Dagblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979.
Hljóð þyrlunnar breyttist og síöan spannst hún niður:
21
%
Þyrluflakið sundurtætt
oggerónýtt hrúgald
Kraftaverk að fólk skyldi komast lifandi úr því
Bandaríska björgunarþyrlan er
gerónýt og sundurtætt ca 5—800
metra frá flaki TF—EKK. Þyrlan hóf
sig eðlilega upp frá flaki Cessnunnar
með 5 manna bandaríska áhöfn,
þrennt af særða fólkinu úr Cessnunni
og tvo kandidata frá Borgar-
spitalanum sem fóru með á slys-
staðinn vegna hins særða fólks. Voru
þeir lítt búnir til fjallaferða í sinum
hvítu læknafötum.
Skúli Jón Sigurðsson frá Loft-
ferðaeftirlitinu, Ragnar Vignir frá
RLR og björgunarmenn heyrðu
örskömmu síðar breytingu á vélar-
hljóði þyrlunnar, horfðu á eftir henni
og sáu hana spinnast til jarðar.
Er að vélinni kom var fólk, meira
og minna slasað.að skríða út úr flak-
rústunum og þótti það eftir á ganga
kraftaverki næst að nú skriðu
stúlkurnar, sem lent höfðu í
Cessnuslysinu helsærðar í baki út í
dyragat þyrluflaksins. Var fólkinu
hjálpað niður og lagt í snjóinn og
aðrir meira særðir bornir út.
Gúmbátur björgunarþyrlunnar losnaði og blést sjálfkrafa upp við það er þyrlan
skall endanlega til jarðar. Eftir að særðum hafði verið sinnt og ferðin til byggða
hófst með þá á börum, var ýmsu lauslegu, fallhlifum, björgunarvestum og ýmsu
braki safnað i bátinn. flugbjörgunarsveitarmenn settir á vakt og slysstaðurinn
yfirgefinn.
»x- -wí '
fc\ W .'%%
Flugbjörgunarsveitarmenn hlúa hér að annarri stúlkunni sem lenti i tveimur flugslysum sama daginn. Hjá þeim er Skúli Jón
Sigurðsson. DB-myndir Hörður.
Rannsóknarmenn sáu síðar að
þyrlan hafði snert jörð hátt í 100
metrum frá þar sem hún endanleg
nam staðar með miklum dynk. Á
fyrri staðnum voru hjólasett
vélarinnar þrjú með nokkru millibili
og ýmsir álbútar úr skrokki
þyrlunnar. Síðan hefur þyrlan
hoppað, skrensað og kastast á og yfir
jörðu að endanlegum brotstað. Þar
er flakið ein hrúga, og kannski
kraftaverk að nokkur skyldi lifa af.
Engar skýringar eru enn á því til
fulls hvað gerzt hefur. Skúli Jón
Sigurðsson og Karl Eiríksson úr
rannsóknarnefnd flugslysa töldu þá
skýringu liklegasta að afturhreyfill
þyrlunnar hefði orðið óvirkur en þá
spinnast þyrlurnar til jarðar og verður
lítt ráðið við hvernig lending fæst. i
þessu tilviki hefur sjálfsagt tekizt
nokkuð vel til úr því sem komið var.
Annars hefði ekki þurft að flytja sært
fólk frá þyrluflakinu, svo illa sem
þaðerásig komið.
-A.St.
stjóri tæknideildar rarinsóknarlög-
reglunnar, höfðu rannsakað vegs-
ummerki og þótti sýnt að vélin hefði
fyrst skollið niður á hjólin, síðan nef-
hjólið brotnað af og um 30—40
metra frá þeim stað sem vélin fyrst
snerti jörð stakkst hún á nefið og fór
á hvolf. Var nef hennar mikið brotið,
nefhjólið og annað hjólið af en að
öðru leyti var flakið heillegt, en víða
beyglað og dældað og telst vélin sjálf-
sagt ónýt. Enginn eldur kviknaði.
Farþegarnir þrír voru fastir i vélinni
en flugmaðurinn, franskur maður,
laus. Sú staðreynd réð því að flug-
maðurinn var einn fluttur til Rvíkur i
fyrstu ferð björgunarþyrlunnar.
Bandarísku björgunarliðarnir vildu
ekki reyna að ná fólkinu sem fast var
í vélinni án sérstakra tækja, vegna
mikilla bakmeiðsla stúlknanna sem
voru farþegar. Fjórði maðurinn í vél-
inni var brotinn i andliti og víðar að
talið var, en gat þó setið.
Litið neyðarsenditæki í vélinni hóf
útsendingu neyðarmerkis þegar eftir
höggið sem vélin fékk við fyrstu
snertingu við jörð. Slíkir neyðar-
sendar hefja neyðarkall við slík högg.
Heyrðist þetta neyðarkall mjög
fljótt, eða um svipað leyti og vélin
Skúli Jón Sigurðarson deildarstjóri
Loftferðaeftirlits heldur hér á neyðar-
senditækinu sem bjargaði lífi fólksins
sem í vélinni var. Neyðarsenditækið
tók að senda við höggið er vélin skall
niður, heyrðist fljótt og var fljótlega
miðað út. Þá um leið fóru hjálpar-
sveitir af stað til björgunarstarfa.
-T.itla fjögurra manna Cessna-vélin,
TF-EKK, brotlenti um 4 km suð-
vestur af Þingvallavatni skammt frá
þar sem gamli Þingvallavegurinn
kemur inn á hinn nýja. Er vélin þar á
nokkru hæðardragi og hallar örlítið
bæði til austurs og þó aðallega til
vesturs.
Skúli Sigurðarson frá Loftferða-
eftirlitinu og Ragnar Vignir, deildar-
TF-EKK á brotlendingarstað. Neflijólið er af, nefið mikið brotið, annað hjólið af, vélin beygluð og dælduð en flakið nokkuð
heillegt. Við dyr vélarinnar krýpur Ragnar Vignir tæknistjóri rannsóknarlögreglunnar.
DB-myndir Hörður Vilhjálmsson.
átti að fara að sjást frá Reykjavík.
Vél Flugmálastjórnar fann svo flakið
fljótt með miðun og björgunarsveit
fór af stað á landi og Bandaríkja-
mennirnir buðust til að senda þyrl-
una.
TF-EKK er í eigu margra einstakl-
inga og stundum leigð út. Svo var nú.
Fór Frakkinn í u.þ.b. klukkustundar
útsýnisflug til Gullfoss og hafði
ferðin gengið áfallalaust þar til
vestan Þingvallavatns.
Orannsakað er hvað slysinu olli en
gizkað á að vélin haft lent í éli sem
flugmaðurinn gætti sín ekki nægilega
á, því himinn og jörð renna saman.
Skýrslur hafa ekki verið teknar af
flugmanni og farþegum. -A.St.
TF-EKK SKALL TVtSVAR
í JÖRD OG HVOLFW
Nefhjól er af, nefið
mikið brotið,
en flakið heillegt
að öðru leytí,
þó beyglað sé