Dagblaðið - 03.10.1980, Side 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1980.
9
Styrjöld íran og íraks:
Iranir undir-
búa nýja sókn
— Bani Sadr haf nar öllum f riðarhugmyndum, einnig þeim
nýjustufráKúbu
írönskum hersveitum vex nú mjög
móður og er nú fyrirskipað að berjast
til sigurs, Bani Sadr forseti landsins
hefur hafnað öllum hugmyndum um
friðarsamninga og vopnahlé. Síðasta
tilboðið sem hann hafnaði var frá
Kúbustjórn. Tilkynning fraksstjórnar,
um að herir hennar hefðu nú náð öllum
helztu markmiðum sinum í styrjöldinni
og mundu nú einbeita sér að jivi að
halda þeim, þykir benda til að nokkuð
sé farið að draga af þeim.
Bani Sadr forseti skýrði hersveitum
sínum frá þvi i gær að á miðvikudaginn
hefði verið hafin ný sókn gegn innrás-
arliði íraks. Hann tjáði mönnum sínum
að ekkert dygði nema itrasta sóknar-
harka ef sigur ætti að vinnast. And-
staða innrásarliðs íraka dvínaði þó dag
f rá degi.
Friðarhugmyndir Kúbustjórnar
komu fram í Teheran i gær. Var það
utanríkisráðherra Castrós sem bar þær
fram. Kúba er nú i forsæti i samtökum
óháðra þjóða. Bæði íran og írak eru i
samtökunum. Ríkisútvarpið í íran til-
kynnti í gærkvöldi að hugmyndum
Castrós hefði verið hafnað. Eins fór
með tillögur sem Zia, forseti Pakistans,
lagði fram og einnig tillögur þær sem
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sam-
þykkti á skyndifundi um málið. Segjast
íranir ekki vera til viðræðu um neins
konar vopnahlé fyrr en allur írakskur
her sé á brott af landi írans.
írakar hafa hernumið stór svæði af
íran í vesturhluta landsins. Þeim hefur
hins vegar mistekizt að ná nokkurri
mikilvægri borg í olíuhéraðinu
Khuzestan, en að því stefndu þeir
mjög.
Samkvæmt fregnum frá Persaflóa
telja sérfræðingar að ekki sé rélt af
írönum að hætta bardögum nú. Bæði
stæðist það illa af sálfræðilegum á-
stæðum heima fyrir og einnig virtist
svo sem mesti móðurinn sé farinn úr
innrásarliði íraka.
STAÐA
SKATTSTJÖRA
Norðurlandsumdæmis vestra er laus til
umsóknar. Umsækjendur þurfa að full-
nægja skilyrðum 86. gr. laga nr. 40/1978
um tekjuskatt og eignarskatt.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist fjármálaráðu-
neytinu fyrir 20. október nk.,
Fjármálaráðuneytið,
1. október 1980.
SENDILL
Óskum að ráða sendil til snúninga á rit-
stjórn blaðsins í Síðumúla 12 Vinnutími
frá kl. 7 til 11.
iBlAÐIÐ
Margaret Thatcher forsætisráðherra Breta brá sér nýverið til Frakklands og ræddi við ráðamenn þar. Myndin sýnir er
Thatcher kemur frá morgunverðarboði Valery Giscard d’Estaing Frakklandsforseta. Hann er lengst til hægri. Á milli þeirra
er Raymond Barre forsætisráðherra Frakklands.
LAUGAVEGI 74 101 REYKJAVIK SIMI: 17345
Pólland:
MiHjónir
verkamanna
í verkfall
—f jórðungur af tólf milljónum
verkamanna í Póllandi nú félagar
ífrjálsum verkalýðsfélögum
Milljónir pólskra verkamanna stöðv- ekki orðið.
uðu vinnu sína i eina klukkustund um Verkfallið í hádeginu í dagátti að ná
hádegið í dag. Með verkfallinu vilja til allra starfsmanna í almennum mann-
þeir mótmæla því sem þeir telja vera flutningum, leigubifreiðastjóra, náma-
svik stjórnvalda á að uppfylla loforð manna og einnig starfsmanna nokkurra
um launahækkanir fyrir 30. sept. sl. verksmiðja.
Var boðað til þess fyrr í vik- Ráðamenn i Póllandi og einnig blöð
unni af samtökum hinna nýju yfirvalda hafa hvað eftir ánnað fullyrt
frjálsu verkalýðsfélaga. Þá virtist leið- að öll loforð sem gefin hefðu verið
togi þeirra l.ech Walesa vera sann- verkfallsmönnum yrðu uppfyllt. Ásök-
færður að til vinnustöðvunarinnar unum um að málstaður hinna nýju
þyrfti ekki að koma þar sem stjórnvöld samtaka verkamanna hafi verið af-
mundu bæta úr kvörtunarefni verka- fluttur i pólskum fjölmiðlum hefur
manna áður en til þess kæmi. Svo hefur hins vegar lítt verið svarað.
Bang
&
Olufsen
Verölaunatæki
um allan heim
Auövitaö getur Bang &
Olufsen framleitt tæki
eins og allir hinir, en þá
hefur þú ekki þennan
valkost, sem er
Beosystem 2400.
ER ÞAÐ?
Bæöi magnarinn og
plötuspilarinn eru
fjarstýröir.
Verö:
1.448.780.-