Dagblaðið - 17.03.1980, Síða 32
Ólafur Ragnar Grímsson alþingismaður:
„ Tímabært aö athuga
skiptingu F\ug\eiöaf"
— milli Evrópuf lugs og innanlandsf lugs annars vegar og Atlantshafsflug hins vegar
„Ég tel fyllilega tímabært, að
stjórnvöld taki það til alvarlegrar at-
hugunar að Flugleiðum hf. verði
skipt aftur,” sagði Ólafur Ragnar
Grímsson alþingismaður í viðtali við
DB i morgun. Hann er einn þeirra
fjögurra þingmanna sem falið hefur
verið að fylgjast með og kanna
rekstur flugfelagsins. Hinir eru Guð-
mundur G. Þórarinsson, Sighvatur
Björgvinsson og Matthías Á. Mathie-
sen.
„Þróun mála undanfarna mánuði
og horfur benda til þess, að rétt sé að
skipta félaginu á milli innanlands-
flugs og Evrópuflugs annars vegar,
og Atlantshafsflugs hins vegar,”
sagði Ólafur Ragnar.
Hann bætti við: „Forsvarsmenn
Flugleiða hf. hafa lýst því yfir að
ekki sé ákveðið að félagið haldi
áfram Atlantshafsflugi eftir 1.
október.”
„Spurning er um það, hvort halda
eigi þvi áfram og hver eigi þá að ann-
ast það, þeir eða einhverjir aðrir. Það
er þvi brýnt athugunarefni, að ríkis-
stjómin og fulltrúar þingflokkanna
íhugi það á næstu vikum, hvort
stjórnvöld eigi að beita sér fyrir því
að Flugleiðum verði skipt upp. Enda
sýnist ýmislegt í starfsemi félagsins
inn á við og stjómun geta gert það
óhjákvæmUegt að rjúfa sameining-
una, sem gerð var fyrir hálfum ára-
tug,” sagði Ólafur Ragnar Grímsson.
Flugleiða-
mennfarnir
til viðræðna
við Lux-
emborgar-
menn
— stuðningur yfirvalda
íLuxemborgvið
Flugleiðir kannaður
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða hf., örn Ó. Johnson, stjórnar-
formaður, Sigurgeir Jónsson, stjórn-
armaöur og Birgir Guöjónsson,
deildarstjóri i samgönguráðuneytinu,
fóru til Luxemburg i gærmorgun til
viðræðna við flugmálaaðila þar.
Rætt verður við stjórnvöld á tiug-
málasviðinu og forystumenn flug-
mála og meðeigendur í sameigin-
legum flugrekstri fyrirtækja beggja
landanna, íslands og Luxemburg.
Viðræður þessar eru framhald af
fyrri viðræðum, sem nýlega fóru
frant. Ferðin er farin eftir að ríkis-
stjórnin samþykkti aö veita Flugleið-
um hf. rikisábyrgö fyrir rekstrarláni,
einum milljarði króna, meö ákveðn-
um skilyrðum.
í síðastliðinni viku var átta manna
vinriuhópur Flugleiðamanna og ráðu-
neytismanna í viðræöum við flug-
málayfirvöld í Luxemburg. Frá Flug-
leiðum voru Sigurður Helgason,
Alfreð Eliasson, örn Ó. Johnson og
Sigurgeir Jónsson. Frá samgöngu-
ráðuneytinu voru Brynjólfur Ingólfs-
• son, ráðuneytisstjóri og Birgir Guö-
jónsson, deildarstjóri. Frá utanrikis-
ráðuneytinu voru Hörður Helgason
ráðuneytisstjóri og Þorsteinn Ingólfs-
son sendiráðunautur.
Nú þegar er tap á Atlantshafsflug-
inu og fyrirsjáanlegt tap á þessu ári.
Þetta flug er því síöur en svo fjár-
hagslegur ávinningur fyrir Flugleiðir
hf. Hins vegar er þetta farþegaflug til
Luxemburg verulegur þáttur í flutn-
ingi ferðamanna, sem Luxemburgar-
menn sækjast mjög eftir.
Það sem meðal annars er verið að
ræða er hvort Luxemburgarmenn
vilja gefa okkur eftir gjöld af þessu
flugi og jafnvel lála Flugleiðum í té
stuðning, scm er tiltölulega útlátalítill
fyrir þá en mikils viröi fyrir Flug-'
leiöir. Sumt er hægt að gera með
stjórnvaldsákvörðun en annað þarf
lagaselningu til.
-BS.
Vorboðinn ijúfi er hann stundum kaUaður rauðmaginn þar eð hann kemur með vorinu. Þeirfyrir norðan og austan erufamir
að veiða rauðmaga af fiillum krafti og þessi fjúfifiskur er nú kominn i verzlanir hér i Reykjavik. VUhjálmur Hafberg fisksali I
Skipholti 70 heldur hér á rauðmaga sem kominn er alla leiðffá Raufarhöfh. KUóið af rauðmaganum kostar 600 krónur, ef
hanner hreinsaður kostar hann 2000 krónur. Hérfyrir sunnan eru þeir rétt að byrja veiðarnar svo ennþá er aðeins Utiðmagn
sem kemurfrá þeim. - ELA / DB-mynd Bjamleifur.
Flest farandverkafólkið yf irgefur Þórkötlustaði:
KVEÐJUHÓF ENDAR MEÐ ÓSKÖPUM
„Það stóð yfir kveðjuhóf hjá far-
andverkafólkinu í hraðfrystihúsinu
Þórkötlustöðum i Grindavík á föstu-
dagskvöldið, þegar hópur lögreglu-
manna ruddist þar inn. Einn farand-
verkamaðurinn fór ósköp rólegur til
þess að tala við þá, en var umsvifa-
laust snúinn niður í gólfið oghand-
járnaður. Þá kom þar annar farand-
verkamaður og mótmælti, en þá fór á
sama veg fyrir honum og þeim
fyrri.” Þetta sagði okkur Benedikt
Sverrisson, einn úr hópi farandygrka-
manna, sem fór ásamt fleirum t rútu
til Grindavikur á laugardagsmorgun-
inn til þess að sækja fólkið.
Tólf íslenzkir farandverkamenn og
allar údendu stúlkurnar níu hafa nú
yfírgefið verstöðina.
Benedikt sagði að alls hefðu þrir
verið teknir fastir þarna um kvöldið.
Þeir voru í fangelsinu í Grindavík um
nóttina og í þrjár klst. i handjárnum.
„Kvörtun kom frá Lofti Jónssyni,
skrifstofustjóra hjá Þórkötlustöðum
um að mikill hávaði væri. Hins vegar
höfðu þeir 5 sem enn eru i verstöð-
inni ekkert kvartað undan kveðju-
hófinu. Farandverkafólkið sagði að
allt hefði verið í rólegheitum þar til
lögreglan kom.
Jón Guðmundsson forstjóri fyrir-
tækisins horfði á aðfarir iögreglu án
þess að skipta sér af. Lögreglan var
ekki með handtöku- eða húsleitar-
heimild, en á undirstrikuðu skilti i
verbúðinni stendur:
Munið að þetta er ykkar heimili á
meðan þið búið hér,” sagði Benedikt
aðlokum. EVI.
frfálst, áháð dagbJað
MÁNUDAGUR 17. MARZ 1980.
Skákmótið í Lone Pine:
Jón L. sigr-
aðiífyrstu
umferð
— Brown tapaði fyrir 14
ára janda sínum
Jón L. Árnason sigraði stórmeistar-
ann Christiansen frá Bandarikjunum í
fyrstu umferð alþjóðlega skákmótsins i
Lone Pine i Kaliforníu. Margeir Pét-
ursson gerði jafntefli við Torre. Þau
úrslit vöktu þó mesta athygli í fyrstu
umferðinni að Brown stórmeistari tap-
aði fyrir 14 ára landa sínum Benjamin
og Miles stórmeistari tapaði fyrir Fedo-
rovicich frá Bandarikjunum.
í samtali DB við Jón L. Árnason í
morgun sagði hann að þetta væri mjög
sterkt mót með tuttugu og tveim stór-
meisturum, tiu alþjóðlegum ineisturum
og tiu titillausum skákmönnum.
Meðal stórmeistara má nefna Bent
Larsen frá Danmörku, Geller og Bala-
shov frá Sovétríkjunum. Ghcorgiu frá
Rúmeniu, Miles frá Englandi, Brown
slaviu og Torre frá Filippseyjum. Flest-
ir þessir kappar unnu í fyrstu umferð
nema þeir Brown og Miles.
Tefldar verða niu umferðir á skák-
mótinu í Lone Pine. Lýkur mótinu i
næstu viku. Að sögn Jóns L. Árnason-
ar eru aðstæður sæmilegar og allar
horfurá skemmtilegu móti. -Ó(í.
Starfshópur á vegum
iðnaðarráðuneytis:
Æskilegt að
minnka f lotann
um þriðjung
Núverandi floti fiskiskipa okkar er
alltof stór, og rétt að minnka hann um
þrjátíu af hundraði, segir í skýrslu
starfshóps um skipasmíðaiðnaðinn,
sem hefur starfað á végum iðnaðar-
ráðuneytisins.
„Fiskiskipafloti, sem nýtist ekki til
fulls, táknar hærra fiskverð, lægra
gengi og lélegri lífskjör þjóðarinnar en
ella. Því er afar mikiivægt, að sem mest
samræmi sé milli afkastagetu fiski-
skipaflotans og afrakstursgetu fiski-
stofnanna,” segir starfshópurinn.
„Núverandi floti fiskiskipa er um
104 þúsund brúttólestir og endurnýjun-
arverð hans um 520 milljarðar króna.
Hagrænum og félagslegum markmið-
um fiskveiða er vel fullnægt með 75
þúsund brúttólesta flota, heppilega
samsettum, á endurnýjunarverði 375
milljarðar króna,” segir starfshópur-
inn. „Óskynsamlegt er þvi að endur-
nýja um 30% af þeim flota, sem íslend-
ingar eiga nú. Er hér um að ræða flota,
sem kæmi til með að kosta 145 miilj-
arða að endumýja.” -HH.
LUKKUDA6AR:'
16. MARZ: 23355
Kodak Pocket A1 myndavél
17. MARZ: 20797
Kodak Pocket A1 myndavél
hringu
I
J
\
1