan mánaðar. Afkoma þess er svo slæm vegna þess að ekki var gerl ráð fyrir svo vaxandi eftirspurn eftir bifreiðum sem eyða litlu elds- neyti. Hafði Chrysler engar slíkar bifreiðir upp á að bjóða, þegar sú staða kom upp i fyrra. Öldungadeild þingsins í Washing- ton er nú með sams konar mál til um- fjöllunar. Búizt er við að það fái já- kvæða umsögn þar. Að því loknu þarf sameiginleg nefnd þingdeild- anna beggja að taka málið til athug- unar og samræma samþykktir þeirra. Ekki er þó talið að horfur séu á öðru en Chrysler fái hina 1,5 milljarða dollara aðstoð og því takist að koma t veg fyrir gjaldþrot fyrirtækisins. Björguðu 527 við Skotland — mikið afrek tólf áhafna á þyrium Áhöfnum tólf þyrlna tókst á sunnu- daginn að bjarga 527 mönnum sem voru á nauðstöddu oliuskipi utan við strendur Skotlands. Skipið sem þeitir Hermod og er 34 þúsund tonn lá við festar við olíuborpalla Texaco olíu- félagsins. Mikið óveður varð á þessum slóðum á sunnudaginn og akkeris- festar skipsins slitnuðu. Hinir 527 menn, sem voru um borð, allt starfs- menn olíutélagsins, voru taldir í yfir- vofandi lífshættu er Hermod fór að reka undan storminum. Aðeins tókst með vélarorku skips- ins að halda því upp i vindinn og siðan var sent út neyðarkall. Þyrl- urnar fóru að skipinu og voru menn- irnir fluttir til Aberdeen á Skotlandi. Ekki er að fullu ljóst hvort takast muni að bjarga skipinu. Þegar síðast fréttist var skipið ofansjávar en mikil hætta á að það héldi áfram að reka til hafs. Ef svo héldi áfram mundi það enda við strendur Noregs. Áhafnir hinna tólf björgunarþyrlna þykja hafa sýnt mikinn dug við björgun mannannaá Hermod. Veður var svo slæmt að flug var mjög erfitt. Kanada: T rudeau hættir viðaðhætta! kominn á fulla ferð í kosningabaráttunni fyrír Frjálslynda flokkinn Kosningabaráttan i Kanada hófst i gær af fullum krafti þegar Pierre Trudeau, fyrrum forsætisráðherra, tilkynnti að hann hefði frestað því að draga sig út úr stjórnmálum. Ætlar hann að verða við áskorun fiokks- manna sinna í Frjálslynda flokknum og leiða hann enn einu sinni til kosn- inga. Trudeau var forsætisráðherra þar til I maí siðastliðnum, þegar flokkur hans beið ósigur í þingkosningum og minnihlutastjórn íhaldsflokkksins tók við undir forustu Joe Clark. Eftir ellefu ára forsætisráðherratíð þótti Trudeau nóg komið og tilkynnti nýlega að hann mundi ekki taka frekari þátt í stjórnmálum. Þegar stjórn Joe Clark beið ósigur á kanad- íska þinginu fyrir nokkrum dögum var Ijóst að kosningar yrðu fyrr en búizt var við. Er talið að þær verði 18. febrúar næstkomandi. Helztu flokkarnir í Kanada eru Frjálslyndi flokkurinn undir stjórn Trudeaus, Framsækni íhaldsflokkur- inn undir stjórn Joe Clark og Ný- demókrataflokkurinn, sem er undir forustu Ed Broadbent. Hinn síðast- nefndi er sósialdemókratískur flokk- ur. Trudeau sagði I gær að fyrsta verkið yrði að nefndir á vegum Frjálslynda flokksins semdu nú stefnuskrá sem síðan yrði grundvöll- ur baráttunnar fram að komandi kosningum. Þetta eru foringjar tveggja stærstu stjórnmálaflokkanna I Kanada, sem berjast munu I komandi kosningabaráttu. Pierre Trudeau, formaður Frjálslynda flokksins, er til vinstri en Joe Clark, formaður Framsækna íhaldsflokksins og fráfarandi for- sætisráðherra, til hægri. ^

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.