Dagblaðið - 21.04.1980, Page 24
24
DAGBLAÐID. MÁNUDAGUR 21 ■ APRÍL 1980.
JohnTravolta:
KÚREKIÁBAKI
HESTA 0G NAUTA
„Hvað varð eiginlega um John
Travolla?” spyrja margir. Þaðsúper-
goð fyrra árs virðist l'allið ofan af
stjörnuhimninum án þess að svo
mikið sem slóð sjáisl eftir það.
Siðasta myndin sem hann lék í,
Moment by Moment varð ekki sú
frægðarmynd sem henni var ætlað og
fólk viða um heim lét vera að koma
að sjá hana. Við þessu mátti Travolta
varla, frægð hans var ekki orðin það
föst i sessi.
Nú er verið að reyna að koma
honum aftur upp úr lægðinni. I
myndinni Urban Cowboy, eða
Kúreki borgarinnar leikur Travolla
kúreka nokkurn sent leikur hinar
mestu hundakúnstir jafnt á hesluni
sent öðrunt skepnunt. Eitt atriði
myndarinnar svnir til dæmis goðið á
baki tryllts nauls. Slíkar kúnstir eru
fastir liðir i hinum ntiklu Rodio
keppnum vestra, við höfum reyndar
séð fjöldann allan af þeim i
sjónvarpi. Travolta tókst að tolla á
nautsbakinu i átta sekúndur sem
þykir bara gott fyrir óvana menn.
Hann sagði á eftir að þær sekúndur
hefðu verið hinar verstu í lifi sínu. Að
læra að sitja naut hefði meira að
segja verið erfiðara en að læra að
dansa.
Travolta hefur æft sig daglega í
reiðmennsku við milljón dollara
húsið sitt í Kaliforníu. Hann sá frant
á að hann yrði að standa sig í þessu
hlutverki ella fengi hann þau ekki
fleiri.
ABBA auglýsir skó
Sænska hljómsveitin ABBA hefur fimm krónur sænskar. En mönnum
nú gerl samning við skóframleiðanda til nokkurrar furðu seldust skórnir
þar i landi um að auglýsa skó. Eru ekki. Fróðir menn þótlusi sjá eftir
þetta tréskór og skyldi mynd af miklar þenkingar að ástæðan væri sú
ABBA vera limd á lok skókassans. að ABBA slúlkurnar voru í stígvélum
Verð skónna var þá hækkað um ámyndinni.
' Sími 39244
Rúðuísetningar & réttingar
Eigum fyrirliggjandi rúður i
flestar tegundir bifreiöa.
H. ÓSKARSSON DUGGUVOGI21.
HLJÓÐFÆRAVERSLUNIN
TÖNKVlSL
'íjrlitzer
2760
Tónkvísl""W
LAUFÁSVEGI 17 - REYKJAVfK - SlMI 25336
VORUM AÐ FA SENDINGU AF ÞESSUM
FRÁBÆRU ÞÝSK-AMERÍSKU PÍANÓUM
Verð og gæði í sérflokki
Pandabjörninn Ching-Ching í
London er nú allur að hressast. Eins
og skýrt var frá i blaðinu á dögunum
var hann mikið veikur á timabili og var
honum vart hugað líf. En eftir að hafa
verið skorinn upp fór Ching-Ching að
hressast og er allur að koma til. Hann
hefur aftur fengið matarlyst og étur nú
þrjár máltíðir ádag.
Þegar björninn veiktist varð uppi
mikil angist meðal brezkra barna og
sendu þau Ching-Ching mörg bréf með
óskum um góðan bata. Slík bréf bárust
einnig víðar að úr heiminum, eitl alla
leið frá Japan. Þessar góður óskir
barnanna hafa kannski haft sitt að
segja þvi líðan Ching-Ching breyttist
og hann virðist vera búinn að ákveða
að lifa áfram.
Brátt verður hann sendur aftur í
dýragarðinn til sinnar heittelskuðu
Chia-Chia sem sárt hefur saknað sins
eiginbjarnar. Á dögunum er brezkir
blaðaljósmyndarar litu inn á sjúkra-
deildina til Ching-Ching var verið að
baða hann úr vatni og sápu til að gera
hann nú sætan fyrir endurfundinn við
Chia-Chia.
Veikindi Ching-Ching hafa hrundið
af stað nýrri tizku í Bretlandi. Eru það
bolir með myndum af Panda-björnum
og litlir Ieikfangabirnir i Panda-líki.
Ungar stúlkur kaupa þessa muni
grimmt þó bolimir kosti um I4 þúsund
íslenzkra króna. Á öllu er hægt að
græða.
Ching-Ching að hressast:
PANDA-BJÖRNINN
ÆTLAR AÐ TÓRA