Dagblaðið - 21.04.1980, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. APRÍL 1980.
23
HRESSANDIGUSTUR
Tónleikar Evu Knardahl pianóleikara i
Norrœna húsinu 16. aprfl.
Efnisskrá: Edvard Grieg: Fra Holbergs tid. op.
40; Oddvar S. Kvam: 12 Ordtak op. 40;
Hallvard Johnsen: Fra Nordmore op. 16; Dag
Wirén: Ironiska Sm&stycken op. 19; Johannes
M. Rivertz; Spill og Dans; Edvard Grieg;
Sónata í e-moll op. 7.
Fæstum dettur í hug pianóleikari
þegar þeir sjá Evu Knardahl ganga
inn á svið með öllu sínu hæglæti.
Öllu heldur mætti halda að þar færi
þriflega búandkona. En ekki er Eva
Knardahl fyrr búin að slá fyrsta
hljóminn en slikur misskilningur er
gjörsamlega fyrir bí. Hol-
bergssvituna lék hún hressilegar en
ég hefi nokkru sinni heyrt. Sagt er
að Norðmenn hafi ekki fyrir að þýða
Holberg yfir á norsku, heldur leiki
hann á dönsku en með norskum
framburði. Sé harðmæli nórskra
leikara á dönskunni eitthvað i ætt
við kraft Evu Knardahl get ég vel
skilið þessa leti þeirra við
þýðingarnar. Það fór lítið fyrir
danskri flatneskju í Holbergsvítunni.
Leikur Evu Knardahl minnti fremur
á brimið við Jótlandsströnd.
Tólf málshættir Oddvars Kvam
eru skemmtilegir og vel heppnaðir,
að mínum dómi. Heldur er það
óvenjulegt að heyra slíka lýsitónlist
frá liðlega þritugum manni en
Oddvar Kvam sýnir okkur að ung
' tónskáld geta enn haslað sér völl án
þess að þurfa endilega að leita út fyrir
hið hefðbundna.
Hallvard Johnsen er eitt þjóðleg-
asta tónskáld Norðmanna. Það var
gaman að spila litlu stykkin hans,
sem Oyvind Berg tók upp með
Sinfóníunni, hérna um árið. Ekki var
síður gaman að hlusta á Evu
Knardahl leika þjóðlegu svítuna, Fra
Nordmore.
Ironiska Smástycken eru létt og
skemmtilegt stykki. Hvort íronían
felst í því, að manni finnst stefin flest
vera gamlir kunningjar, veit ég ekki,
en verkið er ekki siður áheyrilegt.
Tíbrá-konur
vilja Vigdísi
Kvenfélagið Tíbrá á Höfn i Horna-
firði gekkst á dögunum fyrir skoðana-
könnun um fylgi forsetaframbjóðenda.
32 konur greiddu atkvæði sem féllu
þannig:
Vigdis Finnbogadóttir.........14
Guðlaugur Þorvaldsson..........5
Albert Guðmundsson.............4
Auðir 7, ógildir 2.
-DS.
Guðlaugur
efstur á
Kirkjusandi
Skoðanakönnun fór fram urn fylgi
forsetaframbjóðenda meðal 86 starfs-
manna í frystihúsinu Kirkjusandi i
Reykjavik. Atkvæði féllu þannig:
Guðlaugur.....................45
Vigdís........................22
Albert.........................7
Rögnvaldur.....................2
Pétur..........................1
Auðir seðlar voru níu.
-ÓV.
Albert efstur
á Litla-Hrauni
Tuttugu og átta af þrjátíu og sjö
starfsmönnum á vinnuhælinu Litla-
Hrauni tóku þátt í skoðanakönnun þar
um fylgi forsetaframbjóðenda.
Skipting atkvæða varð þannig:
Albert........................10
Guðlaugur......................7
Vigdís.........................7
Pétur..........................2
Rögnvaldur.....................2
-ÓV.
Vigdís efst í
Breiðholtsskóla
Starfslið Breiðholtsskóla efndi til
skoðanakönnunar sín á milli um fylgi
forsetaframbjóðendanna. 69 af 79
starfsmönnum tóku þátt í könnuninni,
70% þeirra konur. Atkvæði féllu
þannig:
Albert Guðmundsson.............5
Guðlaugur Þorvaldsson.........18
Pétur Thorsteinsson............6
Rögnvaldur Pálsson.............0
Vigdís Finnbogadóttir.........38
Tveir seðlar voru auðir.
-ÓV.
þótt svo sé. Helst hefði ég kosið að
fá að sleppa við að hlusta á Spill og
Dans eftir Rivertz. Mér finnst það
sóun að heyra jafnsnjallan
píanóleikara og Evu Knardahl eyða
snilli sinni á verk sem er lítið annað
en sama tuggan jórtruð upp aftur og
aftur. En sónata Griegs bjargaði
skapinu. Það var nánast endurlausn
að hlýða á hana á eftir verkinu á
undan.
Tónleikar Evu Knardahl voru eins
og hressandi gustur. Það er aldrei
dauður punktur i leik hennar, og
maður hlýtur að undrast kraft
hennar, sérstaklega vinstri hand-
arinnar, sem manni finnst næstum of
mikill á stundum. Samt hefur tónn
hennar hiýju og hún kann þá list að
velja sér verk sem henta vel hennar
leikmáta.
-F.M.
EYJÓLFUR
MELSTED
Fdward Grieg á efri árum.
Húsnæðismálastofnun ríkisins auglýsirtil sölu 30 íbúðir í parhúsum við Háberg og Hamra-
berg í Breiðholti. Brúttóflatarmál íbúðanna er um 103m2 og verður þeim skilað fullfrá-
gengnum að utan sem innan 1. júní n. k.
Grassvæði lóða verða lögð túnþökum, stéttar steyptar en stígar, leiksvæði og bílastæði
malbikuð. Hús þessi standa á þremur lóðum og eru 5 hús (10 íbúðir) á hverri lóð.
Húseigendum erskyltað myndameð sérfélagerannastframkvæmdirog fjárreiðurvarðandi
sameignina.Söluverð íbúðanna er kr. 29.8000.000.00 og greiðist þannig:
1. 80% verðs íbúðar veitir Húsnæðismálastofnunin að láni úr Byggingarsjóði ,'ikisins til 33
ára með 2% vöxtum og fullri vísitölubindingu miðað við byggingarvísitölu.
Einnig ber lántaka að greiða 1 /4% af lánsfjárhæðinni til Veðdeildar Landsbanka íslands
vegnastarfa hennar. Lán þetta er afborgunarlaust fyrstu 3 árin en greiðist síðan upp á 30
árum (annuitets-lán).
2. 20% verðs íbúðar ber kaupanda að greiða þannig:
a. Fyrirafhendingu íbúðarverðurkaupandi að hafagreitt 10% kaupverðs.
b. Á næstu 2 árum eftirafhendingu íbúðar, skal kaupandi greiða 10% kaupverðs auk
vaxtaaf láni skv. 1. tölulið. Lánskjöreru að öðru leyti hin sömu og á láni skv. 1. tölulið.
íbúðir þessar eru eingöngu ætlaðar félasgmönnum í
verkalýðsfélögum innan ASi og giftum iðnnemum.
íbúðirnar eru fyrir 5 manna fjölskyldur og stærri.
Umsóknareyðublöð ásamt nánari upplýsingum um
skilmála liggja frammi á skrifstofu Húsnæðismála-
stofnunarinnar, Laugavegi 77. Umsóknum skal skila
á sama stað eigi síðar en föstudaginn 9. mai n. k
Húsnæðismálastofnun ríkisins