Dagblaðið - 10.05.1980, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1980.
Vinnuveitendur:
íhlutun ríkis í mál
lífeyríssjóða mótmælt
—sundmng
verkalýðs-
félagatalin
tefja samninga
Nýbyggingar l Kópavogi i nýjum
miðbs.
Aðalfundur Vinnuveitenda-
sambandsins mótmælti harðlega
fyrirhugaðri íhlutun ríkisvaldsins i
málefni lífeyrissjóða. Rikisstjórnin
hefur lagt fram á Alþingi frumvarp
til lánsfjárlaga þar sem gert er ráð
fyrir aö Iffeyrissjóðum verði skylt að
kaupa skuldabréf af ríkissjóði,
Byggingarsjóði og Framkvæmda-
sjóði. y
Vinnuveitendur mótmæla einnig
þvi fyrirkomulagi að stjórnvöld og
Alþýöusambandið semji upp á eigin
spýtur án aðildar vinnuveitenda um
ýmiss konar félagslegar aðgerðir sem
heyri undir samningssvið aðila vinnu-
markaðarins. Vinnuveitendur skora á
rikisstjórnina að svara án frekari-
tafar óskupi y|m þrihliða viðræður
um kja/árrtálih,k ,fenda*eru þærieini
sjáaniegi farvegur samvinnu og sátta
í þeim erfiðu og margslungnu kjara-
ákvörðunum, sem fyrir dyrum
stendpr aö taka,” eins og segir i
ályktuninni.
Vinnuveitendur undirstrika að
skattalækkanir séu eina færa leiðin
til að auka raunverulegar
ráðstöfunartekjur launþega. Jafn-
framt taldi fundurínn að mikilvægt
sé að grundvallarbreyting verði gerð
á gildandi verðbótakerfi á laun í þeim
tilgangi aö draga úr víxlhækkunum
kaupgjalds og verðlags.
Vinnuveitendur saka launþega-
félögin um að hafa aukið á óvissuna í
kjaramálum vegna þess hve laun-
þegafélögin séu margskipt í afstöðu
til samningamálanna.
Páll Sigurjónsson var endur-
kjörinn formaður Vinnuveitenda-
sambandsins og Hjalti Einarsson
varaformaður. Aðrir í framkvæmda-
stjórn voru kjörnir: Davíð Scheving
Thorsteinsson, Gísli Ólafsson,
Guðlaugur Björgvinsson, Gunnar S.
Björnsson, Gunnar J. Friðriksson,
Haraldur Sveinsson, Hjörtur Hjart-
arson, Jón Ingvarsson, Jón Páll Hall-
dórsson, Krístján Ragnarsson,
Magnús Gústafsson, Ragnar
Halldórsson, Valtýr Hákonarson og
ÞórðurGröndal.
-HH.
LITSJOIMVARPSTÆKI
_ Toppurinn í dag
SJONVARPSBÚDIN
BORGARTÚNI 18 REYKJAVIK SIMI 27099
Skrrfstofustörf
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa eftir:
1. Fulltrúa, laun samkv. launaflokki B-ll.
2. Tveimur skrifstofumönnum, laun samkv. launaflokki B-8.>
3. Starf við götun, laun samkv. launaflokki B-8.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, aldur
og fyrri störf sendist starfsmannastióra.
RAFMA GNS VE/TUR RÍKISINS
LAUGA VEG1118. REYKJA VÍK
Bílasala Guöflnns auglýsir:
HJA OKKUR ER MIÐSTÖÐ
HJÓLHÝSAVIÐSKIPTANNA
Vantar hjólhýsi á söluskrá
Athugiö breytt heimilisfang:
ÁRMÚLI7 - SÍMI81588
Tilkynning
um rafhituð \atnshitunarkerfi
frá Rafmagnseftirliti rífcisins og Öryggiseftirliti
ríkisins
Vegna aukinnar notkunar rafhitaðra vatnshitunartœkja til
húsa- og neysluvatnshitunar, vilja Rafmagnseftirlit ríkisins
og Öryggiseftirlit ríkisins vekja athygli notenda og
kaupenda slíkra tækja á nýjum reglugerðum um smíði,
merkingu og öryggisbúnað þeirra og um reglubundnar
prófanirá öryggisbúnaði.
Þessar reglugerðir fást hjá Rafmagnseftirliti ríkisins og
Öryggiseftirliti ríkisins, Síðumúla 13, Reykjavík. Þær tóku
gildi 1978 fyrir ný tæki, en frestur til að lagfœra tæki og
kerfisem þá voru í notkun var veittur til l.júlí 1980.
Notuð vatnshitunartæki með rafhitun, svo sem
miðstöðvarkatla (hitatúbur) og neysluvatnsgeyma, sem
tekin hafa verið niður, má ekki setja upp og tengja á nýjum
stað nema þau fullnægi kröfum um öryggisbúnað í
samræmi við þessar nýju reglur.
Athygliframleiðenda og verktaka er sérstaklega vakin
á eftirfarandi:
1. Ný rafhituð vatnshitunartœki má ekki setja á markað
fyrr en viðurkenning ofangreindra stofnana liggurfyrir.
2. Rafhituð vatnshitunarkefi í einstökum byggingum má
ekki taka í notkun fyrr en tilkynningarskyldu hefur
verið fullnœgt.
Kennarar og leiðbeinendur!
STJÓRNENDUR
sumarbúða öskast strax
Félagssamtök óska eftir stjórnendum sumarbúða
fyrir börn á fögrum og eftirsóttum útivistarstað í
fyrrihluta júnímánaðar. Kjörið starf fyrir hjón.
Uppl. í sima 91—21944.
Húseignin Auðbrekka
44-46Kópavogi tilleigu
Gott húsnæði. Hentugt bæði fyrir iðnað og verzlun.
Húsnæðinu má skipta í 2—4 hluta.
UPPL ÝSINGAR í SÍMA 19157.
Kópavogskaupstaður
25ára:
Úr svef n-
bæ íal-
vöru bæ j-
arfélag
Kópavogskaupstaöur á 25 ára af-
mæli á sunnudaginn en Kópavogur
fékk kaupstaðarréttindi lt.mai 1955.
Kópavogur er stærsti kaupstaður
landsins að frátaldri höfuðborginni,
Reykjavík. í Kópavogi búa nú um
13.500 manns en það eru tæplega 6°7o
íbúa landsins.
Vöxtur Kópavogs var mjög ör
framan af og haföi það ýmsa vaxtar-
verki í för með sér. Skipulag var ekki
sem skyldi og byggt frjálslegar en
gerðist í öðrum bæjarfélögum. Skipu-
lagsleysið hefur nokkuð komið niður á
Kópavogi síðar er skipulag og
uppbygging komst í fastari skorður.
Kópavogur var í upphafi hokkurs
konar svefnbær Reykjavíkur og at-
vinnurekstur tiltölulega lítili í bænum.
Þetta hefur mjög breytzt á seinni árum
og er atvinnustarfsemi nú orðin mikil i
Kópavogi. Þessi breyting hefur aukið
mjög fjárhagslega getu bæjarins vegna
aukinna aðstöðugjalda.
En þrátt fyrir bætta stöðu bæjar-
félagsins er enn margt ógert og líklega
ber hæst gatnagerðina í bænum sem er
óneitanlega á eftir því sem gerist í ná-
grannasveitarfélögunum. Allir stjórn-
málaflokkar í Kópavogi hafa bætta
gatnagerð á stefnuskrá sinni en gatna-
gerð er dýr og þegar til kastanna kemur
eru önnur verkefni stundum talin
brýnni.
-JH.
íbúaþróun í Kópavogi:
Hægzt
hef ur um á
seinni árum
íbúðabyggð tekur fyrst verulega að
myndast í Kópavogi á fimmta ára-
tugnum og tekur síðan verulegt stökk á
sjötta áratugnum. Jöfn fjölgun verður
síðan allan sjöunda áratuginn en
hægist síðan nú síðasta áratug.
Fjölgunin er þó alltaf nokkur ár hvert.
Ef litið er yfir íbúafjölgun Kópavogs
siðustu 40 ár má sjá eftirfarandi:
1940 íbúar 206
1945 íbúar 521
1950 íbúar 1652
1955 íbúar t 3783
1960 íbúar 6213
1965 íbúar 9204
1970 íbúar 11165
1975 ibúar 12553
1979 íbúar 13473
-JH.
Spænska
flugan
íDagblaðsbíói
í Dagblaðsbíói klukkan þrjú ’JfjJ
morgun verður sýnd myndin Spænska
flugan. Það er ensk gamanmynd í litum
og með íslenzkum texta. Sýningar-
staður er Hafnarbíó.