Dagblaðið - 19.12.1979, Page 19
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979.
19
Nýjar bœkur
Við arininn
Bókaútgáfan Þjóðsaga hefur gefiö út Ijóðabókina
Við arininn eftir Sigrúnu Fannland frá Sauðárkróki. í
bókinni eru 35 Ijóð og stökur en hún er 69 bls.
Björt mey og hrein
Bókaútgáfan Þjóðsaga hefur gefið út Ijóðabókina
Björt mey og hrein eftir Baldur Pálmason. Þetta eru
æskuljóð höfundar. 27 talsins, og spanna timabilið
1935—1950. Hafsteinn Guðmundsson útgefandi
hannaði útlit bókarinnar sem er 79 bls.
Einu sinni ver...
Prentsmiðjan Leifur hefur gefið út Stóru ævintýra
bókina Einu sinni var. . . í henni eru 23 sögur og
fjöldi myndskreytinga. Bókin er 240 bls.
1YFTIOG HR6YFiMVND>R A HVERHi SfOU
FJÖRIFJÖLLBKAHÚSI
A W.U “
Fjör f Fjölleikahúsi og Sígildar
dœmisögur
Hreyfimyndabækur sem fylgja gleraugu er framkalla
hreyfingar á síðum bókanna.
Galdragleraugnabækur sem nefnast Fjör í fjöUeika-
híisi og Sigildar dcmisögur eru komnar út hjá Bóka-
útgáfunni öm og örlygur. Þýðandi textans er Andrés
Indriðason.
Bækur þessar eru ætlaðar yngstu bömunum og eru
talsvert frábrugðnar venjulegum bókum. Hverri bók
fylgja lituð gleraugu og er hægt að færa glerin i þeim
fram og aftur en við þaö taka persónur og hlutir sem
teiknaðir eru á slðumar að hreyfast á ýmsa vegu.
Einnig eru í bókunum stórar hreyfimyndir sem spretta
upp þegar bókinni er flett. Þetta eru því sannarlega
hinar líflegustu bækur, allt á ferð og flugi I þeim.
Textinn er filmusettur i prentstofu G. Benedikts-
sonar en bækumar eru að öðru leyti unnar í Mið-
Ameríku.
KARAMELLU
SAMKEPPWM
Snilldarkarlarnir HATTUR og FATTUR
bjóða öllum skemmtilegum krökkum á
aldrinum 6-12 ára að taka þátt í sérstakri
KARAMELLUSAMKEPPNI
Hattur og Fattur hafa lofað að verðlauna
tuttugu bestu karamelluuppskriftirnar með
nýju hljómplötunni sinni HATTUR OG
FATTUR KOMNIR Á KREIKen þaraðaukifá
verðlaunahöfundar bestu uppskriftanna
risapoka með alvöru karamellum frá NÓA.
Reglurnar í Stóru karamellusamkeppninni
eru þessar:
1. Skrifaðu góða karamelluuppskrift á
blað. (Pabbi og mamma mega hjálpa
þér).
2. Skrifaðu nafnið þitt, heimilisfang og
símanúmer á blaðið.
Litaðu mynd af vagninum þeirra Hatts
og Fatts og sendu hana til okkar.
4. Klipptu auglýsinguna út úr blaðinu, og
sendu hana til okkar fyrir þann
20. desember næstkomandi.
5. Heimilisfangið er:
Stóra Karamellusamkeppnin
Hattur og Fattur
Pósthólf: 5266
Reykjavík
Þeir, sem velja svo bestu uppskriftirnar
eru þeir Hattur, Fattur, Haraldur Skrípla-
pabbi og karamellusérfræðingurfráSíríus og
Nóa.
Athugið!
Þessi samkeppni er stranglega bönnuð
fullorðnu fólki!
steiíior hf