Dagblaðið - 21.12.1979, Side 21

Dagblaðið - 21.12.1979, Side 21
 Óskhyggjan og veruleikinn Aflalheiður Bjamfreðsdóttir: Myndir úr raunveruleikanum, skáldsaga. Bókaútgéfan öm og örlygur, h.f., Rv8t. 1979. 136 bb. Ég er ein af þeim sem, alveg varð dolfallin yfir að til skyldi vera kven- maður á meðal okkar — alþýðukona — sem var þessi stórkostlegi ræðu- skörungur, sem hreif með sér þúsundir áheyrenda á Lækjartorgi kvennadaginn 1975. Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, það var hún sem átti töfrasprotann, hún sem lyfti okkur upp úr grautarpottunum og krýndi okkur sem drottningar dagsins. Hvað skeði? Það var allt, persónuleiki hennar, það sem hún sagði, hvernig hún sagði það, skýrt og skorinort með hæfilegum þögnum til áréttingar. Hvar hafði hún lært þetta? Stökk hún bara svona full- sköpuð út úr höfði Seifs? Var þá eftir allt saman einhver dularfull alþýðu- menning sem gat af sér snillinga? Og maður las allt sem kom um Aðalheiði i blöðunum á eftir til að leita svars: Hún var margra barna móðir, hafði stundað sveita- og verkamannastörf jafnframt heimilisstörfum og ekki hafði verið hlaðið undir hana. Lifið hafði kennt henni margt og verið hennar skóli. — Já þá var gaman að vera til, við upplifðum ævintýrið á meðal okkar. Aðalheiður veitti okkur kjark. Síðan þetta var hefur hún starfað af fullum krafti að félags- málum og er nú m.a. formaður Sóknar. Prútt hjarta Nú hefur hún einnig skrifað bók, „Myndir úr raunveruleikanum”, sem kom út nú fyrir jólin. Sagan segir frá börnunum Öggu og Óttari sem alast upp í braggahverfi eftirstríðsáranna í ömurlegu umhverfi og niðurlægingu og fólkinu í kringum þau. Sumt sékkur bókstaflega í þetta hyldýpi mannlegrar eymdar en söguhetjurnar lifa af eftir miklar hörmungar. Að lokum ná þau saman, ungmennin, reynslunni ríkari, Agga finnur föður sinn, sem reynist vera einn af ríkustu kaupmönnum borgarinnar og góður kall inn við beinið, — og gæfan brosir við þeim öllum. Aðalheiður hefur prútt hjarta og henni svíður sárt misréttið í þjóð- félaginu sem bitnar verst á börnunum. Hún skrifar sögu til að vekja athygli á vandamálunum og beitir (kannski ósjálfrátt?) þeirri aðferð að skrifa ævintýri og semur sig þannig að ævafornri hefð alþýðu allra tíma. Aðalheiðuj veit að enginn getur haldið út endalausa baráttu án Bók menntir Rannveig Ágústsdóttir Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir. 'vonar, það er vonin sem heldur lifinu við og endurnýjar það — og svo óminnið. Ég kalla söguna ævintýri, ekki af því að hún lúti formi ævintýrsins, þar líkist hún meira afþreyingar- sögu, heldur bara vegna þess að gömul ævintýraminni halda sögunni uppi: 1. Óttar — karlsson leggur út i lífið með ruður einar í nesti, lendir i ólýsanlegum þrautum, leysir þær hverja af annarri með hjálp góðra vætta (öggu, Guggu frænku, Sigmars) og fær kóngsdóttur og hálft konungsríki að launum (Öggu, sem. nú er orðin erfingi konungsríkis Sigmars). 2. Agga — útburður (föðurleysingi) lifir af illa æsku í öskustónni eða meðal ræningja o.s.frv., kemst þá til manns og þá uppgötva foreldrarnir afkvæmi sitt (þau eru auðvitað kóngur og drottning, hér ríki faðirinn) taka það í sátt og láta það erfa ríkið eftir sinn dag. Mikill efniviður Ævintýrið er alltaf heillandi lesning. Þar fær óskhyggjan útrás og manni líður vel að lestri loknum. Málin eru leyst. En var það tilgangur Aðalheiðar að sætta okkur við á- standið? Mig grunar að hún hafi ætlað að láta okkur rumska, jafnvel gera okkur reið, en hafi svo eftir allt saman hætt við. Best að gera gott úr öllu. Til þess að vekja reiði og um- bótalöngun manna þarf annars konar sögu, — sögu sem speglar raunveruleikann en sleppir ósk- hyggjunni. Það er stórgalli á verki Aðalheiðar að það er vart nema hálfunnið. Mikill og yfirfljótandi efniviður fiæðir um síðurnar, sagt frá þessu, sagt frá hinu, mörg nöfn nefnd, en aldrei staldrað við og gefin heil list- ræn mynd. Ég las það einhvers staðar að Aðalheiður segðist ekki hafa sýnt nokkrum manni handritið fyrir út- gáfu. Það held ég hafi verið mis- ráðið, ekki síst þar sem útgefendur hafa fæstir nokkra kunnáttumenn í þjónustu sinni sem geta leiðbeint byrjendum (það er önnur saga). Þrátt fyrir þetta hlakka ég til að lesa næstu bók Aðalheiðar, eigi hún eftir að sjá dagsins Ijós, því ég er ekki í nokkrum vafa um að hún gæti orðið jafngóður rithöfundur og hún er slyngur ræðumaður, legði hún sig eftir því. -R.G.Á. w I GÆRKVÖLDI Um aldabii var Rússland vesturianda- búum mikil ráðgáta. Þetta breyttist ekki með stofnun Sovét- rikjanna 1917. Fjölmargar bækur hafa verið ritaðar um sögu Sovétrikjanna, en við fullyrðum að engin þeirra likist þessari bók. Hún opnar okkur nýjan heim og er dýrmætur fengur þeim, sem vill öðlast skilning á þessari leyndardómsfuliu þjóð. Bók Árna er i senn uppgjör hans við staðnað þjóðskipulag og ástaróður til þeirrar þjóðar sem við það býr. Mál og menning DAGBLAÐIÐ. FÖr"r»'DAGUR 21. DESEMBER 1979. Svolítið tætingslegt Ef mér væri sjálfrátt mundi ég segja að dagskráin i gærkvöldi hafi verið talsvert tætingsleg. Það vildi til að ég var búin að heyra í kvöldfrétt- um að fjárhagsáætlun útvarpsins þarf að skera niður um hundrað milljónir eða svo, því ekki fæst fé frá hinu opinbera. En þótt ég greiði mín afnotagjöld ævinlega allt of seint þá skal ég vera fyrsta manneskja til að viðurkenna, að þau eru hlægilega lág, hvort sem miðað er við brennivínsverð eða bóka. Mér finnst einnig að leggja ætti niður sérstaka innheimtu stofn- unarinnar, þvi það er óþarfa skrif- stofukostnaður. Það ætti að rukka gjaldið inn með skattinum. Af efni kvöldsins fannst mér per- sónulega þátturinn af bókamarkaðin- um vera bitastæðastur enda vildi ég helzt láta lesa upp úr bókum allan daginn í útvarpinu. Efni hans þetta kvöldið var að mestu sagnfræðilegt. Lesið var úr af- mælisritum til fræðimannanna Ólafs Hanssonar og Kristófers á Sjávar- borg, og ennfremur reyndust -ýslu-og sóknarlýsingar í Arnessýslu bráðskeinmtilegar. Sem sagt mcð eindæmum þjóðlegt og ágætt efni, það kom svolítið eins og skollinn úr sauðarleggnum að enda það með kvæðum eftir Gunnar Dal. - IHH Árni Bergmann Miðvikudagar Moskvu 1

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.