Dagblaðið - 03.07.1980, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 1980.
Kjör Vigdísar
lofar góðu
—segja Kaupmannahafnarblöðin
í Danmörku sem víðar hefur allítar-
lega verið fjallað um kjör Vigdísar
Finnbogadóttur í forsetaembættið.
Vekur kjör hennar almenna athygli
fyrir ýmsar sakir, m.a. sem kjör
einstæðrar móður og kjör konu sem
ckki vill þola erlendan her á íslandi
nemaafillrinauðsyn.
Fara hér á eftir ummæli nokkurra
Kaupmannahafnarblaða. Leiðari í
Berlingske Tidende hljóðar á þessa
leið:
Brotið blað
„íslendingar skilja mikilvægi þess
að velja sér forseta, sem er dæmigerður
fyrir það bezta í þjóðinni og fyrir
islenzka menningu. i 12 ár hefur
Kristján Eldjárn verið forseli íslands
og mikilfenglegri og virðulegri þjóð-
höfðingja getur ekkert land óskað sér.
Íjlenzkir kjósendur völdu á sunnudag
sem eftirmann hans „fremragende
kuliurmenneske”, Vigdisi Finnboga-
dóttur, og brutu þar með blað í stöðu
kvenna á íslandi. Það er frábært að
samfélag eins og það íslenzka sé fyrsl
til að kjósa konu sem þjóðhöfðingja.
Það er nýjung og hefur sennilega hafl
áhrif á marga kjósendur. En það
breytir ekki því að Vigdís
Finnbogadóttir hefur alla þá hæfileika,
sem þarf lil að feta í fótspor Kristjáns
Eldjárns.”
í leiðaranum er einnig vikið að þvi að
keppinauta Vigdísar hafi ekki skort
hæfileika eða vinsældir en samt haft
leikhússtjórinn, sem er einstæð móðir,
náð kjöri. E.t.v. hafi einhver kosið
liana þess vegna. Hugsunin um forseta
án maka sér við hlið hefur komið
mörgum hugsunum i gang og eiga
íslendingar hrós skilið fyrir valið á hin-
um nýja þjóðhöfðingja. Leiðari
Berlingske Tidende er sá ítarlegasli er
um kjör Vigdísar fjallar.
Forsetinn móti
erlendum her
Politiken bendir á að úrslit þessara
kosninga séu á margan hátt svipuð og
úrslit síðustu forsetakosninga. Þá eins
og nú valdi þjóðin sér forseta, sem er
fulltrúi fyrir islenzka menningu og
menningarlíf en ekki stjórnmálamann.
Aktutelt segir: , .Einungis eitt ártal í
þúsund ára sögu íslenzkrar þjóðar
skyggir á kosningu hins nýja
þjóðhöfðingja. En það er árið 930 þeg-
ar íbúar eldfjallaeyjunnar stofnuðu
elztu löggjafarsamkomu i heimi.”
Information segir m.a. að úrslitin
séu naumur sigur herstöðva-
andstæðinga á íslandi. í kosningabar-
áttunni hafi Vigdís ekki farið dult með
þá skoðun sina að herstöðina eigi að
leggja niður og að herinn sé aðeins til
bráðabirgða í landinu.
information bendir á að á Alþingi
Íslendinga eigi aðeins þrjár konur sæti
og að aðeins ein kona hafi orðið
ráðherra á íslandi. Forsetakosning-
arnar hafi bundið enda á þá gömlu
venju að á Islandi sitji karlmenn i
öllum áhrifamestu stöðunum.
Yfirráð karla
á liðnum öldum
Síðdegisblaðið BT segir í leiðara
m.a.: „Hver hefði trúað því að islend-
ingar kysu sér konu sem forseta?
Allavega enginn sem þekkir sögu
landsins og yfirráð karlmanna þar á
liðnum öldum. Á þetta eftir að koma
konum í landinu og þar með sam-
félaginu til góða að þjóðhöfðinginn er
kona? Það leiðir tíminn i ljós. En það
cru kannski straumhvörf að hinn nýi
forseti er á móti erlendum her í
landinu. Það að forsetinn sé einstæð
móðir með sjö ára kjörbarn er sönnun
þess að það er ekki margt í lifi kvenna,
sem er henni ókunnugt og það lol'ar
góðu.”
-BH/BHS Kaupmannahöfn.
Vigdísi rar \el l'agnað þegar hún kom úr sjún\arpsupptöku snetmna á mánudagsmnrgun er sigurinn \ar Ijós. Með henni á
myndinni eru Hjalti Rögnvaldsson leikari og systurnar Anna. Ingunn og Elísahet Magnúsdætur.
DB ntynd Ragnar Th.
Vigdís tekur form-
lega við 1. ágúst
— Hæstiréttur gef ur út kjörbréf
Nýr lorseti Islands, Vigdis
Finnbogadóttir, tekur formlega við
embætti 1. ágúst næstkomandi.
Hæstiréttur gefur út kjörbréf fyrir
forsetann og forseti vinnur eið eða
drengskaparheit að stjórnarskránni
er hann tekur við störfum. Af eiðstaf
þessum eða heiti skal gera tvö
samhljóða frumrit. Geymir Alþingi
annaðen Þjóðskjalasafnið hitt.
Björn Helgason hæstaréttarritari
sagði i gær að venjan hefði verið sú,
bæði þegar Ásgeir Ásgeirsson og
Kristján Eldjárn voru settir inn i
embætti forseta, að athöfnin hæfist á
helgistund i dómkirkjunni. Siðan
hefur verið farið i Alþingishúsið þar
sem forseti hefur formlega tekið við
embætti.
Viðstaddir athöfnina i Alþingis-
húsinu eru alþingismenn og
sendiherrar erlendra ríkja. Björn
sagði þó að það væri nokkuð undir
óskum forsetans sjálfs komið hvernig
þessi athöfn færi fram. Eftir að for-
seti hefur tekið við embætti flytur
hann að Bessastöðum.
Réttarhlé er nú hjá Hæstarétti. Þó
verður að kalla saman réttinn nú i júli
vegna embættistöku nýs forseta.
Hæstiréttur úrskurðar og yfirfer
kjörgögn forsetakosninganna.
-JH.
Sjórall DB, Snarfara og FR:
Splunkunýr bátur meistar-
anna á flot á fóstudaginn
— og það verður ekki heiglum hent að sækja meistaratitilinn í greipar Bjama Sveins og Óla Skagvik
Það vcrður ekki heiglum hent að
sækja sjórallsmeistaratit ilinn í
hendurþeirra Bjarna Sveinssonar frá
Vestmannaevjum og Óla Skagviks
meðreiðarsveins lians. Báðir eru
gamalrcyndir siglingamenn og
metnaðarfullir og láta áreiðanlcga
ekki í minni pokann fyrir neinum l'yrr
en i fulla hnefana.
Bjarni, scm i fyrra átti Flug-
lisksbát, scm bar nafnið Inga, scldi
hann viku eltir rallið i fyrra til Isa-
fjarðar. Sá bátur mæiir nú til
keppninnar undir stjórn hins nýja
eigandasíns, Daða Hinrikssonar.
Bjarni Sveinsson hcfur nú kcypt
scr annan bát af sömu gcrð, 22 Tcta
I lugfisksbát, og i honum er sams
konar vél og í Ingu i fvrra, 290 ha.
Volvo-Pcnta.
Það cr Morgunblaðið sent nú gerir
bál Bjarna út og siglir hann hringinn
vel merktur blaðinu og það borgar
bcnsinið og annan útgerðarkostnað.
Bjarni og Óli tilkvnntu þátttöku
sina i sjórallinu nú þcgar el'tir
sigurinn i fyrra og hafa Italdið fast
við þá þátttökutilkynningu. En
naumt er það með nýja farkostinn.
Hann cr á lokastigi í bátasmíðaslöð
Flugfisks í Vogunum og lögð cr nótt
við dag við lokafráganginn.
Þegar DB-menn litu þar inn í gær
voru Runólfur (iuðjónsson.og Gréta
Stel'ánsdóttir kona hans á kafi i
bátnum. „Gréta er yfirtrefjarinn og í
því verki stendur enginn henni á
sporði,” sagði Runólfur, sem
stjórnaði vinnunni við bátinn. Sér-
l'ræðingar l'rá Volvo-umboðinu voru
að Ijúka við niðursetningu vélarinnar
og alll var komið á lokastig.
Bjarni Sveinsson og Óli Skagvik
taka við bátnum á l'östudag á sjó og
þaulreyna bátinn þann dag og vcrða
tilbúnir við rásmarkið kl. 2 á laugar-
d aginn.
Bjarni hefur verið nteð siglinga-
dellu um langt árabil en starfar
annars scm vinnslustjóri i Hraðfrysti-
stöð Vcstmannaeyja. Hann cr
þekklur að dugnaði og fékk fyrir það
hér á árum áður viðurnel'nið Bjarni
sólarhringur, því ckkert bcil á hann.
Óli Skagvík er ennþá reyndari.
Hann hefur m.a. siglt á smábátum
rnilli landa. Nú kom hann sérstaklega
heirn til sjórallsins frá þvi að stunda
humarvciðar i Washingtonfylki á
vcturströnd Bandaríkianna.
Það var aðeins cilt annað ,,par"
sem tilkynnti þátttöku i rallinu nú
þegar í l'yrra. Það voru Bjarni og
Lára á „Láru”. Þau þekkja hringinn
líka vel. Í dag kcmur svo Daði
Hinriksson með flugfiskinn sinn l'rá
ísafirði. Verið cr að dytta að Spörra
Magnúsar frá Grundarfirði og loks
cigum við el'tir að fjalla um hát
Regins Grimssonar i Mótun sem Sig-
l'ús Sveinsson og Kristján Magnússon
ælla að sigla á i rallinu.
-A.St.
Hjónin Gréta Stcfánsdóttir o|> Runólfur (iuðjónsson U-tiiijn sióuslii hönd á Irágang \ió nýja bátinn sjórallsmcistaranna l'rá i
fyrra i hátasmióastöó Flugfisks i Vogunum. \ innlilidii iinndunum cru mcistararnir. Óli Skagiik og Bjarni Svcinsson.
Bátur þcirra á aó halda uppi mcrki Vcstmannacyja i sjórallinu. DB-myndir Ragnar l'h.. I h. Sig.