Dagblaðið - 19.12.1979, Side 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979.
13
Norma veltir fyrír sér ríkjandi stil i húsagerð: f blokk sem þessari eru kannske
fimmtfu eldhús með fimmtfu eldavélum og Fimmtiu isskápum og fimmtfu einmana
konum, sem hver um sig er að passa eitt ,tvö börn. DB-mynd: Hörður.
Það er líka sú staðreynd að
fjölskyldan hefur skroppið saman,
afar og ömmur, frændfólk og vinnu-
konur, allt er þetta fólk horfið út í
buskann og ekki eftir nema börn og
vélar. En við þvottavélina sina getur
engin kona talað, hvursu mörg sem
prógrömmin eru.
Og enneitt:
„Við konur erum ekki hluti af
framleiðslukeðjunni i þjóðfélaginu,”
segir Norma. ,,Við erum einu þegn-
arnirsemfá ekkert kaup, og samt
vitum við betur en nokkur annar
hvaðallt kostar.
Og þótt við séum þannig að vissu
leyti utanveltu þá erum við mjög vel
upplýstar. Heimstíðindin sem sífellt
berast til okkar um sjónvarpsskjáinn
auka sífellt þá tilfinningu okkar að
við séum gjörsamlega misheppn-
aðar.”
Mamma er eins og
klifurgrind
Eiginmaður Normu, Sigurður Jón,
vinnur i álverinu eins og stendur.
Hann hristir höfuð eindregið, þegar
við spyrjum hvort lýsingar láglaun-
aðra karlmanna á lífi sínu yrðu ekki
jafn þrungnar af vanmáttarkennd
eins og dagbók Normu.
,,Við erum ekki háðir heimilinu,”
segir hann. „Við fáum miklu meiri
tilbreytingu.”
Húsmóðirin situr fámál og hugs-
andi í miðri stofunni. Krakkarnir,
þriggja og átta ára, klifra upp og
niður hana eins og hún væri hóll eða
stór steinn. Þau eru fjarska vel haldin
og lífsglöð, já, barmafull af þrótti.
„Mig mundi langa til að flytja eitt-
hvað upp i sveit þar sem væri kál-
garður við læk,” segir hún, ,,en það
stekkur enginn út úr sínu eigin lifi.”
- IHH
Ný sending
LONDON
dömudeild
AUSTURSTRÆT114
SÍM114260
Líttu inn
Litlar gjafir.
Hljómplötuhreynsibúnaður i úrvali
• smekkleg gjöf handa þeim sem þykir
vænt um plöturnar sínar.
Audio Technica heyrnartól bestu
* heyrnartólin á markaðnum.
Pickup frá Audio Technica og Stanton
® stór endurbót fyrir lítið verð.
Stórar gjafir.
^ KHF hátalarar hafa hlotið einróma
lof hljómtækjagagnrýnenda.
Stanton plötuspilarar á sérstöku
kynningarverði.
Bara það besta.
STEClt)
Hafnarstr. 5 víð Tryggvagötu sími: 19630
V