Dagblaðið - 21.04.1980, Síða 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. APRÍL 1980.
19
íþrótti
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Evrópumótið í badminton í Hollandi:
Delfs Evrópumeistari
Kristín í þriðju umferð
Heimsmeislarinn hér á árum áður,
Fiemming Delfs, Danmörku, geröi sér
lítið fyrir og sigraði landa sinn Morten
Frost i úrslitum i einliðaleik karla á
Evrópumeistaramótinu í badminlon i
Gröningen í gær. Hélt því Evrópu-
meistaratitli sínum 1976 og 1978.
Miklar sveiflur voru i leiknum. Delfs
sigraði 15—5, 1—15 og 17—14.
einliöaleik kvenna varð Liselotte
Blumer, Sviss, Evrópumeistari.
Sigraði Anette Börjesson, Svíþjóð, i
úrslitum 11—4 og 11—6. Danski
Evrópumeistarinn Lena Köppen, Dan-
mörku, gat ekki variö titil sinn vegna
meiðsla í baki.
Kristín Magnúsdóttir komst í þriðju
umferð í einliðaleik kvenna. Sigraði
fyrst pólska stúlku og lék síðan í ann-
arri umferð við Anne Svarstad. Noregi.
Fyrri hrinan var mjög jöfn. Kristín
sigraði 12—11 en í þeirri síðari hafði
hún algjöra yfirburði. Vann með 11—2
og var þar með komin í þriðju umferð.
Langbezti árangur íslendings i
badminton á alþjóðlegu móti. í 3.
umferð lék Kristín við eina kunnustu
badmintonkonu heims, Jane Webster,
Englandi, og beið þar skiljanlega lægri
hlut. Webster sigraði með II—2 og
11—5. í undanúrslitum tapaði Webster
svo heldur óvænt fyrir Anette Börjes-
son, Sviþjóð, 11—5, 5—11 og 11—2.
I fyrstu umferð í tviliðaleik kvenna
léku þær Kristín Magnúsdóttir og
Kristín Berglind Krist jánsdóttir við
Karin Lindquist og Lenu Axelsson, Sví-
þjóð. Sænsku stúlkurnar sigruðu 15—3
og 15—3.
í fyrstu umferð í tviliðaleik karla
sigruðu Piet og Rob Ridder Hollandi,
Sigfús Ægi Árnason og Sigurð
Kolbeinsson 15—3 og 18—14. Paikin
og Samarin, Sovétríkjunum, sigruðu
Brodda Kristjánsson og Guðmund
Adolfsson 15—2og 15—4 og þar með
var þátttöku íslendinganna lokið i tví-
liðaleiknum.
í undanúrslitum í einliðaleik karla
sigraði Morten Frost landa sinn Svend
A-sveit SR
meistari
Úrslit í Reykjavíkurmóti í 3 x 10 km
Pri með 15—5 og 15—8 — en Flemm-
ing Delfs sigraði Ray Stevens,
Englandi, 15—7 og 15—3. Danmörk
átti því þrjá af fjórum keppendum í
undanúrslitum. 1 einliðaleik kvenna
sigraði Liselotte Blumer Lenu Axels-
son, Svíþjóð, 8—11, II—4 og 12—9
og munaði því ekki miklu að tvær
sænskar stúlkur kæmust í úrslitin. í
hinum leiknum vann Börjesson
Webster eins og áður var skýrt frá.
Á leið sinni í úrslitin sigraði Delfs
m.a. Ulrich Rost, Vestur-Þýzkalandi,
15—10 og 15—3, Viktor Tschashko,
Sovétrikjunum, 15—10 og 15—8, og
Nick Yates, Englandi, 15—5 og 15—9
— en Morten Frost sigraði Stefan
Karlsson, Svíþjóð, 15—6 og 15—7,
Jean-Pierre Bauduin, Belgíu, 15—I og
15—1 og Kevin Jully, Englandi, 15—5
og 15—2.
I tviliðaleik karla komust ensku
Evrópumeistararnir Mike Tredgett og
Ray Stevens ekki í úrslit. Töpuðu fyrir
Bengt Froman og Thomas Khilström
15—II og 15—10. í úrslitum sigruðu
Cleas Nordin og Stefan Karlsson þá
Fronman og Khilström 18—16, 9—15
og15—13.
Í tviliðaleik kvenna urðu Jane
Webster og Nora Perry, Englandi,
Evrópumeistarar, Sigruðu Kirsten
Larsen og Piu Nielsen, Danmörku, í
úrslitum 15—8 og 15—13.
í tvenndarkeppninni urðu Nora
Perry og Mike Tredgett, Englandi,
Evrópumeistarar. Sigruðu Anette
Börjesson og Lars Wenberg, Svíþjóð,
15—Oog 15—6i úrslitum.
Flemming Delfs — Evrópumeistari i einliðaleik I þriðja skipti i röð.
Ármenningar óheppnir,
féllu í bráðabananum
—Töpuðu sínum fyrsta leik á Reykjavíkurmótinu í
knattspyrnu f gær. Þróttur sigraði Víking
skiðagöngu, sem fram fór í Skálafelli laugardaginn 19. apríl 1980, urðu þessi:
A-sveit Skíðafélajjs Reykjavíkur Ingólfur Jónsson 33,52 Mín.
Örn Jónsson 33,00
Halldór Matthíasson 34,45
101,37
Hrönn Bragi Jónsson 37,08
Sveinn Guömundsson 37,07
Guðmundur Sveinsson 36,26
Fram 110,41
Haukur Snorrason 42,34
Páll Guðbjömsson 36,41
Guðmundur Helgason 39,38
B-sveit Skíðafélags Reykajvíkur 118,53
Kristján Snorrason 39,51
Hörður Hinriksson 41,59
Matthías Sveinsson 40,09
121,59
Ármenningar, sem unnu sig upp úr
3ju deild i fyrrahaust i knattspyrnunni,
hafa enn forustu á Reykjavikurmótinu
í knattspyrnu þrátt fyrir tap gegn Fram
í gær. Ármenningar voru óheppnir að
tapa þeim leik — sáralitlu munaði að
þeim tækist að skora tvívegis í lokin,
þegar staðan var 2—2. Það tókst ekki.
Bráðbana þurfti því til, þar sem jafn-
tefli gilda ekki á mólinu. Þá sigraði
Fram 5—4. Skoraði úr þremur fyrstu
vitaspyrnum sínum meðan Ármenn-
ingar misnotuðu þrjár fyrstu spyrnur
sinar.
Erlendur Hermannsson, landsliðs-
kappinn kunni i handknattleiknum,
sem leikur í marki Ármanns var óhepp-
inn i leiknum. í fyrri hálfleik sló hann
knöttinn í eigið mark — en margir
héldu þvi fram, að knötturinn hefði
farið yfir endamörkin áður en hann
kom fyrir mark Ármanns. Óskar
Ásmundsson skoraði fyrir Ármann og
staðan i hálfleik var 1 — 1. Baldvin
Elíasson náði forustu fyrir Fram í s.h.
Skallaði knöttinn yfir Erlend — en
undirritaður sá ekki betur en að
Baldvin hafi verið rangstæður, þegar
hann skoraði. Bæði mörk Fram voru
því vafasöm. Bryngeir Torfason
jafnaði fyrir Ármann á 33. min. með
fallegu marki.
I bráðbananum skoruðu Rafn
Rafnsson, Guðmundur Torfason og
Gústaf Björnsson fyrir Fram úr þremur
fyrstu vítunum en Júlíus Marteinsson,
Ajax steinlá á heima-
velli gegn Maastricht
Efsta liðið i úrvalsdeildinni i Holl-
andi, Ajax Amsterdam, steinlá á
heimavelli 1 gær og er greinilegt, að
Evrópuleikurinn gegn Nottingham
Forest á miðvikudag, hefur haft áhrif á
leikmenn liðsins — 3—6 á heimavelli og
það gegn Maastricht. Ajax hefur þó
enn 2ja stiga forustu, þar sem AZ '67
Alkmaar gerði ekki nema jafntefli á
heimavelli gegn Roda JC Kerkrade.
Feyenoord náði góðu stigi á útivelli og
er i þriðja sæti, sex stigum á eftir Ajax.
Úrslit í gærð urðu þessi.
Utrecht — Feyenoord 1 — I
AZ '67 — Roda 2—2
Haarlem — Twente 0—0
Arnhem — PEC Zwolle 0—0
Deventer—NEC Nijmegen 0—I
NACBreda —PSV 2—4
Ajax — Maastricht 3—6
Excelsior — Den Haag I — I
Sparta — Willem 2 Tilburg 4—0
Gífurleg baráttta er nú meðal falllið-
anna og þar mörg lið en i hættu.
Staðan er þannig.
Ajax 31 21 5 5 74—38 47
AZ’67 31 19 7 5 71—31 45
Feyenoord 30 15 II 4 54—28 41
PSV 31 15 8 8 56—35 38
Utrecht 31 13 9 9 44—32 35
Roda 31 14 7 10 47—41 35
Twente 31 14 6 11 44—42 34
Excelsior. 31 10 10 1 1 52—53 30
Den Haag 31 10 9 12 45 —42 29
Willem 2 31 9 11 11 36—59 29
Deventer 31 11 5 15 44—46 27
Maastricht 31 9 9 13 40—48 27
PEC Zwolle 31 8 8 15 31—40 24
Sparta 31 9 6 16 41—52 24
Arnhem 31 6 12 13 33—54 24
NECNij. 31 9 5 17 30—48 23
NAC Breda 30 8 6 16 28—53 22
Haarlem 31 6 10 15 36—58 22
markvörður Fram, varði hins vegar frá
Ármenningum. Arnlaugur Helgason og
Bryngeir skoruðu úr tveimur síðustu
vítum Ármanns.
Á laugardag sigraði Þróttur Víking
4—2. Um miðjan fyrri hálfleikinn
skoraði Sigurkarl Aðalsteinsson, stór-
efnilegur nýliði Þróttar frá Völsungi á
Húsavík, fyrsta mark leiksins. Mikið
klaufamark Víkinga. Undir lok hálf-
leiksins komst Víkingur í 2—1 með
tveimur mörkum Aðalsteins
Aðalsteinssonar. Víkingar, sem voru
aðeins með fimm af fastamönnum
liðsins frá i fyrra, virtust vera að ná
yfirtökunum, þegar Harry Hill skoraði
óvænt fyrir Þrótt af um 40 m færi.
Markið virkaði eins og vítaminsprauta
á Þróttara. Sigurkarl og Þorvaldur
Þorvaldsson skoruðu fyrir Þrótt loka-
kaflann.
Staðan i mótinu er nú þannig.
Ármann 3 2 0 1 8—5 5
Þróttur 3 2 0 1 10—8 5
Valur 3 2 0 1 5—4 5
Fram 3 2 0 1 8—7 4
KR 3 10 2 6—4 2
Víkingur 3 10 2 5—9 2
Fylkir 2 0 0 2 1—6 0
í kvöld kl. 20.00 leika Valur og KR á
Melavelli.
-hsim.
HALLUR
SiMONARSON.
Calpisa
meistari
Calpisa Alicante, Spáni, varð meist- j
ari í Evrópukeppni bikarhafa eftir tvo
leiki við Gummersbach, Vestur-Þýzka- j
landi, sem sigrað hefur i þessari keppni
tvö síðustu árin. Siðari leikur var í
Dortmund í V-Þýzkalandi í gær.
Gummersbach sigraði 18—16eftir9—8
i hálfleik en það nægði Þjóðverjum
ekki. Calpisa sigraði i fyrri leiknum á
Spáni með fimm marka mun, 20—15.
Sá leikur var háður fyrir tæpum
mánuði í Alicante. Úrslit samanlagt i
báðum leikjunum var þvi 36—33 fyrir
spánska liðið.
Þegar tólf minútur voru til leiksloka i
gær virtist sem leikmenn Gummers-
bach ætluðu að vinna upp muninn frá
f.vrri leiknum. Þeir voru komnir fjórum
mörkum yftr, 15—11, en hins vegar
urðu hinum leikreyndu þýzku leik-
mönnum á mikil mistök lokakafla
leiksins — mikil taugaveiklun greip um
sig meðal þeirra. Spánverjarnir gengu á
lagið og tókst að minnka muninn í tvö
mörk.
Bretar unnu
Svía ísundi
Bretland sigraði Svíþjóð með 179
stigum gegn 165 i landskeppni í sundi i
Blackpool um helgina. Jackie Will-
mott, 15 ára, setti þrjú brezkt met i
keppninni. Í 200 m skriðsundi 2:04.10
min. 400 m skriðsundi 4:16.27 mín. og
800 m skriðsundi 8:41.88 min. Monika
Parsmark, tvitug, setti sænskt met í 400
m skriðsundi 4:21,93 min. Þá setti
Sharron Davies brezkt met í 200 m
fjórsundi 2:17.31 mín.
Tulsavann
Fjórða umferðin i amerisku knalt-
spyrnunni var leikin á laugardag. Tulss
Roughnecks, liðið, sem Jóhannes
Eðvaldsson leikur með, sigraði Detroit
Express 1—0. Þriðji sigur Tulsa en
liðið hefur tapað cinum leik. Er því
meðal efstu liða. Edmonton Dillers,
sem Guðgeir Leifsson lék með í fyrra-
sumar, lék sinn fyrsta leik og tapaði
2—1 fyrir Houston Hurricane.
Önnur úrslit urðu þessi.
Fort I.auderdale — New England 2—1
Memphis — Philadelphia I—0
Chicago — Atlanta Chiefs I—0
San Diego — LA Aztecs 2—0
California Surf — Portland 5—I
Vancouver — Minnesota Kicks 3—1
Sealtle — SanJose 1—0
í gær voru þrír leikir og úrslit þessi.
NY Cosmos — TampaBay 4—2
Toronto — Rochester 3—0
Washington — Dallas 4—2
Fort Lauderdale Strikers hefur hlotið
flest stig eða 34 úr 4 lcikjum. New York
Cosmos hefur 26 stig og einnig
California Surf. Siðan koma Dallas
Tornado og San Diego með 24 stig og
Tulsa með 23 stig. Tulsa cr í sama riðli
og Dallas, Atlanta og Minnesota.
Atlanta hefur 17 stig — Minnesota 3.
Jafntefli Ítalíu
og Póllands
Ítalía og Pólland gerðu jafnlefli i
landsleik í knattspyrnu í Torino á
laugardag, 2—2. Öll mörkin voru skor-
uð á fyrstu 37 mín. leiksins. ítalir fengu
óskabyrjun, þegar Franco Causio,
Juventus, Torino, skoraði strax á
fyrstu mín. leiksins. Sybis jafnaði fyrir
Pólland á áttundu mínútu. Annar
Juventus-leikmaður, Gaetano Scirea,
náði aftur forustu fyrir Ítalíu á 23. mín.
en á 37. mín. var dæmd á hann vita-
spyrna, sem Pólverjinn Andrzejz Szar-
mach jafnaði úr. Fleiri urðu mörkin
ekki og 50 þúsund áhorfendur urðu
fyrir vonbrigðum með leik liðanna í
síðari hálfleik. Pólverjar vörðust vel
með miðvörðinn Wladyslaw Zmuda
sem bezta mann. Þá vakti hinn 19 ára
Andrzej Pallasz mikla athygli 1 pólska
liðinu. Á lokaminútu leiksins stóð
Francesco Graziani einn fyrir opnu
pólska markinu en skallaði framhjá.
Hinn 38 ára Dino Zoff stóð i marki
Ítalíu og var snjall að venju og þá lék
Roberto Bettega einnig vel í ítalska lið-