Dagblaðið - 17.03.1980, Side 26

Dagblaðið - 17.03.1980, Side 26
26 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. MARZ 1980. - Spáfl er hœgri breytílegri átt á land- inu í dag. Vffla láttskýjafl inn til lands- ins. Klukkon sex í morgun var léttskýj- afl og —3 stig í Reykjavftt, Gufuskálar —3 stíg og skýjafl, Galtarviti 0 stig og lóttskýjafl, Akuroyri —1 stíg og al- skýjafl, Raufarhöfn —1 og hoiflríkt, DaLatangi 2 stíg og lóttskýjafl, Höfn f Hornafirfli —1 stig og léttskýjafl, Stórhöffli I Vestmannaeyjum 1 stíg og heiflrfkt Þórshöfn í Færeyjum alskýjafl og 5 stig, Kaupmannahöfn háifskýjafl og 0 stig, Osló —3 stíg og lóttskýjað, Stokkhólmur —7 stig og hálfskýjafl, London abkýjafl og 1 stíg, Hamborg vantar, París skýjað og —3 stig, Madrid skýjafl og — 1 stig, Lissabon 10 stíg og háKskýjafl og New York 3 stíg og skýjafl. Andlát Stefán F.iríksson, sem lézt 3. marz sl., var fíeddur 3. maí 1926 á Sveinsstöðum i Lýtingsstaðahr. i Skagafirði. Foreldrar hans voru Rut Ófeigsdóttir og Eirikur Einarsson. Ólst hann upp í Skagafirði til ellefu ára aldurs er hann flutti með foreldrum sínum og systkinum til Akureyrar, þar sem hann bjó siðan allan sinn aldur. Hann vann framan af við ýmis störf en gerðist umboðs- og af- greiðslumaður Morgunblaðsins á Akureyri árið 1962. Vann hann við það starf til dauðadags. Eftirlifandi eigin- konu sinni, Jódísi Kristínu Jósefs- dóttur, kvæntist hann árið 1950. Eign- uðust þau tvö börn, Eirík sem er kvæntur og búsettur á Akureyri og Huldu, sem er gift kona og búsett í Svi- þjóð. Stefán er jarðsunginn frá Akur- eyrarkirkju í dag kl. 13.30. I.úövík Kristján Sigurðsson, Goðheim- um I8, sem lézt 5. marz sl., verður jarðsunginn i dag kl. 15.00 frá Foss- vogskirkju. Guðrún Þorsteinsdóttir, Keldulandi I, var jarðsungin frá Fossvogskirkju i morgun. Illlllllllllllllllllll Teppahreinsun Lóin. Tökum að okkur hreinsun á teppum fyrir heimili og fyrirtæki, einnig stigahús. Við tryggjum viðskiptavinum okkar góða þjónustu með nýrri vökva- og sogkraftsvél, sem aðeins skilur eftir 5 til 10% af vætu í teppinu. Uppl. í símum 26943 og 39719. Hreingerningafélagið Hólmbræður. Unnið á öllu Stór-Reykjavíkursvæðinu fyrir sama verð. Margra ára örugg þjónusta, einnig teppa- og húsgagna hreinsun með nýjum vélum. Símar' 50774 og 51372. Betúel Jón Betúelsson Görðum, sem lézt 6. marz sl., var fæddur 17. april 1897 i Höfn i Hornvík. Foreldrar hans voru Anna Guðmundsdóttir og Betúel Betúelsson bóndi og kaupmaður. Árið 1919 kvætnist hann Kristjönu Jósefs- dóttur frá Görðum i Aðalvík þar sem þau stunduðu búskap þar til þau flutt- ust til Reykjavíkur árið I947. Gerðist Betúel Jón þá starfsmaður Landssima íslands, þar sem hann vann um tuttugu og fimm ára skeið eða meðan honum entist heilsa. Þau hjón eignuðust fimm börn og einn fósturson og eru þau öll uppkomin og á lifi. Betúel Jón er jarð- sunginn frá Fossvogskirkju i dag kl. 13.30. Svend A. Johansen stórkaupmaður andaðist í Kaupmannahöfn 11. marz sl. Jarðarförin hefur farið fram. Ingveldur Guðfinna Baldvinsdóttir', Skorhaga Kjós, lézt í Landspitalanum 15. marz sl. Kristinn M. Þorkelsson bifreiðarstjóri, Krummahólum 4, áður Stórholti 30, verður jarðsunginn á morgun, þriðju- dag, kl. 13.30 frá Fossvogskirkju. Bogi Sigurðsson, Tómasarhaga 40, sem andaðist 14. marz, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 19. marz kl. 3 síðdegis. Aðaifundir Aðalfundur knattspyrnudeildar Stjörnunnar f Garðabæ verður haldinn fimmtudaginn 20. marz næstkomandi. Hefst hann í barnaskólanum klukkan 20.00. Aðalfundur Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Njarðvík verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu, mánudaginn 17. marz kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf, önnur mál. Blár mánudagur Undanfarið hefur jass verið að endurlífgast á Islandi. Jassistar hafa dustað ryk af hljóðfærum sinum og hópazt til jassleiks á ýmsum stöðum borgarinnar. en áheyrendur þyrpzt að hvaðanæva. Nú hefur verið ákveðið að ná saman á einn stað þvi bezta sem verið hefur á boðstólum i islenzkum jassi, og halda konsert og danssýningu i Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld. mánudag, undir heitinu Blár mánudagur. Til að jass inn renni auðveldar niður verða gestum bornar rauðar veigar ásamt ostaréttúm, og verða þær veitingar inni faldar i miðaverði. Þeir sem sjá um hljóðfæraleik veröa: Tríó Gvendar Ingólfssonar, sem að þessu sinni verður skipað fjórum hljóðfæraleikurum: Árni Scheving, víbrafónn; Guð mundur Ingólfsson, pianó; Gunnar Hrafnsson, bassi og Guðmundur Steingrímsson. trommur. Þá mun koma fram hljómsveit skipuð: Graham Smith. fiöla; Gestur Guðnason, gítar; Richard Corn, bassi og Jónas Björnsson, trommur. Hápunktur kvöldsins verður dansatriði lslenzka dansflokksins, sem dansa mun frumsamda jassdansa. Einnig er búizt við góðum gesti sem leika mun listir sinar. Af þessu má enginn missa, sem vill fá góða skemmt un og fylgjast með. og fólki er bent á að hægt er að ráðstafa borðum i síma 19636. Danskur píanóleikari heldur tónleika í Norræna húsinu Mánudaginn 17. marz kl. 20.30 heldur danski pianó leikarinn Eyvind Moller tónleika i samkomusal Norræna hússins. Eyvind Moller fæddist 1917, nam við Konunglega tónlistarháskólann i Höfn, m.a. hjá Victor Schioler, i Paris hjá Lazarre Levy og Yves Nat og hjá Edwin Fischer í Sviss. Fyrst kom hann fram 1941 og frá 1945 hefur hann verið kennari við tón- listarháskólann í Kaupmannahöfn. Eyvind Moller hefur fariðfjölda tónlistarferða um Evrópu, bæði sem einleikari og undirleikari og sém kammertónlistar maöur og leikið inn á fjölmargar hljómplötur. Hann fór einnig til Ameriku 1976 og lék þá m.a. sem einleik ari með kammerhljómsveit Chicago-borgar. Hann hefur tvívegis fengið Det danske grammofonpris. Á tónleikunum í Norræna húsinu leikur hann verk eftir Carl Nielsen, Beethoven (sónötu i As-dúr, op. 110). Chopin og Mozart. Kristilegi þjóðarf lokkurinn andvígur öllum vinveitingaleyfum Á fundi, sem fulltrúar Kristilegu þjóðarflokkanna i Noregi, Finnlandi og Danmörku á þingi Norðurlanda ráðs sátu i Hallgrimskirkju kom fram að þeir berjast mjög fyrir auknum hömlum á áfengisdreifingu. Lars Korvald, fyrrum forsætisráðherra Norðmanna, lýsti því svo að þeir væru algerlega andvigir öllum vínveitingaleyfum („Konsekvent imod alle bevillinger."). Þá lýsti finnski fulltrúinn andstöðu þeirra við frjálsa ölsölu, að því er segir i frétta tilkynningu frá Áfengisvarnaráði. Jökarannsóknarfélag íslands Fundur verður haldinn i Domus Medica þriðju daginn 25. marz 1980 kl. 20.30. Fundarcfni: I. Sig finnur Snorrason jarðfræðingur flytur erindi með skuggamyndum. Jöklar á Mýrum og Vatnsdalslón. 2. Kaffidrykkja. 3. Sigurður Þórarinsson sýnir skuggamyndir af hafis við Island o.fl. Stjórnin. Kvenfélag Bæjarleiða Félagsmálafræðsla verður á fundinum þriðjudaginn 18. marz kl. 20.30 að Síöumúla 11. Mætið vel. Skipadeild Sambandsins Skip Sambandsins munu ferma til Islands á næstunni sem hér segir: ROTTERDAM: Helgafell...................................26/3 Helgafell.................................. 10/4 Helgafell...................................24/4 ANTWERP: Helgafell...................................11/3 Helgafell................................. 27/3 Helgafell...................................11/4 Helgafell................................. 25/4 GOOLE: Helgafell.................................. 13/3 Helgafell...................................24/3 Helgafell....................................8/4 Helgafell.................................. 22/4 KAUPMANNAHÖFN: Hvassafell..................................15/3 Hvassafell..................................28/3 Hvassafell..................................17/4 GAUTABORG: Hvassafell................................. 14/3 Hvassafell..................................26/3 Hvassafell..................................15/4 LARVIK: Hvassafell.............................. 13/3 Hvassafell..................................25/3 Hvassafell..................................14/4 SVENDBORG: Jökulfell...................................14/3 Hvassafell..................................27/3 Dísarfell....................................1/4 Hvassafell..................................16/4 „Skip"...................................Ca.20/4 HANGÖ/HELSINKI: Dísarfell...................................26/3 Dísarfell................................. 25/4 GLOUCESTER, MASS.: Skaftafell..................................18/3 Jökulfell....................................8/4 Skaftafell..................................18/4 HALIFAX, KANADA: Skaftafell..................................21/3 Jökulfell...................................11/4 Skaftafell..................................21/4 Thailandsfarar snúnir heim Fimm af þeim sex íslendingum sem héldu til Thailands í desemberbyrjun eru komnir aftur heim. Kom fólkið hingað frá Evrópu þar sem það hefur verið í hálfsmánaðar frii. Sjötti ís- lendingurinn, Jóhannes Reykdal skrif- stofustjóri DB, er hins vegar enn fyrir austan og verður til mánaðamóta. DB hafði í morgun samband við Björgu Viggósdóttur hjúkrunarfræð- ing sem er ein fimmmenninganna. Hún var þreytt eftir ferðina og varðist allra frétta af árangri hennar. í dag verður haldinn blaðamannafundur með fólk- inu og skýrt frá dvölinni eystra. - 1)S Sveitarstjórnarmál l.tbl. 1980 Sveitarstjórnarmál, l. tbl. 1980, flytur m.a. grein um Bláfjallafólkvanginn, eftir Kristján Benediktsson, borgarfulltrúa , Hrólfur Ásvaldsson, viðskipta fræðingur á Hagstofu Islands, skrifar um nýtt form undir ársreikninga sveitarfélaga, Zóphónias Pálsson, skipulagsstjóri rikisins, um nýja byggingarreglugerð og Guttormur Sigurbjörnsson, forstöðumaður Fast- eignamats ríkisins um fasteignamat og álagningu fasteignaskatta á árinu 1980. Finnbogi Jónsson, verkfræðingur i iðnaðarráðuneytinu á grein um þjóðhagslegt gildi orkusparnaðar, Björn Sveinbjörns- son, deildarverkfræðingur i Iðntæknistofnun Islands kynnirstaðlaog notkun þeirra, Hafsteinn Þorvaldsson. bæjarfulltrúi á Selfossi, skrifar um iðngarða á Selfossi, Haraldur Gislason, framkvæmdastjóri, um sorpeyðingarstöð Suðurnesja og Guðrún Halldórs dóttir skólastjóri ritar greinina. Námsflokkar Reykja vikur fjörutíu ára. Birtar eru fréttir frá sveitar stjórnum, samtöl við oddvita, og Helgi Már Halldórs son á grein um Sundskála Svarfdæla fimmtiu ára. Sitthvað fleira efni er i þessu tölublaði. sem er 64 blaðsiður að stærð með litmynd úr Bláfjöllum á kápu. GEIMGIÐ GENGISSKRÁNING Ferðamanna- NR. 48 — 10. MARZ1980 gjaidayrir Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala 1 Bandaríkjadollar 406,00 4» ‘ * • 407,00 447,70 1 Sterlingspund 900,60 902,80* 993,08* 1 Kanadadollar 350,20 351,10* 388,21* 100 Danskar krónur 7201,15 7218,85* 7940,74* 100 Norskar krónur 8116,75 8136,75* 8960,43* 100 Sœnskar krónur 9481,50 9504,90* 10455,39* 100 Finnsk mörk 10667,35 10693,65* 11763,02* C 100 Franskir frankar 9620,30 9644,00* 10608,40* 100 Belg. frankar 1386,85 1390,25* 1529,28* 100 Svissn. frankar 23525,30 23583,30* 25941,63* 100 Gyllini 20522,65 20573,25* 22630,55* 100 V-þýzk mörk 22502,45 22557,85* 24813,64* 100 Lfrur 48,44 48,56* 53,42* 100 Austurr. Sch. 3150,95 3158,75* 3474,83* 100 Escudos 831,95 834,05* 917,48* 100 Pesetar 600,15 601,65* 661,82* 100 Yen 163,71 164,11* 180,52* 1 Sérstök dráttarréttindi 524,85 628,14* * Breyting fré sfflustu skráningu. Sfmsvari vegna gengisskráningar 22190. Grípið simann gerið góð kaup Smáauglýsingar WBIABSINS Þverholti11 slmi 2 70 22

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.