Dagblaðið - 21.12.1979, Qupperneq 3
*
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979.
Aðgangsharður innheimtumaður Rafmagnsveitunnan
„Sló mig, hrinti mér
og sparkaði í mig”
— segir fisksali um innheimtumann Rafmagnsveitunnar
Fanney Sigurðardóttir hringdi og
kvaðst vilja greina frá óvenjulegu at-
viki er hefði hent hana á miðvikudag.
Henni sagðist þannig frá: „Ég keypti
fiskbúð i nóvember sl. að Tindaseli 3
og greiddi þá jafnframt rafmagns-
reikning sem lá á búðinni. Þess vegna
kom mér það alveg í opna skjöldu
þegar maður kom frá rafmagnsveit-
unni á miðvikudagsmorgun til að
loka búðinni þar sem umræddur
reikningur hefði ekki verið greiddur.
Ég segi þá við hann, að ég hafi
þegar greitf þennan reikning. Hann
mótmælir því og segist munu loka
fyrir rafmagnið. Slíkt hefði komið
sér mjög illa fyrir mig þar sem ég er
meðal annars með frystikistu þarna
með fiski í. Ég bað hann því að doka
við meðan ég sækti kvittunina. Það
mundi ekki taka neinn tíma þar sem
ég bý aðeins u.þ.b. 100 metra frá
búðinni. Hann neitar því. Engu að
síður hljóp ég heim og sótti kvittun-
ina. Síðan hljóp ég af stað og elti inn-
heimtumanninn uppi, sýndi honum
kvittunina og spurði, hvað honum
sýndist þetta vera. Hann sagði að
honum kæmi það ekkert við og neit-
aði jafnvel að líta á kvittunina.
Mér fannst þessi framkoma hans
fyrir neðan allar hellur og þar sem ég
var orðin reglulega æst yfir þessu þá
varð mér það á að sparka í töskuna
hjá honum.
Hann sagði þá, að þannig kæmi ég
ekki fram við opinberan starfsmann,
sló mig í framan, hrinti mér og spark-
aði í mig og skildi þannig við mig.
Ég hringdi síðan niður í rafmagns-
veitu og fékk þar þær skýringar að ég
hefði fyrir mistök fengið bæði ein-
tökin af reikningnum þegar ég
greiddi hann og því hefði hann aldrei
farið gegnum kerfið.
Hannes Pétursson Þórarinn Eldjám
KVÆÐAFYLGSNI ERINDI
Stefán Hörður Grímsson Gunnar Gunnarsson
LJÓÐ GÁTAN LEYST
í þessari bók fjallar Hannes Péturs-
son um líf og list Jónasar Hallgríms-
sonar. Bókin er reist á vandlegri
könnun heimilda og snilldarvel
rituð. „Lestur bókarinnar er
skemmtun og hátíð sem heldur
áfram allt kvöldið og alla nóttina. .
(J.S./Tíminn). „Útkoma Kvæða-
fylgsna er mildll bókmeimtalegur
viðburður.“ (J.Þ.Þ./Tíminn). „Eins
og vænta mátri er öll bók Hannesar
hin lasilegasta enda skrifar þar
skáld af umhyggju og ástúð um
annað skáld.“ (H.P./Helgarpóstur-
inn).
MÁNASILFUR
Gils Guðmundsson valdi efnið
Hér er að finna úrvakkafla úr
íslenskum endurminningum og
sjálfsævisögum og er fyrirhugað
að safnið verði í nokkrum bindum.
I bókinni eru fjölbreytilegar frá-
sagnir efirir fólk úr ýmsum stéttum,
allt frá séra Jóni Steingrímssyni til
núlifandi manna. Bráðskemmtileg
bók og fróðlegt sýnishom íslenskrar
frásagnarlistar.
Jón Espólín og Einar Bjarnason
SAGAFRÁ
SKAGFIRÐINGUM IV. bindi
Með þessu bindi lýkur útgáfu hins
stórmerka héimildarrits um tíðindi,
menn og aldarhátt í Skagafirði
„. . . ýmis erindi, bundin í erindi,
öll brýn. Eg geng þeirra hér í kverinu
og á þau við lesarann.“ - Þessi orð
lætur Þórarinn Eldjám fylgja
hinni nýju kvæðabók sinni.
Þórarinn á stærri lesendahóp en flest
önnur samtímaljóðskáld. Sá hópur
verður ekki fyrir vonbrigðum með
þennan beitta og skemmtilega kveð-
skap.
Thor Vilhjálmsson
TURNLEEKHÚSH)
Ný skáldsaga eftir Thor Vilhjálms-
son, einn leiknasta prósahöftmd vor
á meðal. Lesandinn er leiddur að
tjaldabaki í leikhúsi áður en sýning
hefst. Við erum stödd í kynlegum
heimi þar sem mörk draums og vöku
em numin burt. Þetta er sýnishom
af stílgaldri höfundar sem vafalaust
þolir samanburð við hina fremstu
meðal evrópskrar samtíðar sinnar.
Haraldur Jóhannsson
PÉTUR G. GUÐMUNDSSON
og upphaf samtaka alþýðu
Þessi bók fjallar um einn stofiienda
Dagsbrúnar og helsta forusm-
mann í verkalýðsbaráttu á upphafs-
skeiði hennar. Markvert framlag til
verkalýðssögu á Islandi.
Þetta er heildarútgáfa á ljóðum
Stefáns Harðar, eins sérkennilegasta
og listfengasta skálds samtíðarinnar.
Hér er hin torgæta fyrsta bók
skáldsins, GLUGGINN SNÝR í
NORÐUR, einnig SVARTÁLFA-
DANS og HLIÐIN Á SLÉTT-
UNNI. Bókin er prýdd myndum
eftir Hring Jóhannesson og til
útgáfunnar vandað efrir fongum.
„. . . ber vott um stolt og virðingu
fyrir ljóðinu.“
(H.P. /Helgarpósturinn).
Egill Egilsson
SVEINDÓMUR
Saga úr Reykjavík, lýsir lífi drengs á
unglingsaldri, heima og í skóla.
Hver em þau uppeldis- og þroska-
skilyrði sem samfélagið býr honum?
Áleitin og ögrandi bók, rauntrú
lýsing á umhverfi okkar sem ekki
verður vísað á bug. Tímabært
innlegg til umræðna um kjör bama
í samfélaginu.
Ólafur Jónsson
LÍKALIF
Úrval blaðagreina Ólafs Jónssonar
um samtímabókmenntir frá árunum
1963-79. Athyglisverð heimild um
viðbrögð við nýjmn bókmenntum:
í þeim er LÍKA LÍF. Bók fyrir
áhugasama lesendur.
Þetta er fyrsta bókin í flokki sagna
um rannsóknarlögreglumanninn
Margeir. Nýjung á íslenskum bóka-
markaði. GATAN LEYST er
spennandi saga sem gerist í Reykja-
vik og á Akureyri og leikurinn berst
til Spánar. Umhverfið allt kunnug-
legt og greint frá atvikum sem standa
okkur nærri.
Auður Haralds
HVUNNDAGSHETJAN
Þrjár öruggar aðferðir til að
eignast óskilgetin böm
Óvenjuleg reynslusaga, opinská og
hispurslaus enda hefur hún þegar
sætt miklum tíðindum: „... allmikil
nýlunda í íslenskum bókmenntum. .
m.a. um rétt konunnar til að lifa
óþvinguðu kynlífi... Auður Haralds
er ágætlega ritfær höfundur.“ (H.P./
Helgarpósturinn). „Ég spái að bók
þessi veki verðskuldaða athygli.“
(E.J./Mbl.)
Bræðraborgarstíg 16 Sími 12923 og 19156
3
Spurning
dagsins
Ferðu í kirkju á
aðfangadagskvöld?
Ásgcir Sæmundsson: Ekki í þetta sinn.
Ég kem því ekki við.
Tómas Runólfsson: Nei. Ég fer mjög
sjaldan í kirkju. En það kemur fyrir að
ég horfi á sjónvarpsmessuna.
•Rósa Björg Þórsdóttlr: Nei, það geri ég
aldrei. Ég fer sjaldan í kirkju. Siðast
var ég í kirkju á þriðjudaginn af því að
ég geng til prests.
Auður Ólafsdóttir: Nei. Ég fer eigin-
Iega aldrei i kirkju, en horfi stundum á
biskupinn áaðfangadagskvöld.
Ásdis Magnúsdóttir: Ég kemst ekki af
því ég er boðin í mat. Ég hef farið
tvisvar í kirkju á aðfangadagskvöld.
Sigurrós Jóhannsdóttir: Nei, en ég ætla
að horfa á biskupinn í sjónvarpinu.