Dagblaðið - 21.12.1979, Qupperneq 10
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979.
10
Kaupa, kaupa, kaupa, kaupa,
Hvenær veröur mælirinn fullur?
V
—nú er hægt að fá brúður sem pissa
oghafahægðir
— kannski verður hægt að gera þeim
bamfyrirnæstujól
„Við skulum hætta að gefa jóla-
gjafir,” heyrist stundum frá fólki,
sem er að kikna undan fargi jólagjafa
Ná eru komnar á markaðinn brúður,
sem borða, gráta, hlœja að sjónvarps-
dagskrám, pissa og hafa hœgðir. Guð
má vita hvað brúður verða látnar gera
fyrir nœstu jól. Kannski verður hœgt
að gera þeim barn.
og kaupæðis sem grípur um sig fyrir
jólin.
Nei, við skulum endilega ekki
hætta jiessum skemmtilega sið, við
skulum aðeins breyta honum örlítið
og snúa við á þeirri óheillabraut sem
við erum komin út á, áður en það
verður of seint.
Okkur hættir til að láta teyma
okkur á asnaeyrunum í kaupæðinu
og kaupa alla mögulega hluti sem
enginn hefur gagn af. Við erum
'þrælar alls konar hluta, sem við
þurfum síðan að byggja rándýr hús
yfir og flytja með okkur í búferla-
fiutningum öllum til leiðinda, amaog
kostnaðar.
Mælirinn
orðinn fullur
Þeir sem eitthvað hafa fylg?t með
vöruflóðinu í ár og auglýsingum eru
sennilega komnir á þá skoðun að nú
sé mælirinn sannarlega orðinn tilveg
blekfullur! Vitleysan keyrir svo úr
hófi fram að erfitt er að koma auga á
hvernig framleiðendur leikfanga,
heimilistækja og alls þess sem okkur
er „boðið” upp á ætla að yfirganga
sjálfasigánæsta ári!
Þegar brúður sem borða, gráta,
hlæja að sjónvarpsdagskrám, sem
þeim þykja skemmtilegar, pissa og
hafa hægðir eru komnar á
markaðinn er erfitt aðkomaaugaá,
hvaða hæfileikum brúður næsta árs
verða búnar. Nú er hægt að tala við
Bllabrautir hafa verið mikið auglýstar og allt gert til þess að hafa aksturinn sem brjálœðislegastan.
bilana, setja brjálæðislegan útaf-
akstur á svið o.s.frv. Til allrar
hamingju virðist vera búið að leggja
niður auglýsingar á byssum og öðrum
morðtólum til jólagjafa, í það
minnsta hef ég ekki séð slíkan
hrylling í ár. Satt að segja finnst mér
að innflytjendur leikfanga ættu að
sjá sóma sinn í því að flytja ekki
slíkan varning til landsins. Vart er
hægt að hugsa sér nokkuð ósmekk-
legra en að gefa litlu barni morðtól í
jólagjöf!
Föllum ekki
í f reistni
Við höldum öll að við sjálf séum
svo „stabil” og sniðug að við föllum
ekki í freistni fyrir auglýsingaskrumi!
En þegar betur er að gáð gerum
við það öll, þegar allt kemur til alls.
Ég á sjálf alls konar hluti og tæki,
sem ég hef annaðhvorí keypt eða
óskað mér og fengið í afmælis- eða
jólagjafir, hluti sem ég get svo mæta-
vel verið án og hef í rauninni engin
not fyrir.
Fyrir nokkrum árum sá ég á einni
af heimilissýningunum sem hér eru
haldnar auglýst mjög sniðugt
heimilistæki.' Bráðflink stúlka sýndi
ýmislegt sem hægt var að gera með
þessu „undratæki”, m.a. að þeyta
undanrennu og búa til flórsykur úr
molasykri.
Ári seinna fékk ég þetta tæki og
þóttist hafa himin höndum tekið. En;
hver hefur not fyrir þeytta undan-'
rennu og flórsykur úr sykurmolum? í
—-ssS
r
r
- ' .
.
:
Bráða-
birgðabúgí
lllil
Það þarf ekki að
segja meira.
-------,
Hananú
Hananú, platan
hans Vilhjálms hefur
nú selzt í yfir 10 þús.
eintökum ogþað eitt
segir meira en
lOOOorð.
IOIIM
LAUG AVEQI33 - SlM111508