Dagblaðið - 17.03.1980, Side 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. MARZ 1980.
5
Baráttan um steinuliarverksmiðjuna:
NEFND Á NEFND
OFAN OG SVO
KEMUR ÖNNUR
— iðnaðarráðuneytið kannar hentugasta staðarval
steinullarverksmiðjunnar
Iðnaðarráðuneytið skipaði á föstu-
dag nefnd til að kanna hugsanlega
stofnun steinullarverksmiðju, sem til
greina kemur að koma á fót á Sauð-
árkróki eða á Suðurlandi, þá væntan-
lega nærri Þorlákshöfn.
Almennri könnun á hagkvæmni
slikrar verksmiðju er nú lokið en hún
var framkvæmd af Iðntæknistofnun
íslands en kostuð af iðnaðarráðu-
neytinu. Nefnd þeirri er skipuð var i
gær er falið að kanna málið nánar og
siðan að gera tillögur til ráðuneytisins
um forsendur fyrir samanburði vegna
staðarvals steinullarverksmiðjunnar
— það er Sauðárkróks eða nágrenni
Þorlákshafnar. Aðilar á báðum þess-
um stöðum hafa lýst fullum hug
sínum til að reisa slíka verksmiðju og
þá með þátttöku rikisins.
Þessi nefnd á að gera tillögur um
forsendur fyrir staðarvali eins og
áður sagði. Síðan mun ætlunin að
skipa aðra nefnd til eða endurskipa
sömu nefnd til að hafa umsjón með
gerð samanburðarkönnunar á stað-
setningu. Formaður nefndarinnar er
dr. Vilhjálmur Lúðvíksson fram-
kvæmdastjóri Rannsóknarráðs rikis-
ins. Við skipan manna i nefndina var
þess gætt að sem flest sjónarmið
ntundu koma fram, eins og til dæmis
byggðasjónarmið, að því er kom
fram hjá Hjörleifi Guttormssyni
iðnaðarráðherra á blaðamannafundi
á föstudag. -ÓG
Lögregla og slökkvilið brugðu skjótt við á laugardag er
brunaboði á Hótel Loftieiðum gaf til kynna að kviknað vœri í.
Stutt varaðfara, sérstaklega fyrir slökkviliðið, sem erínœsta
nágrenni hótelsins. Betur fór þó en á horfðist, því það var
aðeins brunaboðinn sem gaf rangar upplýsingar en eldurinn
var enginn. DB-mynd: Ragnar Th.
g73j,
Kvartmfludrekinn
og öldungurinn
— hlið við hlið á bflasýningu um helgina
Bifreiðaiþróttaklúbbur Reykjavíkur
efndi til bílasýningar um helgina í húsa-
kynnum Bílasölunnar Brautarinnar.
Sýndir voru allir helztu rallbílarnir,
kvartmilubíll sem er til hægri á mynd-
inni og gamall og glæsilegur farkostur
sem stendur við hlið kvartmiludrekans.
Auk þess sýndu bilaumboð nokkra
glænýja vagna.
Hafsteinn Hauksson, félagi i Bif-
reiðaíþróttaklúbbnum, sagði við DB að
starfsemi klúbbsins hefði verið kynnt á
sýningunni. Næst á dagskrá klúbbsins
væri að kenna rallmennsku á sérstök-
um rallökuskóla um mánaðamótin
mai/april. Bæði verður bóklegt og
verklegt nám fyrir nemendur og eftir
það ættu menn að vera færir i flest röll.
- ARH
m
LI r
Komið
og gerið
reyfarakaup
LAUGAVEGI 103
pjÍM Q \ m ih
ip ff r
REYKJAVIK
Voríð að koma á Eskifirði:
Blómin springa
út í görðum
Blóm eru farin að springa út í
görðum á Eskifirði og litlu munar
að hægt sé að taka upp rabarbara i
grautar- eða súpulögun. Elztu menn
niuna ekki eftir eins góðu veðri og verið
hefur það sem af er þessum vetri. Eldra
fólk óttast þó, að enn eigi eftir að gera
slæmt kuldakast. Hefur það því undir-
búið sig með torf tilbúið til að setja yfir
útsprungna blómlauka sina.
A.SI/Regína, Eskifirði.
Búrfellsvirkjun:
Vigdís á toppnum
Starfsmenn hjá Búfellsvirkjun efndu
til skoðanakönnunar um fylgi fram-
bjóðenda til forsetakjörs. Úrslit urðu:
Vigdís Finnbogadóttir 25 atkvæði
Guðlaugur Þorvaldsson I2alkvæði
Pétur Thorsteinsson 8 atkvæði
Albert Guðmundsson 6 alkvæði
Auðir seðlar 1, ógildir 0.
Aðrir fengu ekki atkvæði.
- ARH
SKIPPER
siglinga og fiskileitartæki frá SIMRAD
lausn sem skipstjóranum líkar!
SKIPPER 802 8 tommu þurrpappír, 4 aðalsvið að 2100 metrum, Ijóstölu dýpisteljari innbyggður, rofi milli metra,
faðma og fet. Spenna 10,5 — 48 volt jafnstraum eða 220 volt riðstraum, 750 watta sendiorka.
SKIPPER 603 6 tommu þurrpappír, 4 aðalsvið að 1100 metrum, sambyggður Ijostölu dýpisteljari, 300 watta sendi-
orka, spenna 11—40 volt jafnstraumur.
SKIPPER 701 4 tommu þurrpappír, dýptarsvið að 560 metrum, 100 watta sendiorka, 50 kilóriða tíðni, 11-40 volta
jafnstraumur.
SKIPPER DX 60 rása Duplex örbylgjustöð, sendiorka 25 wött og 1 watt, auðveld að koma fyrir á vegg, borði eða i loft,
24 volta jafnstraumur.
SKIPPER SJÁLFSTÝRING Sjálfstýring i allar gerðir báta, hentugar við allar gerðir kompása.
FRIDRIK A..JÓ.VSSO.V HF.
BRÆÐRABORGARSTIG 1
SIMAR 14135 - 14340