Dagblaðið - 17.03.1980, Side 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. MARZ 1980.
DB á ne ytendamarkaði
Leysir úr hvers kyns vanda
Spurt um allt milli himins og jarðar hjá Leiðbeiningarstöð húsmæðra
„Það er nánast spurt um allt milli
himins og jarðar. 1 dag hringdi t.d.
kona sem spurði hvað hún ætti að
gera við þrjátíufætta pöddu sem hún
rakst á á eldhúsgólfinu og önnur sem
var í vandræðum með orð í sænskri
prjónauppskrift,” sagði Sigríður
Kristjánsdóttir, sem tekið hefur við
Leiðbeiningarstöð húsmæðra af
nöfnu sinni Haraldsdóttur.
I.ciðbeiningarslöð húsmæðra cr
rekin á vegum Kvenfélagasambands
Íslands að Hallveigarstöðum og
leysir úrvandmálum milli kl. 3 og 5 á
daginn.
Erfittum val
á heimilistækjum
„Annars er mikið spurt um
leiðbeiningar um val á
heimilistækjum. Það er ákaflega
erfitt fyrir okkur að gefa
leiðbeiningar því við getum ekki bent
á ákveðnar ' vélategundir. Við
verðum að styðjast við rannsóknir
sem gerðar hafa verið á heimilis-
tækjum á Norðurlöndum. Annars
eru þær rannsóknir að hætta og oft á
tíðum eru þau merki sem þar eru í
gangi ekki til hér á landi.
Einnig er mikið spurt um hvernig
eigi að ná úr blettum. Auðveldara er
að gefa leiðbeiningar um slíkt,”
sagði Sigríður.
Sigriður Kristjánsdóttir hefur tekið viö af nöfnu sinni Haraldsdóttur og svarar i
simann milli ki. 3 og 5 á daginn hjá Leiðbeiningastöð húsmæðra.
DB-mynd Bjarnleifur.
í ritstjórn
Húsfreyjunnar
Hún er öllum hnútum vel kunnug
hjá Kvenfélagasambandi íslands.
Hún hefur verið í ritnefnd Hús-
freyjunnar unt tultugu ára skeið og
ritstjóri sl. tiu. ár. Kvenfélaga-
Upplýsingaseðill
til samanburöar á heimiliskostnaöi
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Pannig eruö þér orðinn virkur þátttakandi í upplýsingamiðlun
meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið
þér von i að fá nytsamt heimilistæki.
Kostnaður i febrúarmánuði 1980.
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.
m ifftiv
Fjöldi heimilisfólks
sambandið hefur annazt útgáfu á
ákaflega fróðlegum bæklingum um
sitthvað sem viðkemur heimilinu og
heimilisrekstri. Má nefna bæklinga
um glóðarsteikiningu, gerbakstur,
sjálfvirkar þvottavélar, hreindýra-
kjöt, nútírna mataræði, mat og hrein-
læti og síðasti bæklingurinn fjallar
um mataræði barna 1—7 ára. Þetta
eru ódýrir bæklingar með mjög
greinargóðum upplýsingum sem
settar eru fram á auðskiljanlegan
hátt. Bæklingarnir fást á skrifstofu
Kvenfélagasambandsins að Hallveig-
arstöðum við Túngötu.
Við á Neytendasíðunni leitum oft
til Leiðbeiningarstöðvarinnar þegar
okkur verður svarafátt, sem kemur
æði oft fyrir, og hefur jafnan verið
greitt úr spurningum okkar.
Við bjóðum Sigríði Kristjáns-
dóttur velkomna til starfa og
þökkum jafnframt Sigríði Haralds-
dóttur fyrir ágætt samstarf á
umliðnum árunr.
-A.Bj.
38
FORSUDAII.
Kjöt sem notað er í samsoðna
rétti, til dæmis kálrétti, er ekki lagt í
bleyti í rennandi vatni eins og í fyrri
kafla forsuðu. Það er sett út í
sjóðandi vatn og suðunni hleypt upp
á því. Síðan er það skolað vandlega i
köldu vatni. Sori kjötsins næst ekki.
úr því nema með forsuðu en
nauðsynlegt er að ná honum burt
fyrir samsuðu með tií dæmis káli. -
Laukur og kál er aftur forsoðið til að
ná burt óheppilegum bragöefnum.
Laukurinn og kálið er þá sett yfir til
suðu i köldu vatni og fært upp úr
soðinu við suðu.
Grænkál og spínat er sett yfir til
suðu i sjóðandi vatni og þegar sýður
erkálið fært upp úr og skolað til þess,
að það haldi sínum græna lit. Næst
segir af blásuðu.
Megrunarmatur í
rauninni ekki
annað en hollur
og góður matur
— en það ber að forðast sætindi og mikla fitu,
borða sig aldrei pakksaddan og hreyfa sig meira
sleppa ekki úr máltíðum, borða allar
máltíðir en bara minna en ella.
Þá má einnig benda fólki á að
hreyfa sig meira en það gerir vana-
lega ef það langar til að losna við
aukakíló. Mælt er t.d. með
rösklegum gönguferðum og sundi.
-A.Bj.
Sannfærð að
búreiknings-
hald leiðirtil
spamaðar
„Um leið og ég sendi janúar-
seðilinn vil ég þakka fyrir fróðleik og
uppskriftir. Ég hef hugsað mér að
verða virkur þátttakandi því ég er
alveg sannfærð um að búreiknings-
hald er til sparnaðar.
Að visu er janúar ekki mjög hár
hjá mér núna. Það kemur til af þvi að
kjöt og fisk þurfti ég ekki að kaupa.
En febrúar bætir það sjálfsagt upp,
þvíkomiðeraðstórinnkaupum.. .”
segir m.a. í bréfi frá H.F.R. á
Akureyri. Meðaltal í mat og
hreinlætisvörum er rúml. 25 þúsund
kr. á mann en fjölskyldan er þriggja
manna. „Annar” kostnaður er hins
vegar nærri 300 þúsund kr.
Við erum sammála þessari
Akureyrarhúsmóður að það leiðir
óhjákvæmilega til sparnaðar að
skrifa öll útgjöldin niður.
-A.Bj.
„Ég vil taka það fram um liðinn
matur og hreinlætisvörur, að frúin
var ekki heima, en þrátt fyrir það
finnst mér þetta vera lágt,” segir í
bréfi B.B. í Reykjavík er kom með
febrúarseðlinum. B.B. er með 30.199
kr. að meðaltali á mann en fjölskyld-
an er tveggja manna. Liðurinn ,,ann-
að" hljóðar upp á 282.579 kr.
„í liðnum „annað” er flugfar sem
kostaði 52.200 kr. og hleypir það
liðnum upp.
Við hjónin þökkum ykkur góða
Neytendasíðu.
P.S. Hvernig væri að koma með upp-
skriftir að megrunarmat?”
Veitir víst ekki
af megrunarmat
Fleiri hafa beðið um uppskriftir
að megrunarmat. Og víst er um það
að margir þurfa á slíkum mat að
halda —
Annars er megrunarmatur ekki
svo mjög frábrugðinn öðrum|mat,að
öðru leyti en því að hann er sykur-
snauðari og ekki eins feitur og
venjulegur matur. Hins vegar er
engum hollt að borða mikinn sykur,
borða mikla fitu o.s.frv., þannig að
hollur og góður matur er
raunverulega megrunarmatur um1
leið.
Óhætt er að ráðleggja fólki sem
vill megra sig að borða allan algengan
mat en sleppa sykri, kökum, gos-
drykkjum (nema sykurlausum eða
sykursnauðum) og mikilli fitu og
gæta þess umfram allt að borða ekki
of mikið. — Þá er einnig ráðlegt að