Dagblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979. Krístjaníubúar í jólaskapi: GEFA LÖGREGUMN HASS í JÓLAGJÖF Það gengur ekki alltaf eins og í rauðri ástarsögu að koma jólagjöfun- um til skila. Það fékk sosum tylft borg- arútlaga frá Kristjaníu í Kaupmanna- höfn að reyna, þegar hún hugðist færa lögreglunni jólaglaðning. Gjöfin ber reyndar nafnið „hryllingsverðlaun Nóbels.” Þegar Kristjaníubúar komu á lögreglustöðina og hugðust afhenda Nóbelinn var þeim ekki hleypt inn. Verðlaununum fylgdu tveir jólapakkar til viðbótar, báðir með vafasömu innihaldi. f öðrum voru fimm grömmaf hassi. í hinum var bunki af myndum sem teknar höfðu verið af lögreglunni að störfum i Kristjaníu. Jólasveinn Kristjaníufólksins, Pete, sagði í blaðaviðtali að hassið hefði fundizt í Kristjaníu og ætti því að ganga rétta boðleið til lögreglunnar. „Okkur virðast þeir hafa alltaf verið sérlega áhugasamir um hass og allt sem því viðkemur,” sagði jóla- sveinninn. , ,Þegar við komum með það til þeirra, pakkað inn í gjafapappir, éru þeir eins og snúið roð í hund. ,,Við verðum sennilega að fara á enn hærri staði til að losa okkur við þetta bölvað hass,” sagði jólasveinninn Pete. Viðskiptavinir ATHUGÍD að hf. ölgerðin Egill Skaiiagrímsson verður lokuð á aðfangadag og gamlársdag. KJOLAR ÍNÝJU ÚRVALI VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI. SÉRSTAKLEGA HAGSTÆTT VERÐ. BARNAPEYSUR TIL JÓLAGJAFA. Opið á morgun, laugardag, til kl. 10 e.h. Veiksmiðju salan Brautarhohi 22 MNM Mjög fuílkomið CASIO töh/uúr á hagstæðu verði. einkaumboð á íslandi Bankastræti 8. Sími 27510 STYRKUR til háskólanáms í Noregi Norsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa islenskum stúdent eða kandidat til háskólanáms í Noregi háskólaárið 1980—81. Styrktímabilið er niu mánuðir frá 1. september 1980 að telja. Styrkurinn nemur 2.300 norskum krónum á mánuði en auk þess greiðast 500 norskar krónur til bókakaupa o.fl. við upphaf styrktímabilsins. Umsækjendur skulu vera yngri en 30 ára og hafá stundað nám a.m.k. tvö ár við háskóla utan Noregs. Umsóknum um styrk þennan, ásamt afritum prófskírteina og meðmæl- um, skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 15.janúarnk. — Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið 14. desember 1979. Kanar biðja um viðskiptabaim Jimmy Carter Bandaríkjaforseti tilkynnti í gærkvöldi að hann hefði ákveðið að beita sér fyrir allsherjar viðskiptabanni á íran til að neyða stjórnina þar til að sleppa gíslunum sem eru í haldi stúdentanna í bygg- ingu bandaríska sendiráðsins í Teheran. Talsmaður Hvíta hússins í Washington viðurkenndi á fundi með fréttamönnum í gærkvöldi, að það yrði erfiður róður að koma þessari tillögu í gegnum Öryggisráð Samein- uðu þjóðanna. Bandarikin þyrftu til dæmis að leggja hart að ýmsum bandalagsþjóðum sínum þar áður en slikt viðskiptabann yrði samþykkt. Ljóst er þó að fulltrúi Breta í Ör- yggisráðinu mun samþykkja þessa til- lögu. Má ráða það af yfirlýsingum Margaret Thatcher forsætisráðherra Breta, sem hún gaf á ferð sinni til Washington á dögunum. Þótt Bandaríkjastjórn takist að fá samþykkt viðskiptabann á íran vegna gíslanna í sendiráðinu í Teheran, þá er með öllu óvíst hvort það verður svo ákveðið að það hafi nokkur áhrif. Sem dæmi má nefna að Vestur- Þýzkaland hefur til skamms tíma haft nær öll sín olíuviðskipti við írani. Frakkar eru einnig góðir við- skiptavinir írans. Jólin komin! í Florida eru jólin lika að koma þó vafalaust vanti þar allan snjóinn. Reyndar kemur friðarhátíöin fyrr á vesturslóðum en hér og lýkur einnig fyrr. Þar eru færri fridagar en það verður ekki séð á vini vorum jólasveininum, sem skemmtir sér dátt í sant- fýlgd jólastúlknanna. Zimbabwe/Ródesía: LOKSINS FRKK UR í LANDINU Endi er í dag bundinn á nákvæm- lega sjö ára styrjaldarástand í Ród- esíu, að minnsta kosti að forminu 'til. Herskáar deilur hafa kostað 20 þúsund mannslíf eftir þvi sem næst verður komizt. Hvað sent samninga- menn í London segja um ástand og horfur, hafa fáir Ródesiumenn Soames landstjóri nokkra trú á því að skærum linni þegar í stað. Efnahagslíf og svo að segja alt þjóðlíf í Ródesíu er meira og minna bælt og lamað af styrjaldarþreytu. Hátíðleg undirritun samninga í London, þúsundir milna frá vett- vangi deilnanna, losar ekki í einu vet- fangi við hin miklu áhrif lang- vinnra mannvíga og hernaðarótta i Ródesíu. Eftir samningana verða 1200 manna sveitir úr herjum brezka sam- veldisins sendar til þess að halda uppi og hafa eftirlit með vopna- hléinu, sem samið er um. Verður her- liðinu dreift um hið stríðandi landsvæði og tekur sér stöðu á milli stjórnarhersins og skæruliða í Ródesíu og á landamærum ná- grannalandsvæða. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman á fund í dag til þess að ræða afnám efnahagslegra refsi- aðgerða, sem samþykkt var að beita stjórn Ródesíu. Þeim hefur þegar verið aflétt með einhliða ákvörðun margra þjóða í hinum vestræna heimi. Meðal annars hafa Bretar af- létt þeim aðgerðum, sem þeir beittu en sem kunnugt er hefur Carrington lávarður haft forsæti á samninga- fundum hinna stríðandi aðila. Soames lávarður hefur verið settur landstjóri til bráðabirgða eða þar til tekizt hefur að koma á þeim friði sem samið er um. Carrington lávarður

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.