Dagblaðið - 10.03.1980, Page 8
8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. MARZ 1980.
NOTIÐ TÆKIFÆRIÐ
Lækkum, þrengjum kuldaskó.
Lækkum einnig sóla og hæla.
Ný antik litun
Ljósu stigvélin þin með
saltröndinni gerum
við sem ný meö ANTIK-litun.
Nýir mjóir hælar.
VÍKKUM KULDASKO UM LEGGI
Á MJÖG SKÖMMUM TÍMA
Byggung Kópavogi
Fundur verður haldinn með 4. Byggingaráfanga að
Hamraborg 1,3. hæð, mánudaginn 10. 3.kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Rætt um byggingaframkvæmdir.
2. Stofnun húsfélaga fyrir Engihjalla
13 til 15 og 21 til 23.
3. Önnurmál.
Stjórnin.
BMW 320 árg. 1979 Renault 12 TL árg. 1977
BMW 316 árg. 1978 Renault 12 L árg. 1976
BMW 316 árg. 1977 Renault 12 station árg. 1975
BMW 518 árg. 1976 Renault 12 station árg. 1971
BMW2800 árg. 1969 Renault 12 TL árg. 1971
BMW 1802 árg. 1973 Renault 6 TL árg. 1972
Renault 20 TL árg. 1978 Renault 5 GTL árg. 1978
Renault 16 TL árg. 1975 Renault 4 VAN F6 árg. 1980
Renault 16 TL árg. 1973 Renault 4 VAN F6 árg. 1979
Renault 16 TS árg. 1972 Renault 4 VAN F6 árg. 1978
Renault 14 TL árg 1978 Renault 4 VAN F4 árg. 1979
Renault 12 TL árg. 1978 Renault 4 VAN F4 árg. 1974
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
Póstsendum
módclbúöiH
SUÐURLANDSBRAUT 12 SÍMI 32210
Nýkomin módei, stærð 1/25
!H. Scoutll
!H. Scoutii Offroad
IHScoutllSS
Kosningar í Baskahéruðum:
Þjóðemissinnar
unnu stórsigur!
—ósigur fýrir valdhafana í Madrid
Flokkur þjóðernissinnaðra Baska
vann mikinn sigur í fyrstu
kosningunum til héraðsþings eftir að
lög um aukna heimastjórn þeim til
handa voru santþykkt. Þegar nær öll
atkvæði i kosningunum í gær höfðu
verið talin í öllum þrem héruðunum í
Baskasvæðum Spánar kom í Ijós að
flokkur Baska fær 25 þingsæti á
héraðsþinginu af sextíu. Aðrir vinstri
sinnaðir þjóðernisflokkar fá i það
minnsta sautján þingsæti.
Miðdemókrataflokkurinn missti
mikið fylgi og fékk aðeins sex þing-
sæti. Þykir það mikill ósigur fyrir
stjórnina i Madrid en þetta er sá
flokkur sem Suarez forsætisráðherra
styðst einkum við.
Talið er að eftir að þessi úrslit eru
kunn muni Baskar þrýsta mun rneira
en áður á stjórnina i Madrid um að
sjálfræði þeirra, samkvæmt hinum
nýju heimastjórnarlögum, verði flýtt.
Er búizt við því að slíkt muni valda
mikilli andstöðu nieðal hægri aflanna
i landinu og einnig hjá ýmsum yfir-
ntönnum hersins.
Margir í þessum hópi vilja sem
lengst halda í hið sameinaða spánska
ríki sem var mikið kappsmál hjá
Franco fyrrum einræðisherra á
Spáni.
Úrslitin i Baskahéruðununt eru
mjög á sömu lund og urðu i Anda-
lúsíu hinn 28. febrúar siðastliðinn.
Þá greiddi meirihluti kjósenda at-
kvæði með heimastjórn en ekki
komu nægilega margir á kjörslað til
að ákveðið væri að flýta heima-
stjórninni.
Talið er að Suarez forsætis-
ráðherra hafi nú hug á að taka
fulltrúa úr hópi frjálslyndari Baska
og Katalóníumanna inn i stjórn sina
Kosningar verða í Katalóníu hinn
20. þessa mánaðar. Þar er
velntegun einna niest á Spáni og
einnig hefur þjóðernishreyfing verið
þar einna sterkust. Katalónía naut
mikillar heimastjórnar áður en
Francó kom til valda. Þykja úrslitin i
Baskahéruðunum ekki benda til
mikils gengis stuðningsmanna
stjórnarinnar I Madrid i Kalalóníu.
Mikið fjör er nú komið i forkosningarnar i Bandarikjunum, sem haldnar eru áður en flokksþingin velja frambjóðendur sina.
Myndin er frá forkosningunum hjá demókrötum i New Hampshire.
Baráttan umforsetaembættid íBandaríkjunum:
Reagan sigraði
i Sudur-Karólínu
—Conally hættur og búizt við að Gerald Ford bætist brátt
íbaráttuna
John Connally, fyrrttm ríkisstjóri í
Texas, hefur tilkynnt að hann hafi
dregið sig út úr baráttunni fyrir að
verða forsetaframbjóðandi Repúblik-
anaflokksins. Gerðist þetta eftir að
úrslit i forkosningunum i Suður-
Karólínu voru kunn. Þar vann hann
aðeins 30% atkvæða þrátt fyrir ntikla
og kostnaðarsama kosningabaráttu.
Helzti keppinautur hans, Ronald
Reagan fyrrum ríkisstjóri í Kali-
forníu, fékk hins vegar 54% at-
kvæða. George Bush, fyrrum for-
stjóri CIA, fékk aðeins 15% atkvæða
í Suður-Karólinufylki. Getur verið að
það dragi nokkuð úr möguleikum
hans á góðunt árangri i forkosning-
unum á morgun.
Þá er barizt um 114 sæli á floksk-
þing repúblikana. Er það i suður-
fylkjunum þrentur, Flórida,
Alabama og Georgía.
Samkvæmt skoðanakönnunum
hefur Reagan nokkurt forskot i þess-
tim fylkjum en þó ekki þannig að
hann geti verið öruggur um sigur.
Hann,hefur nú unnið 62 fulltrúa á
flokksþingið af 998. George Bush
hefur 36, John Anderson 19 og
Connally hafði unnið I.
Ef Reagan vinnur i forkosningun-
um á morgun og einnig i forkosning-
untim í lllinois hinn 16. þessa ntán-
aðar er búizt við að Gerald Ford fyrr-
um forseti hugsi sér til hreyfings í
framboðsmálum. Mundi hann þá
reyna að tryggja sér fylgi hinna frjáls-
lyndari í Repúblikanaflokknunt.
Demókratar ganga einnig til kosn-
inga i Flórida, Alabama og Georgíu.
Þar er Jimnty Carter spáð öruggum
sigri.
BÍLABANKINN
HEFUR OPNAÐ
Nýir eigendur. Vantar bila á söiuskrá og í sýningarsal.
Leggjum áherzlu á góða þjónustu.
BÍLABANKINN SF.
Borgartúni 29
Sími 28488.