Dagblaðið - 17.03.1980, Blaðsíða 19

Dagblaðið - 17.03.1980, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. MARZ 1980. Þolinmæði skattgreið- enda eru takmörk sett Kjallarinn Það er ekki að undra þó margir beri kvíðboga fyrir hvernig nýju skattalögin muni leika skattborgar- ana, því flestum ber saman um að varla sé hægt með nokkurri vissu að sjá fyrir hver útkoman verður fyrr en eftir mitt ár þegar úrvinnsla framtala liggur fyrir. Þegar þetta er skrifað liggur enn ekki Ijóst fyrir hver skattstiginn verður, — og því óvissuástandið enn meira. Engu að síður er þessa dagana á Alþingi verið að knýja frani af a.m.k. nokkrum stjórnarsinnunt heimildarákvæði til sveitarfélaganna um aukið útsvar á skattgreiðendur urn 5,1 milljarð kr., ef heimildin verður fullnýtt. Krumla stjórnvalda í vasa skattgreiðenda Reynslan hefur sýnt að flest sveitarfélög hafa nýtt sér sambærilegt ákvæði í lögum um lekjustofna sveitarfélaga — og efalitið ntunu þau gera það áfram — þannig að hér er í reynd um að ræða auknar byrðar á skattgreiðendur. Enginn dregur í efa að mörg sveitarfélög hafa átl í fjárhagserfið- leikum, og nauðsyn er á að leita leiða til að rétta hlut þeirra. En þeim stjórnarsinnum sem nú leggja allt kapp á aukið útsvar til sveitarfélaga dettur ekki i hug að til sé önnur leið til að rétta hag sveitarfélaganna nema i gegnum vasa skattborgaranna. Við heyrum títt talað um fjárhags- erfiðleika sveitarfélaga og rikissjóðs. En þegar leysa á þá, þá er sífelll höggvið i sama knérunn — sótt í vasa skattborgaranna, og iðulega gleymist þá hjá stjórnvöldum að til er einnig ,annar vandi, en það eru fjárhags- erfiðleikar heimilanna vegna síauk- innar skattbyrði. Samræmist 5 milljarða útsvarshækkun stjór- narsáttmálanum? Það er reyndar fróðlegt fyrir stjórnarsinna að fletta upp i stjórnar- sáttmála sínum nú þegar þeir éru í þann mund að leggja aukið útsvar á landsmenn. En i kaflanum um kjara- mál stendur að alhuguð verði lækk- un útsvars á lægstu tekjum. — Og það vekur reyndar furðu að slíkt ákvæði stjórnarsáttmálans skuli hafa farið framhjá formanni Verka- mannasambandsins, Guðmundi J. Guðmundssyni, þegar hann nú er einn af þeim sem ganga í lararbroddi fyrir þvi að heimild fáist til útsvars- hækkunar. Og þess heldur þegar formaður Verkamannasambandsins lætur ekk- ert tækifæri ónotað til að kynria sig sem sverð og skjöld láglaunafólksinsj i Iandinu. — Það hefði farið betur á þvi, að hann athugaði það, að með því að gerast meðflutningsmaður slikrar tillögu var hann að skrifa upp á hækkun útsvars á láglaunatekjur. Ég er hrædd um að margt láglauna- fólk, sem treystir formanni Verka- ntannasambandsins vel fyrir að gæta hagsmuna sinna hrökkvi illilega við við slíka staðreynd. Guðmundur J. Guðmundsson hefur varla getað meint mikið nteð orðunt sínum um að nýju skattalögin væru heljarstökk út í náttmyrkrið, án þess að nokkur þekki afleiðingarnar. Þessi gjörð hans gefúr varla tilefni til að ætla að hann kviði svo mjög af- leiðingunum af stökkinu fyrir skatt- greiðendur, þegar hann kippir sér ekki upp við að skrifa upp á tillögu um 5 milljarða aukna skattbyrði — án þess að sjá fyrir hvar nýja skatta- lagastökkið endar. Hefði það verið nokkur goðgá fyrir formann Verka- mannasambandsins og fleiri skatt- glaða stjórnarsinna að doka ögn við og sjá hvar okkur ber niður i stökk- inu, áður en hlaupið er til með nýjar skattaálögur á landsmenn? Vandann má leysa án aukinnar skattbyrði l.jóst er hins vegar að finna verður leið til þess að leysa fjárhagsvanda sveilarfélaganna, en hann verður að leysa á annan hált en með nýjunt álögum á skaltgreiðendur. — Og það er vel framkvæmanlegt ef vilji er lil þess á Alþingi. Ég hefi lagl fram tillögu á Alþingi sem leysir fjárhagserfiðleika sveitar- félaga, án þess að lil komi nýjar álögur. Tillagan miðar að því að á yfir- standandi ári verði fjárhagsvandi sveitarfélaganna leystur á þann hátt, að þeir fái aukna hlutdeild í sölu- skatlstekjum, sem gefur tæpa 4,5 milljarða króna. Sveitarfélögin fá nú 8,9 milljarða af 123 milljarða sölu- skatlstekjum og er hér því um 50% aukningu á söluskattstekjum til sveitarfélaganna að ræða. Hér er þvi um timabundna tilfærslu á fjármagni að ræða niilli ríkis og sveitarfélaga. Auðvitað er Ijóst að verði þessi til- laga samþykkl þá skerðast tekjur rikissjóðs að sama skapi — ef þær verða þá ekki halaðar inn aftur á skattstiganum þegar hann sér dagsins Ijós. í fjárlagafrv. núverandi ríkis- stjórnar er um 5,2% hækkun að ræða auk 26,4% hækkunar á tekju- skötlum einstaklinga eða um 8 millj- arða frá fjárlagafrv. minnihluta- stjórnar Alþýðuflokksins. Ef tillagan um þessa lekjutilfærslu milli ríkis og sveitarfélaga nær fram að ganga, ntun að sjálfsögðu ekki standa á okkur alþýðuflokksmönn- um að leggja frani tillögur um niður- skurð á ntóli við afgreiðslu fjárlaga — til að komast hjá fyrirhugaðri úl- svarshækkun á landsmenn. Megin- málið er einfaldlega það að komast hjá þvi að leysa vanda sveitarfélag- anna á kostnað skattgreiðenda — þegar önnur leið er fær sem skilar santa árangri fyrir sveitarfélögin. Eru hagsmunir skatt- greiðenda gleymdir? Þessi tillaga unt tilfærslu á fjár- ntagni kom stjórnarsinnunt úr veru- Jóhanna Sigurðardóttir legu jafnvægi og gátu þeir ekki gagn- rýnt hana nteð efnislegunt röktim. Þegar hún var til umræðu á Alþingi töluðu suntir stjórnarsinna tim leik- sýningu af minni hálfu, en það er iðu- lega á Alþingi gripið til orðanna leik- sýning og auglýsingaskrum, þegar efnisleg rök erti engin við mörgunt til- lögunt okkar alþýðuflokksmanna. Ég læt ntér þessi orð í léttu rúnii liggja, en læt skattgreiðendum eftir að dænta livort hér sé um leiksýningu að ræða — en eitt er vist að launaumslag þeirra mun léttast verulega el' þessi svokallaða „leiksýning” skilar ekki þeint árangri sent aðer stefnl. L.jóst ntá vera af því sem ég hcfi hér að framan sagl, að til er l'ær leið til að leysa vanda sveitarlclaganna, án þess að auka skattbyrðina frekar. — Ég hef trú á þvi að landsmcnn nuini fylgjasl vel með liver niður- slaða þessa máls verður á Alþingi. En það virðist ekki vera vanþörf að minna formann Verkamannasam- bandsins á að þeir kjósendur scm veittu honum brautargengi inn á Al- þingi veittu honum það ekki siður til að gæta hagsmuna skatlgreiðenda en sveitarfélaga. — Hagsmunir. þeirra gleymast oft, nema rélt l'yrir kosn- ingar. Jóhanna Sigurðardóllir alþingismaður. • „Ákvæði stjórnarsáttmálans hefur farið framhjá formanni Verkamannasam- bandsins, Guðmundi J. Guðmundssyni, þegar hann nú er einn af þeim, sem ganga í farar- broddi fyrir því, að heimild fáist til útsvars- hækkunar.” Handarniif fyrir stjórnmálamenn Vinsæll, bandariskur harmóniku- leikari, Anthony Monde, kvartaði sáran yfir þvi að þegar liann lék opin- berlega þurfti hann að taka í höndina á hundruðum ánægðra áheyrenda. „Þetta gerði það að verkum að ég var svo auniur í hendinni að ég gal ekki leikið í þrjá daga,” sagði hann. Monde þessi er sérlega uppfinningasamur maðúr. Hann gerði sér lítið fyrir og l'ann upp handarhlíf til þess að nola þegar viðkomandi þarf að taka í margar útréttar hendur. Hlífin er úr vinyl, gúmmisvampi, með stálgrind. Þelta hlífir ekki aðeins hendinni heldur gefur mjög traustvekjandi handtak, sem getur komið sér vel fyrir stjórn- málamenn. Harmónikuleikarinn gaf Margréti Thatcher, forsætisráðherra Breta, svona hanzka í fyrra, sem hún hefur væntanlega notað í árangursríkri kosn- ingabaráltu sinni. Nýlega gaf hann varaforseta Bandaríkjanna, Waller Mondale, sams konar hanzka. Anthony Monde, uppfinningasamur harmóníkuleikari, með hanzkann eða handarhlifina sem hann hefur fundið upp. I Ameríku hafa þeir „pungrottudag” eins og mæðra- og feðradag í Bandaríkjunum eru alls konar sér- stakir dagar sem haldnir eru meira og rninna hátíðlegir, eins og t.d. mæðra- dagur, pabbadagur, Valentínusar- dagur, tengdamæðradagur. Siðasti „dagurinn” sent komið hefur veriðá er „pungrottudagur” (Male chauvanist). Þykir ntörgum að þetta sé komið út í algjörar öfgar og nú sé komið nóg. Stungið var upp á að halda sérstakan „ekki að gera handtak dag" ár hvert. Þá er ætlazt til þess að allir haldi að sér höndum og geri ekki nokkurn skap- aðan hlul. Margir hafa komið þessum og hinunt „dögunum” á til þess að græða á heillaóskakortum, sælgæti og blómum. Hvort einhverjum lekst að græða á slíkunt allsherjar iðjuleysisdegi skal ósagt látið. Úrvafíð er „RENNDU „Pigalle“ Fimm áttunda hljómborð C-C Fullkomið sjálfspilarakerfi, sjálfvirkur bassi og trommuheili. Sjö raddir: Flauta, Horn, Tromp- ett, Wa Wa, Fiðla, Píanó og Hapsicord. Inni- byggður 20W magnari og tveir hátalarar. Inn- stunga fyrir heyrnartól. A þetta hljóðfæri er hægt aö læra líka eins og venjulegt orgel og nota venjulegar orgelnótur. Ótrúlega lágt verð. HAMMOND Vegna hagstæðs gengis dollaranns eru þessir Rolls Roycar orgelana nú á mjög hagstæðu veröi. Þau eru meó mjög fullkomnu sjálfvirku kerfi, „heil hljómsveit með einum fingri“ og hinn frábæra Hammondhljóm þekkja allir. hjá okkur VIDÍRÍN" Fullkomiö sjálfsspilkerfi, eins fingurs spila- kerfi m.m. Strengjasveit, rafmagnspíanó og hapsicord. Mjög góður orgelhljómur. Ein bestu kaup á markaónum. Bjóðum nú á lækkuðu verði Kimball pfanó og flygla. Amerisk gæðavara. HUÓÐFÆRAVERZLUN FRAKKASTÍG16 SÍM117692 I .1 >-Ji «»i linini i *. » ir< 'i 3 Á n i í I fc M

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.