Dagblaðið - 03.10.1980, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 03.10.1980, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. FÖSTL'DAGUR 3. OKTÓBER 1980. Skrifstofuaðstoð Ráðuneytið óskar eftir að ráða, hálfan daginn eftir hádegi, starfskraft til léttra sendiferða og til aðstoðar á skrifstofu. Getur hentað fullorðnum karli eða konu. Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 7. október Dóms og kirkjumálaráðuneytið, 29. scptember 1980. —Haltu heilsunni---------------------- Styrkið og fegrið líkamann. Bjóðum upp á sólböð úr hinum viðurkenndu CORO-SOL lömpum og hjá okkur er líka saunabað, heitur pottur, nudd æfingatæki og fleira. Ný og betri þjónusta — karlatímar — konutímar — einkatímar. Opið alla daga nema sunnudaga. BAÐSTOFAN BREIÐHOLTI Þangbakka 8. — Sími 76540. Pizza% Heimsendingarþjonusta Pöntunarsími 13340. Pizza Marinara (M/tómat, osti, krækling og rækjum) Pizza Pazza (M/tómat, osti, lauk og papriku) Pizza Campagnola (M/tómat, osti og sveppum) Pizza Margheríta (M/tómat og osti) Pizza Bella Italia (M/tómat, osti, sardínum og ólivum) Pizza Calzone (M/tómat, osti og skinku) Pizza Fiorentina (M/tómat, osti og aspas) Pizza Caruso (M/tómat, osti.salami og lauk) Firmakeppni Gróttu í knattspyrnu innanhúss verður í íþróttahúsi Seltjarnarness síðustu helgina í október og fyrstu helgina í nóvember. Keppt verður um Gróttubikarinn, sem er í vöizlu starfsmannafélags Pósts og síma. Þátttaka tilkynnist í síma 21722 f.h. (Már). Þá.ttökugjald er kr. 40.000.^^^ ^ LAUGAVEGI 74 101 REYKJAVIK SÍMI: 17345 KULDASKOR Sérstaklepa mjúkir 0|> þanik'yir loðfóðraðir kanadiskir kuldaskór með rennilás, með lausum ioðfóðr- uðum lcppum, hrágúmmísóli — tióðir i hálku. Litur: Brúnn Verð kr. 44.500.- Stærðir: 36—41 Verð kr. 39.500,- Stærðir: 41 —45 (aðeins lægri á leKttinn) Skodanakönnun Dagblaðsins um fylgi stjómmálaf lokkanna Hver eru viðbrögð manna við niður- stöðu könnunarinnar? „Framsóknarflokkurinn er á- byrgasti flokkurinn. Það hefur meðal annars sýnt sig i Flugleiðamálinu,” sagði karl i Þingeyjarsýslum þegar kannað var fylgi stjórnmála- flokkanna meðal kjósenda á vegum Dagblaðsins. „Ég stæði eins og glópttr ef fara ætti að kjósa núna,” sagði hins vegar kona á Reykjavikursvæðinu. í skoðanakönnun Dagblaðsins voru 600 kjósendur víðs vegar um landið spurðir sömu spurningar: Hvaða stjórnmálaflokki tclur þú þig standa næst um þessar mundif? Ef aðeins eru teknir þeir sem afstöðu tóku eru niðurstöðumar á þessa leið: Alþýðuflokkur fengi 13.0% atkvæða (17.4% i síðustu þingkosningum), Framsóknarflokkur 21.7% (24.9%), Sjálfstæðisflokkur 46.2% (35.4%) og Alþýðubandalag 18.8% (19.7%). Þá fengu marz-lenínistar (Einingar- samtök kommúnista) I atkvæði eða 0.2%. Ef þingsætum væri skipt á milli flokkanna i samræmi við þetta fengi Alþýðuflokkur 8 menn kjörna, Framsóknarflokkur 13, Sjálfstæðis flokkur 28 og Alþýðubandalag 11. Dagblaðið kannaði í gær viðhorf nokurra manna til skoðana- könnunarinnar ogniðurstöðuhennar. Má lesa árangurinn á þessum síðum. Karvel Pálmason alþingismaður: Framsókn ísömu spor umogkratarífyrra ,,Ég hef alltaf hneigzt til að taka mark á skoðanakönnunum. Tel að oft- ar en ekki hafi þær gefið vísbendingu til dæmis um fylgi stjórnmálaflokka,” sagði Karvel Pálmason alþingismaður á Bolungarvík í samtali við Dagblaðið. „Reyndar er altalað að Dagblaðið sé málgagn ríkisstjórnarinnar. Einhverjir hugsa sjálfsagt sem svo að blaðið hafi viljað reyna að hjálpa stjórninni á erfiðleikatimum með birtingu hagstæðra skoðanakannana.” Karvel kvaðst ekki finna fyrir því í sínu kjördæmi að Alþýðuflokkurinn standi verr en áður, eins og könnunin gefur til kynna. ,,Ég held að almennt séð vaxi vantrú Karvel Pálmason. Mynd: Jim Smart fólks á stjórnmálamönnum og flokkum yfirleitt. Menn segja svo sem að sama sé hverjir sitji i valdastólum, allt fari heldur niður á við hvort eð er. Mér kemur hins vegar ekki á óvart að fylgið reitist af Framsókn sam- kvæmt þessum tölum. Framsóknar- menn eru nú í sömu sporum og Alþýðuflokksmenn í fyrra. Framsókn fær engu framgengt af sínum málum í ríkisstjórninni á sama hátt og Alþýðu- flokkurinn fékk ekki sínum stefnumið- um framgengt í ríkisstjórn Ólafs Jó- hannessonar. í raun og veru er stað- reyndin sú að vonlaust er að ná árangri í efnahagsmálum í stjórnarsamstarfi við Alþýðubandalagið.” Karvel Pálmason taldi ólíklegt að Sjálfstæðisflokkurinn hafi fengið betri hljómgrunn hjá kjósendum. Mögúleg fylgisaukning hans gæti verið tilkomin vegna stjórnarþátttöku manna úr Gunnarsarminum. ,,Ég ætla svo að benda á, að Alþýðuflokkurinn á erfiðara með að koma sjónarmiðum sínum á framfæri vegna þess hve málgagn hans er veikburða og litið útbreitt. En við mun- um láta heyra í okkur þegar pólitíkin fer i gang og Alþingi kemur saman. Þá hressist þetta allt.” -ARH. Bjarni P. Magnússon. DB-mynd: Bjarnleifur. Bjarni P. Magnússon, form. framkvæmda - stjórnar Alþýðuf lokksins: „Óttast áfram- haldandi stjórn leysi” Jón G. Sólnes: TJraustsyfirlýsing við dr. Gunnar” „Fylgisaukning Sjálfstæðis- flokksins samkvæmt skoðana- könnuninni er persónuleg traustyfir- lýsing við dr. Gunnar Thoroddsen. Flokkurinn á honum mikið að þakka og hann er hæfasti stjórnmálaleiðtogi sem þjóðin á,” sagði Jón G. Sólnes á Akureyri. „Það er auðséð að sjálfstæðis- stefnan á sterk ítök hjá þjóðinni. Hins vegar hefur neikvæð niðurrifsstefna sumra forystumanna Sjálfstæðis- flokksins gagnvart ríkisstjórninni skaðað flokkinn. Fólk er almennt fylgjandi ríkisstjórninni og segir sem svo: Hver annar getur leyst málið ef ekki þessi stjórn: Menn sjá að í rikis- stjórninni er unnið af heilindum undir öruggri verkstjórn dr. Gunnars. Alþýðubandalagsmenn sem áður voru óbilgjarnir sýna nú ábyrga afstöðu og halda fylgi samkvæmt könnuninni. Þjóðin er hins vegar hundþreytt á óábyrgri stjórnarandstöðu kratanna. J6n G. Sólnes. DB-mynd: G.Sv. Akureyri Þeir hafa tapað fylgi frá síðustu kosningum og eiga eftir að fara miklu neðar.” -ARH. „Það leggst ekki illa i mig að sjá þessa tölu um fylgi Alþýðuflokksins í skoðanakönnuninni. Útkoman er mjög svipað og í könnuninni í febr. og við megum vel við una. Ekki er hægt að neita því að skoðanakannanir Dag- blaðsins hafa sýnt ákveðna tilhneigingu í fylgistilfærslum milli flokka. Þrátt fyrir að deila megi um vísindaleg vinnubrögð við framkvæmd könnunarinnar hefur tekizt að gera þær marktækar,” sagði Bjarni P. Magnússon formaður framkvæmda- stjórnar Alþýðuflokksins. „Hættulegasta ábendingin i niður- stöðunni er sú að Alþýðubandalagið hefur styrkt stöðu sína frá því könnun var gerð í febrúar. Við höfum haldið því fram að Alþýðubandalagið væri stefnulaust. Á þeim flokki strandaði samstarfið í ríkisstjórn Ólafs Jóhannes- sonar. Ég óttast mest að þjóðin kjósi yfir sig áframhaldandi stjórnleysi með því að efla gengi stjórnleysisflokks á borð við Alþýðubandalagið og raunar Sjálfstæðisflokkinn líka. Það fer heldur ekki fram hjá neinum að óvissa er meiri hjá fólki. Óákveðnum kjósendum fjölgar. Spurningin er hvar þeir hafna sem hætta að fylgja ríkisstjórnar- flokkimum. Raunar er Alþýðu- flokkurinn eini valkosturinn fyrir þá. Ég er bjartsýnn fyrir okkar hönd og held að ef Alþýðuflokknum tekst-að koma stefnumiðum sinum óbrengluðum til kjósenda þurfi ekki að kvíða framtíðinni. Við reynum að standa eða falla með okkar stefnu,” segir Bjarni P. Magnússon. tmurbrauðstofan BJÖRNINN Hiótegöfa 49 — Simi -ARH.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.