Dagblaðið - 10.03.1980, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. MARZ 1980.
7
Mildi að ekki hlauzt
slys af fantaakstrinum
„Það var mesta mildi að ekki
jhlauzt slys af þessum fantaakstri,”
sagði Magnús Einarsson aðalvarð-
stjóri lögreglunnar í Reykjavík í gær.
Sl. föstudagskvöld sá lögreglan i
Reykjavík til Mustangbifreiðar og
var aksturslag hennar dularfullt.
Ökumaður Mustangsins sinnti ekki
Stöðvunarmerkjum lögreglunnar og
ók á glæfrahraða suður Kringlu-
mýrarbraut. „Talið er að hraði bif-
reiðarinnar hafi verið á milli 130 og
140 km,” sagði Magnús. ,,Á þessum
tíma var mikil umferð í borginni.”
Lögreglubílar fylgdu Mustangbíln-
um eftir svo sem þeir máttu. Er
komið var í Arnarneshæðina missti
,'ökumaður Mustangsins stjórn á bíln-
um og ók á staur, kastaðist á lög-
reglubíl og kastaðist síðan út fyrir
veg. Þegar bifreiðin stöðvaðist var
hún illa farin og hjól brotin undan.
Ökumaður var ölvaður og slapp
hann án meiðsla. -JH
1
Mustangbifreiðin cftir glæfraakslurinn *>
DB-mynd RagnarTh. —---
Hásetidrukknaði
erhannféll
útbyrðis
ámiðunum
Sævar Jensson háseti á Gjafari VE
600 féll útbyrðis á föstudag og
drukknaði. Báturinn var að veiðunt
út af Ingólfshöfða og var verið að
leggja netin. Sævar mun hafa ætlað
að stytta sér leið og fór út um neta-
rúllugat í stað þess að fara upp stiga.
Talið er að hann hafi fallið útbyrðis
er hann ætlaði að vega sig upp á efra
þilfar utan á borðstokknum.
Skipverjar sáu hann falla og var
bátnum þegar snúið við. Háseti og
skipstjórinn stungu sér í sjóinn, en
Sævar var ósyndur. Þeir náðu honum
og voru komnir um borð eftir tæp-
lega 10 mínútur í sjónum. Sævar var
þá látinn og báru lífgunartilraunir
ekki árangur. Sævar var 31 árs að
aldri, ókvæntur og barnlaus. Hann
átti heima að Bergstaðastræti 28 í
Reykjavík.
- JH
„Engin sameining
bankafyrir
þettaþing”
segir Tómas Ámason
„Verulegar tnubætur þarf aðgera i
bankakerfinu en líklega verður ekki
fjallað um þær á þessu þingi,” sagði
Tómas Árnason viðskiptaráðherra,
er fréttamaður DB spurði hvort á
döfinni væri sameining ríkisbank-
anna. Hann kvað þá aðgerðekki vera
i sérstakri athugun nú en unnið yrði
að henni með hliðsjón af næsta þingi.
„í þeirri athugun yrði þetta mál
skoðað sérstaklega en um ákvarðanir
ræðst af því hvern stuðning samein-
ing bankanna hefur þá meðal þing-
manna,” sagði viðskipta- og banka-
málaráðherra.
- BS
VASJUK0V SEGIR FRA REYNSLU SINNI
KUPREITSHIK GEFUR K0ST Á FJÖLTEFU
Evgeny Vasjukov, sem nú teflir á
Reykjavikurskákmótinu, var aðstoðar-
ntaður Anatóli Karpov, þegar hann
tefldi við Kortsnoj um heimsmeistara-
titilinn á Filippseyjum á dögunum. Frá
þvi segir Vasjukov meðal annars i
erindi sem hann flytur i MÍR-salnum
næstkomandi þriðjudagskvöld.
Þá ræðir Vasjukov um það sem ber
hæst í skákheiminum um þessar
mundir, sem og þátttöku sína í alþjóða-
mótum.
Þá mun Kupreitshik gefa kost á að
tefla fjöltefli ef menn verða ekki mjög
langorðir við Vasjukov og tími vinnst
tii. Þeir sem hafa hug á þátttöku í því
verða að hafa með sér tafl.
- BS
VANTAR FRAMRÚDU?
trqp**
BÍLRÚDAN
Ath. hvort við getum aðstoöað.
ísetningar á staðnum.
SKÚLAGÖTU 26
SÍMAR 25755 0G 25780
iiyíilOroiQ sýnir
Sikileyjarkrossinn
^kSs:
Hér er barizt af hörku um hverja mínútu, og það
gera engir lakari en Roger Moore og Stacy Keach.
íslenzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára
Sýrid kl. 5,7,9 og 11.
IGERÐ TRÉLÍMS
<§> J' J3
jv /# <?0y'
í/: 1,-
A Jfo C v,-
t) ;Q &
KRISTJAN O.
SKAGFUÖRÐ HF
Hólmsgata 4 Box 906 121 Reykjavík