Dagblaðið - 21.04.1980, Side 32
32
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. APRÍL 1980.
Bflasýning Kvartmfluklúbbsins:
SVARTA MARIA SLOIGEGN
I fimmta sinn frástofnun Kvartmílu-
klúbbsins söfnuðu kvartmilingar
saman ölluni glæsilegustu farartækjum
sínum og héldu á þeim sýningu.
Sýningarstaðurinn var að þessu sinni
Sýningahöllin við Bíldshöfða og stóð
.sýningin í sex daga um síðustu páska.
Kenndi margra grasa á sýningunni og
þar mátti sjá sýnishorn af öllu því sem
bifreiðaráhugamenn föndra við í
frístundum sínum. Var þessi sýning sú
fjölbreytilegasta sem haldin hefur verið
frá upphafi. Þar sáust margir bílar
sem unnið hefur verið i undanfarinár
og ekki hafa sézt á götum borgarinnar
áður. Þá voru einnig á sýningunni
margir bílar sem aldrei koma til með að
sjást á götunum, ýmist vegna þess að
þeir eru byggðir upp sem keppnisbílar
og ónothæfir i annað eða þá að búið er
að leggja svo mikinn tima og fé í að
gera þá upp að eigendur þeirra tíma
hreinlega ekki að nota þá, nema svo
sem einn dag áári.
Eins og á fyrri sýningum gafst
sýningargestum kostur á að velja fall-
egasta bilinn á sýningunni. Verklegasta
kvartmilubílinn og athyglisverðasta bil-
inn. En auk þess var nú i fyrsta skipti
valið verklegasta mótorhjólið á sýning-
unni.
Fallegasti bfllinn
Í keppninni um fallegasta bilinn lenti
Vilhjáimur Ástráðsson í 5. sæti með
’55 Fordinn sinn bláa og fékk hann
110 atkvæði. Vilhiálmur er eini félagi
Kvartmiluklúbbsins sem hefur átt sama
bilinn á öllum sýningum klúbbsins og
hefur hann jafnan staðið sig mjög vel. í
426 Hemi Challangerinn hans Kjartans Kjartanssonar hiaut sin fyrstu verðlaun þegar hann var kosinn verkleg-
asti kvartmilubillinn en ef að likum lætur á Kjartan eftir að krækja sór i nokkur verðiaun i viðbót á kvart-
milubrautinni i sumar.
og voru notaðir meira en 40 lítrar af
lakki á bílinn enda var áætlaður kostn-
aður við sprautunina 2.5 millj. króna.
Þá var billinn einnig nýklæddur að
innan og mun kostnaður við það hafa
verið um 600 þús. kr. Það fer því varla
"55 Fordinn hans Vilhjálms Ástráðssonar diskómeistara stóð sig, eins og svo
oft óður, frábæriega vel en þessi bíll er sá eini sem verið hefur á öiium bila-
sýningum Kvartmíluklúbbsins frá upphafi.
Sendiferðabillinn hans Pústmanns birtist á sýningunni eftir gagngerar
breytingar, og má segja að hann hafi átt hjörtu og hugi sýningargesta, enda
fókk hann tvenn verðlaun. Hár óður fyrr var þessi sendibill lögreglubill í
Grindavik og þegar biiiinn birtist nýsprautaður svartur voru gárungarnir
fijótir að skella nafninu Svarta Maria á hann.
fyrra fékk Fordinn flest samanlögð
atkvæði en þar sem þau dreifðust milli
einstakra flokka varð það til þess að
hann fékk ekki verðlaun þá, enda þótt
hann væri mjög framarlega sem fall-
egasti og verklegasti bíllinn. Vilhjálmur
vinnur stöðugt að endurbótum á bíln-
um svo að helzt má líkja honum við
gamalt vin , hann batnar með hverju
árinu sem líður. í 4. sæti varð annar
gamall Ford, en það var ’34 Victorian
hans Eyjólfs Vilhjálmssonar og var
billinn á sýningunni sem fulltrúi Forn-
bílaklúbbsins. Victorian hlaut 112
atkvæði. Billinn sem lenti í 3. sæti að
þessu sinni var í 1. sæti síðastliðið ár en
það var ’77 Corvettan svarta sem nú er
í eigu Gisla Guðfinnssonar. Corvettan
fékk 121 atkvæði. í öðrú sæti lenti
Magnús Eyjólfsson en hann átti Dodge
Charger á sýningunni. Nýbúið var að
spraula Chargerinn með glimmerlakki
milli mála að Magnús hefur lagt mikið
á sig til að gera bílinn sem glæsileg-
astan, enda var árangurinn eftir því.
Hlaut Chargerinn 291 atkvæði. Það fór
ekki mikið á milli mála hvaða bíll
sýningargestum þótti fallegastur en það
var sendiferðabíllinn hans Gylfa Páls-
sonar, Pústmanns, sem lenti í 1. sæti.
Má með sanni segja að hann hafi siegið
i gegn á sýningunni og átt hugi og
hjörtu ~sýningargesta. Hlaut sendi-
ferðabíllinn hvorki meira né minna en
1489 atkvæði.
Verklegasti kvart-
mflubfllinn
Þeir voru flestir gamlir jaxlar og
þrautreyndir kvartmílubílar sem
sópuðu að sér atkvæðunum i þessum
flokki. Benedikt Eyjólfsson var í 5.
sæti með svarta Firebirdinn sinn og
hlaut hann 115 atkvæði. Chrysler
kókosbollan gamla sem nú hefur misst
Chryslervélina og nafnið lenti í 2. sæti
með 245 atkvæði. Eigandi hennar,
Ólafur Vilhjálmsson, keypti í vetur
vélina er var í svörtu Monzunni i fyrra
sumar og ætlar hann greinilega að bæta
tima kókosbollunnar i sumar. I 3.
sæti varð bíll sem lítið hefur kveðið að
hingað til en hefur tekið miklum
breytingum i vetur. Er það 454 Camaro
sem Hafnfirðingarnir Sigurður Þór og
Bjarni Bjarnason eiga saman. Þeir
hlutu 287 atkvæði. í öðru sæti varð
biliinn sem á íslandsmetið í kvartmílu-
akstri, en það er Camaró bíll Örvars
Sigurðssonar. Hlaut hann 366atkvæði.
í 1. sæti varð svo Kjartan Kjartansson
með 426 kúbika Hemi Challangerinn
sinn og hlaut hann 900atkvæði.
fékk hann 68 atkvæði. í 3. sæti varð
’34 Victorian hans Eyjólfs Vilhjálms-
sonar. Victorian fékk 195 atkvæði. í 2.
sæti var nokkuð sérstæður bíll en hann
nefndist VW Kermit og hafði eigandi
hans, Sigurður Harðarson, dundað við
að smíða bílinn i frístundum sínum,
siðastliðið eitt og hálft ár. Hlaut
Kermit 613 atkvæði. En athyglisverð-
asti billinn á sýningunni varð sendibíll-
inn hans Gylfa Pálssonar og er það í
fyrsta skiptið í sögunni sem einn bíll
fær tvenn verðlaun á bilasýningu
klúbbsins. Sendiferðabillinn fékk 949
Suzuki GS 750 hjól Hauks Helgasonar.
í 4. sæti lenti Helgi Christiansen og
fékk SS50 Hondan hans 70 atkvæði.
Pélur Þorbergss. átti Kawazaki 265 O
hjólið sem lenti í 3. sæti með 97
atkvæði. Anna Heiða Pálsdóttir lenti í
öðru sæti og fékk CB 900 Hondan
hennar 225 atkvæði. En í 1. sæti lenti
Ari Vilhjálmsson. Hann var með
Hondu CB 900 hjól á sýningunni sem
var sérútbúið til kvartmiluaksturs. Var
búið að rífa bókstaflega allt af hjólinu
sem ekki kom að gagni í kvartmílunni
og var það sannast sagna vígalegt, enda
hlaut það 1504 atkvæði á sýningunni.
Jóhann Kristjánsson.
Finlux
LITSJÓNVARPSTÆKI
22" 699.000,- (664.000,- staðgr)
26” 773.000,- (734.000,- staðgr)
SJÓNVARPSBÚDIN
BOfiGARTÚN118 REVKJAVIK SIMI 27099
CB 900 Hondan hans Ara Vilhjálmssonar var eina hjólið á sýningunni sem var sórstaklega útbúið tH kvartmilu-
aksturs, enda varþað kosið verklegasta mótorhjólið með miklum yfirburðum.
DB-myndir Jóhann Kristjánsson.
Athyglisverðasti bfll-
inn
I þessum flokki bar nokkuð á bílum
sem voru einnig framarlega í kosning-
unni um fallegasta bílinn. í 5. sæti varð
Vilhjálmur Ástráðsson með ’55
Fordinn og 67 atkvæði. Ragnar Vals-
son var í 4.sæti með GMC sendibíl og
atkvæði.
Verklegasta
mótorhjólið
Svo sem fyrr sagði var þetta í fyrsta
skiptið sem verklegasta mótorhjólið er
valið og fék sigurvegarinn í flokknum
veglegan farandbikar sem Sverrir
Þóroddssondt co hefur gefið Kvart-
míluklúbbnum. Hjólið sem lenti i 5.
sæti hlaut 60 atkvæði en það var
VAim&R FRAMRÚÐU?
. Ath. hvort við getum aðstoðað.
. ísetningar á staðnum.
BlLRÚÐAN
SlMAR 25755 0G 25780