Dagblaðið - 10.05.1980, Page 13

Dagblaðið - 10.05.1980, Page 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1980. 13 ATLI RUNAR HALLDORSSOIM Enhefurþetla nokkuðaðsegja? „Já, já,” segir gamla konan ákveðin. ,,Ég hef fulla vissu fyrir því að margir hafa fengið lækningu með hjálp að handan. Og einn morguninn 'sá ég Hafstein miðil Björnsson, Magnús lækni og einhvern þriðja mann vera að blaða í bréfunum á borðinu þarna. Það þarf enginn að segja mér að þeir sinni ekki fólkinu sem skrifar mér. Núna i morgun komu þeir aftur og þá voru með þeim tveir menn í viðbót, sem ég ekki » Sigurrós: „Ég sá Hafstein miðil og Magnús lækni biaða i brófunum, sem fólk hefur sent mór." Á borðinu og ó veggjunum eru nokkur af öllum brófunum, sem henni hafa borizt eftir að viðtal birtist við hana i Dagblaðinu 14. april. DB-mynd: Sig. Þorri. Brennivínskút- urfyrir Ivan Kappinn Ivan Rebroff hefur gert víðreist um landið að undanförnu og skemmt landanum með söng sínum og raddæfingum upp og niður tónstigann. Uppselt var á alla hljómleika hans og margir haldnir aukalega. Á sunnudaginn skemmti Rebroff síðan matargestum á Hótel Sögu og komust þar færri að en vildu. Sitthvað fleira var þar að sjá annað en Rebroff, til dæmis tággrannar sýningarstúlkur sem sýndu dýra sýningarkjóla frá Givenchy í Paris. Kjólar þessir voru sérpantaðir hingað til lands og varla mun á færi almúgans aðganga í slíkum flíkum. Rebroff var einnig í rauðum serk, en heldur efnismeiri en nefndir tizkukjólar. Það þarf heilan klæða- stranga utan um karlinn, því hann er engin smásmíði. Ivan drekkur drjúgt meðan á söngnum stendur og því þótti við hæfi að kveðja hann með sérlegum brennivínskút, sem Eysteinn Helga- son forstjóri Samvinnuferða afhenti honum. Frægð íslenzka brennivínsins ætti því að fljúga víða og ekki síður hákarlsins, sem Rebroff rómaði. JH. tysteinn Helgason forstjóri Samvinnuferða/Landsýnar afhenti Ivan Rebroff brennivinskút að skilnaði. í upphafi samkvæmisins fengu menn sér einn laufléttan. Hér ræðir Björn Jóhannsson umboðsmaður Givenchy við þau hjónin Jóhann Guðmundsson og Rebekku Kristjánsdóttur. DB-myndir: Ragnar Th. Tugir manna í heimsókn og bréfum rignir inn eftir að viðtal birt- ist í Dagblaðinu Aldeilis forviða! —segir Sigurrós huglœknir á Hverfisgötu ,,Ég er aldeilis forviða á áhrifunum sem það hafði þegar Dag- blaðið birti við mig viðtal um daginn. Strax sama daginn og blaðið kom út fékk ég 10 manns í heimsókn og næstu daga komu a.m.k. áttatíu manns, tvo daga komu vist einir 20 hingað!” sagði Sigurrós Jóhanns- dóttir, Hverfisgötu 83. Bréfaflóðið á borðinu hjá Sigur- rósu talaði sinu máli um það að hér á landi eru þeir margir sem trúa því og treysta að sjúkir og hrjáðir geti fengið hjálp frá framliðnum i gegn um huglækna og miðla. Erindi bréf- ritara til Sigurrósar voru af marg- vislegum toga. Algengast er að menn lýsi kvillum sínum og biðji um aðstoð til að læknast. Þá er beðið um hjálp i baráttunni við Bakkus konung. ,,Sumir sem leita til mín vilja bjarga hjónabandi sínu. Oftast er það óreglan sem er meinvaldurinn,” segir Sigurrós. þekkti. Þeir sýndu bréfunum mikinn áhuga.” Sigurrós var sýnilega hin hressasta með allan gestaganginn á Hverfis- götunni i kjölfar viðtalsins í Dag- blaðinu 14. apríl. ,,Ég hef fengiö yfirnáttúrlegan styrk og er hressari en ég hef verið í langan tima. Ég vil lifa miklu lengur og verða að liði.” -ARH. Xv iMelchior frá vinstri: Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson: söngur. raddir, gltar, bassi,' pianó, moog, ásláttur. Kar. Roth: söngur, raddir, gitar, ásláttur, moog. Hilmar Oddsson: söngur, raddir, ásláttur, gitar, bassi, pianó, selló. MELCHIOR sendir frá sér Balapopp: Stemmningartónlist úr Mosfellssveit „Melchior sendi frá sér plötu fyrir tveimur árum. Nú var ákveðið að reyna nýjar leiðir, að skapa notalega stemmningu uppi í sveit. Lög og textar voru samdir á staðnum, karakterinn í hverju lagi ræktaður og láherzla lögð á afslappað and- jrúmsloft. Balapopp er því Iskilgreining á tónlistinni, þetta er einfaldari og hressari plata en sú fyrri,” sagði Hallgrimur Helgi Helgason, einn af aðstandendum nýrrar breiðskífu, sem MELCHIOR er að senda frá sér þessa dagana. Hallgrímur Helgi semur nokkra texta á skífunni, sem ber nafnið Balapopp. Veg og vanda af samningu efnis á henni eiga annars þeir Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson, Hilmar Oddsson og Karl Roth Karlsson. Með þeim leikur fjöldi stórmenna úr tónlistar- heiminum, þar á meðal Gunnar Hrafnsson, Ólafur Flosason, Eggert Þorleifsson og Sveinbjörn I. Baldvinsson. Nafnið Balapopp vísar til upptökustaðar skífunnar, Bala í Mosfellssveit. í húsakynnum Dieter Roths listamanns á Bala er að finna fullkomin upptökutæki. Þar dvöldu Melchior og aðrir Balapopparar í fyrrasumar og sömdu og hljóðrituðu tónlist. Garðar Hansen stýrði upptökutækjunum. Á Balapoppplöt- unni eru hvorki meira né minna en 22 lög. Það lengsta tekur 3.25 mínútur í flutningi en það stytzta aðeins 17 sekúndur. Útgefendur skifunnar eru skráðir Gínuforlagið í Mosfellssveit og Dieter Roth’s Verlag, Stuttgart, í bróðerni. -ARH. .IÓNAS HARALDSSON

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.