Dagblaðið - 03.10.1980, Qupperneq 13

Dagblaðið - 03.10.1980, Qupperneq 13
12 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1980. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 3. OKTÓBER 1980. 21 i íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir 22ja manna lands- liðshópur valinn — sex leikmenn með erlendum liðum gefa kost á sér í HM-leikinn við Sovétríkin Sex leikmenn, sem leika meft erlendum liðum, hafa gefið kosl á sér í HM-leikinn gegn Sovélríkjun- um i Moskvu 15. október næstkomandi. ÞaA eru þeir Ásgeir Sigurvinsson, Standard Liege, Janus Guðlaugsson, Fortuna, Teitur Þórðarson, Oster, Þorsteinn Ólafsson, Gautaborg, Örn Óskarsson, Örgryte, og Arnór Guðjohnsen, Lokeren, en hann lék með liði sínu í Moskvu á miðvikudag. Átti þá hörkustangarskot. Lokeren sigraði. Þrír leikmenn, sem voru í landsliðshópnum i Tyrklandi, eru ekki i 22ja manna hópnum nú Atli Kðvaldsson, Dortmund, Bjarni Sigurðsson, Akra- nesi, og Ragnar Margeirsson, Keflavík, sem tekur þátt i unglingalandsleik. I.andsliðsnefnd hefur valið 21 leikmenn i lands- liðshópinn fyrir HM-leikinn — mun hafa samband við einn ieikmann ÍBV síðar. 16 leikmenn fara til Sovétrikjanna. Auk atvinnumannanna sex eru í hópnum mark- verðirnir Þorsteinn Bjarnason, ÍBK, og Guðmundur Baldursson, Val. Aðrir leikmenn Marteinn Geirsson og Trausti Haraldsson, Fram, Árni Sveinsson og Sigurður Halldórsson, Akranesi, Guðmundur Þor- bjömsson, Albert Guðmundsson og Dýri Guðmundsson, Val, Lárus Guðmundsson og Jó- hannes Bárðarson, Viking, Viðar Halldórsson og Valþór Sigþórsson, FH, Sigurður Grétarsson, Breiðablik og Sigurlás Þorleifsson, ÍBV. Flins og áður segir verður 22. maðurinn valinn síðar eða eflir að Vestmannaeyingar koma heim. Atli Eðvaldsson getur ekki leikið i Moskvu þar sem lið hans leikur við Hamburger SV sama dag. Þá var ekki leitað til Péturs Péturssonar, Feyenoord, en hann gekkst undir uppskurð nýlega. -hsim. Sterkt unglinga- lið gegn Skotum Mánudaginn 6. okt. nk. kl. 16.30 leikur island gegn Skotlandi unglingalandsleik á Laugardaisvelli. Landsleikur þessi er liður í Evrópukeppni unglinga- landsliða 16—18 ára, en úrslitakeppnin fer fram i V.—Þýzkalandi 25. maí til 3. júni 1981 og taka 16 lið þátt i úrslitum mótsins. Lið Skota er væntanlegt til landsins n.k. sunnudag en leikmenn þess eru allir nú þegar atvinnumenn hjá enskuni ogskozkum knatlspyrnufélögum. i Valdir hala verið 16 leikmenn, sem leika n.k. mánudag ogeru þaðeftirtaldir: Markverðir: Hreggviður Ágústsson ÍBV., Halldór Þórarinsson Fram. Aðrir leikmenn: Þorsteinn Þor- steinsson Fram, Loftur Ólafsson, Fylki, Hermann Björnsson Fram, Gísli Hjálmtýsson Fylki, Nikulás Jónsson Þrótti, Sæmundur Valdimarsson ÍBK, Ás- björn Björnsson, fyrirliði KA., Óli Þór Magnússon ÍBK., Kjartan Broddi Bragason Þrótti, Trausli Ómarsson UBK., Ragnar Margeirsson ÍBK., Kári Þorleifsson ÍBV., Samúel Grytvík ÍBV., Bjarni Sveinbjörnsson Þór. Þjálfari: Lárus Loftsson. Dómari í leiknum er Mr. A. W. Grey frá Englandi en linuverðir Arnþór Óskarsson og Óli P. Ólsen. Þess má geta að siðari leikur þessara þjóða fer fram i Glasgow í Skotlandi þann 16. okt. nk. fslenzka unglingalandsliðið hefur síðan 1973, komizt 5 sinnum i úrslit þessarar keppni og siðast 1978 en þá var úrslitakeppnin háð í Póllandi. Síðastliðið ár lék fsland gegn Finnlandi. Unnu Finnar fyrri leikinn hér heima 3-1, en ísland vann síðari leikinn úti 2—0 og vantaði þá aðeins eitt niark til að komast áfram. Landsleikurinn á mánudag er 56. unglingalands- leikur íslands. NMTbíaki hefst í dag Blaklandsliðið leikur í dag sinn fyrsta leik í NM '80, sem fram fer í Finnlandi nú um helgina. Liðið hefur síðustu daga dvalið í æfingabúðum í Linköbing i Svíþjóð og bættust þar þrír ,,út- lendingar” við landsliðshöpinn. Landsliðið skipa eftirtaldir leikmenn (landsleikjafjöldi fyrir aftan): Guðmundur E. Pálsson, Þrótti, 31 Gunnar Árnason, Þrótti, 29 Indriði Arnórsson, ÍS 18 Tómas Jónsson, KFUM, Osló 16 Leifur Harðarson, Þrótti 16 Haraldur G. Hlöðversson, UMFL 14 Jason ívarsson, Þrótti 10 BöðvarH.Sigurðsson, USG 9 Hreinn Þorkelsson, UMFL 1 Kristján Oddsson, Berga VS 0 Sigurður Þráinsson, ÍS 0 Sigurður Guðmundsson, Vikingi 0 Sveinn Hreinsson, Þrótti 0 Þjálfari liðsins er Kínverjinn Ni Fonggou en í far- arstjórn eru Friðbert Traustason formaður lands- liðsnefndar og Kjartan P. Einarsson. -KMU. Bodgan Kowalczyk, Vikingsþjálfari, spenntur og ánægður i leiknum. Fjær sést hinn sovézki þjálfari Vals. DB-mynd Sv. Þ. Ali sigraður á rot- höggi í fyrsta sinn — þjálfari hans lét stöðva leikinn við Larry Holmes eftir tíundu lotu í nótt. Ali þá greinilega sigraður maður en hann var aldrei sleginn niður íkeppninni Heimsmeistarinn í þungavigt í hnefa- leikum, Larry Holmes, varði titil sinn í áttunda sinn í nótt í Las Vegas, þegar hann mætti Muhammad Ali. Þjálfari Ali, Angelo Dundee, neitaði að Ali héldi áfram eftir tíundu lotuna — og hringdómarinn Richard Greene til- kynnti þá þegar lok leiksins, sem átti að standa i 15 lotur. í metabókunum verða úrslitin skráð sem rothögg i tíundu lotu. Ali, sem þrívegis hefur unnið heimsmeistaratitilinn, tapaði þvi leik í fjórða sinn á löngum og litríkum ferli. Honum tókst ekki — 38 ára að aldri — að endurheimta titilinn i fjórða sinn. Mikil læti urðu á leikstaðnum, þegar Dundee ákvað að stöðva leikinn — Ali sat á stól í horni sínu, greinilega sigraður maður. Hann hafði aldrei átt möguleika gegn Holmes — ekki keppt í tvö ár. Hann lék varnarleik frá byrjun, lá i köðlunum. Dansaði þó um hringinn tvisvar-þrisvar sinnum eins og hann gerði með árangri á veldisdögum sínum. Holmes, sem í fjögur ár var æfingafélagi (sparring-partner) Alis og hefur ekki tapað leik sem atvinnu-" maður, var nærri því að slá Ali út í lciknum i nótt. „Balíinu er lokið" sagði Dundee eftir leikinn og greinilegt á honum, að Muhammad Ali hefði keppt í síðasta sinn í hringnum. Holmes — 31 árs — sótti mjög í ieiknum en með góðri vörn tókst Ali að verjast hættulegustu sóknarlotum hans. Aldrei rothögg í leiknum en litlu. munaði að AIi félli i áttundu lotu, | þegar tvö þung krosshögg Holmes^ lentu á höfði hans. Þá „hengdi hanr ' hausinn” greinilega dasaður og Holmes, léttur og ákveðinn eins og í fyrstu lotunni, lét tvö vinstri handar högg fylgja. Þau særðu Ali, sem var orðinn mjög þreyttur. í tíundu lotunni og þeirri síðustu lamdi Holmes AIi miskunnarlaust og var þá um litla vörn að ræða hjá meistaranum mikla. Sjö mikil högg lentu á höfði hans en þegar Ali fór í horn sitt í lok lotunnar bjóst enginn við því að Ali væri að tapa á rothöggi í ■ fyrsta sinn á ferlinum, sem spannar 20 ár og yfir 60 leiki. Hann sat áfram í horninu þegar bjallan hringdi og mikil læti urðu meðal 24.780 áhorfenda i Cæsars-íþróttahöllinni. Ali hafði beðið skipbrot — taktik hans hafði mistekizt. Holmes var óþreyttur, þó mörg hafi högg hans verið i leiknum. Fleiri, sem misheppnuðust en lentu á mótherj- anum, þó nákvæmni hans yrði meiri eftir því, sem á leikinn leið. Reiknað hafði verið með því að Ali myndi reyna skyndisóknir, sem stæðu í 30—40 sekúndur en þær komu aldrei. Barizt í mesta lagi í tíu sekúndur í einu — bakkaði svo í kaðlana. í níundu lotu fékk Ali á sig fleiri högg en nokkru sinni áður i leiknum — einmitt í þeirri lotunni, sem Ali hafði fyrir leikinn sagt að hann myndi sigra Holmes í og vinna heimsmeistaratitilinn i fjórða sinn. Það voru stór orð en ekki munaði þá miklu að Ali sjálfur félli. Sú tíunda var einstefna — síðan búið. Að mali fréttamanna ein sorglegasta stund í sögu hnefaleikanna. Ferli VIKINGSSIGURIÆSILEIK — Víkingur sigraöi Val 16-15 í fyrsta leik liðanna á íslandsmótinu í handknattleik „Þetta var ótrúlega spennandi leikur — maður er enn utan við sig. Ég er mjög ánægður með hvað Vikings- liðið tók sig á eftir heldur slaka byrjun. Sigurinn var sætur og mun virka sem vitamínsprauta á mina menn,” sagði Hannes Guðmundsson, liðsstjóri Vikings, eftir að islandsmeistarar Víkings höfðu hafið vörn sína á meistaratitlinum í handknattleik með eins marks sigri á snjöllum Valsmönn- um í æsispennandi leik i Laugardals- höllinni í gærkvöld. Úrslit 16—15 fyrir Viking eftir að Valur hafði komizt i 4— I í byrjun. Ef leikir íslandsmólsins verða svona spennandi og vel leiknir i vetur þarf ekki að efa að þeir verða vel sóltir af áhorfendum. Þeir voru á annað þúsundið i gær og hvatningar- hróp þeirra og spenna var gífurleg alll (il loka leiksins. Leikur, sem var mikil auglýsing fyrir handknattleikinn — og í lokin stóðu meistarar Víkings uppi sem sigurvegarar. En þar mátti ekki miklu muna. Æðisgenginn darraðardans á fjöltim l.augardalshallarinnar loka- sekúndurnar. Valsmenn með knöttinn en tókst ekki að jafna. Þremur mínútum fyrr hafði þó stefnt i öruggan Víkingssigur. Staðan 16—13 fyrir Viking en Valsmenn voru ekki á þvi að gefast upp. Stefán Hall- dórsson minnkaði muninn í 14—16, síðan komst Bjarni Guðmundsson inn í sendingu. Brunaði upp og skoraði, 15—16, og ein og hálf mínúta til leiks- loka. Það fór greinilega um leikmenn Víkings sent áhangendur þeirra á áhorfendapöllum. Á lokamínútunni skoraði Páll Björgvinsson að þvi er virtist gott mark fyrir Víking. Karl dómari Jóhannsson var á annarri skoðun. Dæmdimarkið afogaukakast á Víking. Valsmenn höfðu möguleika] á að jafna og enn jukust möguleikar þeirra, þegar Karl dómari vék Páli af velli 15 sekúndum síðar. Valsmenn því( einum fleiri síðustu 20 sekúndurnar en; þeim tókst ekki að finna smugu i vörnj Vikings. Leiktiminn rann út án þess aðj þeir skoruðu — sigur VikingSj staðreynd. Þelta var mikið einvigi snjallra liðaj — og það var lika mikið einvígi millil landsliðsmarkvarðanna, Óla Ben. í! Valsmarkinuog Kristjáns Sigurmunds- sonar í Víkingsmarkinu. Þegar á heild- ina er litið fór Kristján með sigur í því einvígi og lagði þar með grunn að Vík- ings^igrinum. Bogdan þjálfari faðmaði hann líka innilega í leikslok. Báðir vörðu mjög vel — Óli beinlínis lokaði imarki sínu framan af. Dalaði nokkuð er á leið. Kristján snjall allan leikinn, varði m.a. þau viti, sem Valur fékk. í allt 12 skot í leiknum — Óli Ben. 10. Valsmenn hófu leikinn og fengu víti á 2. mín. Kristján varði en Bjarni konr Val í 1—0 á fimmtu mín. Páll jafnaði fljótlega en síðan fylgdu þrjú Vals- mörk, 4—1. Óli Ben. varði viti og lokaði alveg marki stnu. Það var ekki fyrr en á 16. mín. að stórskyttur Víkings skoruðu sitt annað mark. Tvö fylgdu fljótt áeftir, 4—4 eftir 20 mín.' Jón Pétur kom Val í 5—4 — en Víking- ur komst i fyrsta skipti yfir með mörk- um Páls og Steinars Birgissonar. Aftur jafnaði Jón Pétur en Þorbergur skor- aði sjöunda mark Víkings beint úr aukakasti eftir að leiktíma lauk. Frá hliðarlinu — knötturinn lenti i stöng Valsmarksins fjær og i mótstætt horn. 7—6 fyrir Viking i hálfleik. Steindór Gunnarsson jafnaði fyrir; Val á 34. mín., en siðan fóru Víkingarj að síga fram eftir að jafnt hafði verið; 7—7 og 8—8. Víkingur komst i 12—8, þegar 14 mín. voru .til leiksloka. Sigur þeirra virtist að nálgast. Valur skoraði en aftur komst Víkingur fjórunr mörkunt yfir, 13—9. Tólf mín. eftir. En þá náðu Valsmenn snjöllum leik- kafla — skoruðu næstu fjögur mörk. 13—13 og spennan í hámarki. Loks tókst Vikingum að skora hjá Val eftir að hafa ekki skorað i sjö minútur. Árni Indriðason viti — og Árni fylgdi því strax á eftir með öðru nrarki af línu.j Síðan skoraði Páll, 16—13 og öll nótti virtist úti fyrir Valsmenn. En það var ekki. Þeir minnkuðu muninn í eitt mark og spennan var gifurleg í lokin eins og áður er lýst. Afburðaskemmti- legur leikur og ef svona heldur áfram á Íslandsmótinu verður handknattleiks- veturinn skemmtilegur fyrir áhorf- endur. Víkingssigurinn hékk á bláþræði í lokin en maður undrast hvað Víkingur hefur verið sterkur í haustleikjunum eftir að hafa misst fjóra landsliðsmennl í sumar. Liðið var ákaflega jafnt í leiknum og alltaf keyrt á sömu sjö leik- mönnunum. Kristján, Árni og Páll þó beztir. Valsliðið er einnig ntjög sterkt og á eftir að verða enn betra. Óli Ben., Bjarni og Steindór, sent gætti Þorbergs mjögvel, beztir. Mörk Víkings skoruðu Páll 5/1, Steinar 3, Guðmundur Guðmundsson, Þorbergur, Ólafur Jónsson og Árni tvö hver. Allir útispijararnir skoruðu þvi. Mörk Vals: Bjarni 4, Jón Pétur, Stefán Halldórsson, Þorbjörn Guðmundsson 3 hver, Steindór 2. Dómarar Karl og Óli Olsen. Valur fékk 2 vítaköst. Kristján varði bæði frá Stefáni Halldórssyni. Víkingur fékk 4 vitaköst, Óli Ben. varði tvö. Frá Hafliða Halldórssyni og Þorbergi en Páll og Árni skoruðu. Engum Vals- manni var vikið af velli en fjórum Víkingum í tvær min. hverjum, Þor- bergi, Guðmundi, Steinari ogPáli. Það hefði getað skipt sköpurn í svo jöfnum leik. -hsím. hnefaleikamannsins glæsilegasta — mesta hnefaleikara sögunnar að flestra mati —var lokið. En náði því marki sínu að vinna sér inn mikla peninga — talið að hann fái um 12 milljónir dollara fyrir keppnina, Holmes aðeins fjórða hluta þeirrar upphæðar. Eitt- hvað á þriðju milljón dollara. Enn vildu allir sjá Ali í keppni — leiknum sjónvarpað beint víða. 1 Ef við rennum aðeins yfir loturnar tíu, þá hóf Holmes strax mikla sókn í I. lotu. Ali hallaði sér i kaðlana og talaði stöðugt við Holmes, Ætlaði greinilega að sigra hann með munninum — brjóta niður taugar þessa fyrrum æfinga- félaga síns. Það heppnaðist ekki. Ali varðist. Holmes hitti illa. Þó lota Holmes..Af dómurum var Holmes tal- inn sigra í átta Iotum. Þeir töldu þriðju lotuna jafna — Ali hefði unnið á stigum i þeirri sjöundu. í 2. lotu byrjaði Holmes með fimm léttum vinstri, reyndi síðan þrjú þung högg, sem misstu marks — um.miðja lotuna lét Ali hendurnar falla eins og hann byði Holmes upp á að reyna að slá hann í höfuðið. Holmes hitti Ali ekki i tiu höggum t röð. í lok lotunnar tók Holmes upp aðferð Alis — ræddi við' hann í lokin. í 3. lotu dansaði Ali um hringinn og kom fjórum höggum i röð á Holmes, sem svaraði með ógn- andi höggi, sem rétt missti kjálka Alis. Jöfn lota — en í næstu þremur hafði Holmes umtalsverða yfirburði. Ali mest í köðlunum — og varðist nokkuð vel. í þeirri 7. fór Ali allt í einu að dansa og áðdáendur hans urðu bjart- sýnir. Mikið vinstri handar högg Alis lenti í maga Holmes og Ali skoraði einnig stig með léttari höggum. Síðan fór hann í kaðlana á ný en þetta var lota Alis. í þeirri 8. lenti strax mikið högg Holmes á höfði Alis — og fleiri fylgdu á eftir. Þau virtust þó ekki meiða Ali en Holmes hafði mikla yfirburði. 1 þeirri 9. lentu þrjú hægri handar högg Holmes á Ali, sem riðaði við og flúði í hornið. Ali leið illa og svo virtist sem Holmes ætlaði að ganga frá honum — Ali reyndi hvað hann gat en allt kom fyrir ekki. Sama í þeirri tiundu — síðan leikslok. -hsím. Frá leik Demons og Pojaque. Atli Atlason er þriðji frá hægri I röndóttum búningi. íslenzki neminn stjama skólaliðsins í Santa Fe —Atli Atlason skoraði fjögur mSrk í fy rsta knattspyrnuleik sínum með menntaskólaliðinu í Santa Fe í Nýja-Mexíkó „Nýi pilturinn i borginni er Atli Atlason, sem kom til Sante Fe frá íslandi. Hann hefur leikið knattspyrnu frá þvi hann var smástrákur. Það er aöalíþrótt hans og hann er góöur leik- maöur. Hávaxinn og ræður ríkjum á miöju vallarins, sem er þýöingarmikiö fyrir okkur,” segir Martin Jacobson, þjálfari Santa Fe skólaliösins í samtali við dagblaðið New Mexican i Santa Fe fyrst í september. Það er greinilegt að Jacobson er ánægður með það, sem hann hefur séð til Atla bætir blaöið viö. The Dcmons, lið Sante Fe, vann stórsigra í tveimur fyrstu leikjum sinum i skólakeppninni. Atli Atlason skoraöi fimm mörk í leikjunum. Atli Atlason er að verða sautján ára, sonur blaðahjónanna okkar ágætu hér á DB, Önnu Bjarnason og Atla Steinars- sonar. Hann hélt til Bandaríkjanna i júní í sumar, og dvelur hjá systur sinni, sem þar er búsett. Er í öðrum bekk menntaskólans i Santa Fe en nemendur þar eru fjögur þúsund. Mikill áhugi á knattspyrnunni þar og það þarf því hæfni til að komast í aðallið skólans. Atli er yngsti maður liðsins — af sautján leikmönnum. Hann lék með yngri flokkum Fram hér heima — flutti síðan i Mosfellsveit með foreldrum sínum. Gerðist þá félagi í Aftureldingu og hefur leikið þar við góðan orðslír undanfarin sumur. Meiðsli komu i veg Atli Atlason. fyrir að hann væri valinn í drengjalandslið íslands, 14—16ára. The Demons leikur í I. deild skóla- liðann.i í Nýja vlexikó — skipað mun yngri lcikmönnuin en oftast áður, þar sem margir þeirra, sem áður léku i lið- inu, luku námi í Sante Fe mennta- skólanum i vor og sumar. Það kom þó ekki að sök í fyrsta leik liðsins í haust i I. deildinni. Demons sigraði Pojoaque Elks 18—0. Leikið var á nýjum leikvelli í Santa Fe — Ivan Head Stadium. Atli Atlason sló heldur betur í gegn í sínum fyrsta leik með Demons. Var markhæstur með fjögur mörk og átti auk þess eina sendingu, sem gaf mark. Hann var miðherji liðsins. Þrir leikmenn skoruðu þrjú mörk hver. Næsti leikur liðsins var við Santa Fe Preparatory skólann og var nrikill áhugi í borginni á þessari innbyrðis viðureign skóla borgarinnar. En það var sama sagan og í fyrsta leiknum — Demons vann yfirburðasigur 9—1. Atli skoraði eitt af mörkunum niu og átti tvær sendingar, sem gáfu mörk. Annar ungur piltur, nýkominn úr drengjaliði skólans, Eric Malström, var markhæstur með þrjú mörk. Ekki höfum við fréttir af fleiri leikjum Demons en greinilegt er af blaðaúr- klippum, að Martin Jacobson, þjálfari liðsins, er mjög ánægður með nemann frá íslandi. -hsím. KR skoraði aðeins 5 mörk stðasta stundarfjórðunginn —og Þróttur gekk á lagið og sigraði örugglega 27-19 .. ..... iiini iiiaaB—................................ im iiiMiffli. ir l. Knötturínn á leið i stðng Valsmarksins og inn eftir aukakast Þorbergs Aðalsteins-sonar eftir að leiktíma lauk í fyrri hÓlflpiL brumucLnt Annað eins hrun og hjá KR-ingum í leik liðsins á móti Þrótti i gærkvöldi hefur ekki sézt lengi. Um miðjan síðari hálfleik var staöan 17—15 fyrir Þrótt og allt stefndi í æsispennandi loka- kafia. En þegar hér var komiö sögu brotnuöu KR-ingar alveg, og siöustu 15 minútur leiksins skoruöu þeir aöeins fimm mörk, meðan Þróttarar gerðu 10 og lokatölur urðu 27—19 fyrir Þrótt, eftir að KR hafði leitt í hálfleik 10—9. Siðasta mark leiksins var einkar glæsilegt, en það kom þegar 10 sekúndur voru eftir af leiknum. Ólafur H. Jónsson henti þá boltanum inn í vinstra vítateigshorn KR og þar kom Páll Ólafsson aðvífandi, greip bolt- ann á lofti og innsiglaði sigur Þróttar. Þróttarar voru lengi að komast á blað í upphafi leiksins, þeir skoruðu sitt fyrsta mark á 7. mínútu, en þá höfðu KR-ingar þegar gert tvö, staðan 2—1. Vesturbæjarliðið komst síðan í 4—1, en Þróttur náði að jafna á 19. mínútu, 6—6. En aftur dó í sundur með liðunum, KR-ingar voru sterkari í fyrri hálfleik og þótt Þróttur kæmist yfir 9—8, náði KR að skora tvö síðustu mörkin í fyrri hálfleik. Markvarzlan í fyrri hálfleik var mjög góð, markverðir KR þeir Pétur Hjálmarsson og Gísli Felix Bjarnason vörðu sitt vítið hvor, og kollegi þeirra í marki Þróttar, Sig- urður Ragnarsson varði eitt víti frá Birni Péturssyni. Eftir fjögurra mínútna leik í siðari hálfleik höfðu KR-ingar náð þriggja marka forystu, 13—10, en þeir Sigurður Sveinsson og Páll Ólafsson jöfnuðu metin, og gott betur, því Páll kom Þrótti yfir, 14—13. Friðrik Þor- björnsson jafnaði fyrir KR, 14—14 og 18mínútureftir. Næstu mínútur reyndu KR-ingar að taka Sigurð Sveinsson úr umferð og gafst það illa, því Þróttur gerði næstu þrjú mörk, þar af Ölafur H. Jónsson tvö af línunni, bæði eftir línusendingar Einars Sveinssonar. Þor- varður Guðmundsson gerði næsta mark leiksins fyrir KR, 17—15 fyrir Þrótt og þessi tveggja marka munur hélzt fram á 20. mínútu, er Sigurður Sveinsson óð í gegnum vörn KR og skoraði rúeð hægri, 19—16 Þrótti i vil. Rétt á eftir var Magnús Geirsson rekinn út af í tvær mínútur og Þróttar- ar léku því einum færri. KR-ingar brugðu þá á það ráð að taka bæði Sigurð og Pál Ólafsson úr umferð með þeim árangri að Þróttur bætti enn við tveimur mörkum án svars frá KR. KR- ingar höfðu að vísu fengið ágætt tæki- færi til að minnka muninn á 22. mínútu, er liðið fékk víti. En Sigurður markvörður gerði sér lítið fyrir og varði sitt annað vítakast í leiknum, og að auki annað skot í sömu sókn. Á 24. mínútu kom Magnús Margeirsson aftur inn á og hann byrjaði á því að skora mark og breyta stöðunni í 23— 16. Það er ekki fyrr en á 26. mínútu sem Konráð Jónsson nær að laga stöð- una fyrir KR og þá voru liðnar átta mínútur frá því KR-ingar skoruðu síðast. Síðustu mínútur leiksins juku Þróttarar enn forskot sitt og er upp var staðið munaði átta mörkum, 27—19. Lið Þróttar lék þennan leik mjög vel, vörnin var þokkaleg, en mark- vörður liðsins, Sigurður Ragnars- son, átti stjörnuleik og varði mark sitt með kjafti og klóm. Ólafur H. Jónss., þjálfari liðsins, átti góðan leik í vörninni, batt hana vel saman og þeir Sigurður Sveinsson og Páll Ólafsson voru mjög ógnandi. Lið KR var mjög jafnt, flestir leik- manna liðsins léku langt undir getu, en skástir voru Alfreð Gíslason og Konráð Jónsson. Pétur varði vel í fyrri hálfleik, en í síðari hálfleik var vörn KR sem gatasigti og markvarzlan versnaði því mjög. Skipti litlu máli þótt Hilmar Björnsson þjálfari setti Pétur aftur í markið í stað Gísla Felixs, hann varði lítið meira. Mörk KR: Alfreð Gíslason og Konráð Jónsson 5 hvor, Haukur Geir- mundsson, Björn Pétursson og Ragnar Hermannsson 2 hver og Jóhannes Stefánsson, Þorvarður Guðmundsson og Friðrik Þorbjörnsson 1 hver. Mörk Þróttar: Páll Ólafsson 9, Sigurður Sveinsson 9/2, .lón Viðar Jónsson 4/1, Ólafur H. Jónsson og Magnús Margeirsson 2 hvor og Lárus Lárusson 1. -SA.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.