Dagblaðið - 03.10.1980, Qupperneq 24

Dagblaðið - 03.10.1980, Qupperneq 24
Prentaradeilan: SAMKOMULAG í NOTT UM VERULEG ATRIDI - annar sáttaf undur kl. 18 ídag - skriður ætti að komast á viðræður ASÍ og VSÍ „Samkomulag náðist í nótt um þó nokkurn hluta atvinnu- og öryggis- mála í deilu bókagerðarmanna og Félags íslenzka prentiðnaðarins,” sagði Guðlaugur Þorvaldsson ríkis- sáttasemjari í morgun. „Það var lengi verið að og sáttafundurinn stóð fram á nótt og það er óhætt að segja að málinu hafi miðað töluvert áfram.” Nýr sáttafundur með deiluaðilum hefur siðan verið boðaður kl. 18 i dag. Ríkissáttasemjari sagði að bókuð hefðu verið þau atriði, sem samkomulag hefur náðst um, en málið væri þó ekki frágengið. Hreyf- ing væri þó á málunum og yrði að sjá til hvað gerðist í kvöld. Guðlaugur sagði að prentaradeilan hefði tafið samningaviðræður viðræðunefnda Alþýðusambandsins og Vinnuveilendasambandsins ■ i nokkra daga. Nokkur sérmál væru óleyst og hefði deila prentara og vinnuveitenda þeirra verið aðal- skerið. Vinnuveitendasambandið hefur neitað að fjalla um kauplið samninganna nema allar sérkröfur séu leystar, þ.ám. krafa bóka- gerðarmanna um nýja prenttækni. Ríkissáttasemjari sagði að viðræðunefndir ASÍ og VSÍ kæmu saman til fundar i dag og vonaðist hann til þess að skriður kæmist nú á málin vegna þess hve vel hefði miðað í deilu bókagerðarmanna og Félags islenzka prentiðnaðarins. -JH. Mjög hefur dregið úr loðnuveiði nú I vikunni en um slðustu helgi var mjög góð veiði á miðunum. Sveinn Þormóðsson tók myndina I Reykjavlkurhöfn I morgun þegar verið var að undirbúa löndun úr Helgu II sem kom með 540 tonn af loðnu til hafnar. Ifyrradag landaði Eldborgin 1672 tonnum af loðnu I Reykjavlk, stœrstafarmisem komið hefur upp úr Islenzku fiskiskipi. Þetta var önnur löndun Eldborgar á loðnuvertlðinni, Ifyrra skiptið skilaði skipið á land 800 tonnum afloðnu. -ARH. STÖÐUGAR HÆKKANIR A OLIUVERÐI Gasolíuverð á Rotterdammarkaði var komið upp í 318.50 dollara tonnið hinn 30. september. Hinn 22. september var gasolíutonnið í Rotter- dam á 277.50 dollara. Þrem dögum síðar var það komið upp í 313 dollara, eins og DB skýrði nýlega frá. Hafði þá gasolían hækkað um 35.5 dollara á aðeins þrem dögum, eða á sarna tima sem striðsátökin milli irak og íran hörðnuðu hvað mest. Því var spáð að verðið kynni að fara upp í 330—340 dollara tonnið um eða eftir mánaðamótin siðustu. Verðhækkunin hefur því i raun orðið nokkru hægari en sú spá gerði ráð fyrir. Þrátt fyrir þessar gifurlegu hækk- anir á Rotterdammarkaðnum, sem verðið á olíunni frá Sovétríkjunum miðast við, var gasolíuverðið hinn 30. september líklega ekki orðið jafn- hátt verðinu sem við sömdum um við brezka olíufyrirtækið BNOC. -BS. Smygiað áf engi í Skeiðsf ossi Follverðir úr Reykjavik og frá Sauðárkróki fundu i gær við leit í Skeiðsfossi 383 flöskur af smygluðu áfengi. Skipið lá við Hofsóshöfn er leitin fór fram og var það að koma frá ýmsum Miðjarðarhafshöfnunt. Malsveinn og vélstjóri hafa viðurkennt að eiga áfengið sem falið var í loftstokk í vélarrúmi. Áfengið var af ýmsum tegundum, romm, viskí, vodka og tölu- vert af splritus. Skipið mun nú vera væntanlegt lil Hríseyjar og hefur leit verið hætt. Eins og fram hefur komið fundust i síðustu viku tæplega ellefu hundruð flöskur i Goðafossi, sem sex menn viðurkenndu að eiga, Smyglvarningur- inn sem nú hefur fundizt á tveintur vikum mun vera um tutlugu milljón krónavirði, *ELA, ASÍ-samningarnir: „EKKISUTNAД —þótt hægt gangi — sáttaf undur í dag „Það hefur ekki slitnað upp úr samningum Alþýðusambandsins og atvinnurekenda, en þetta gengur frekar hægt,” sagði Ásmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambandsins, í viðtali við DB i morgun, „Sáttafundur verður í dag og ég vona að þetta fari eitthvað að losast,” sagði Ásmundur, Vinnuveit- endur neita að fara I umræður um kaup og visitölu, fyrr en prentaradeil- an sé leyst. ASÍ-menn telja hins vegar ekkert til fyrirstöðu að byrja þær viðræður. Sáttafundur var ekki i gær. ASÍ- menn ræddu í staðinn við fulltrúa ríkisstjórnarinnar um félagsmála- pakkann. Þar eru ýmfs atriði iangt komin, eins og DB hefur skýrt frá, en önnur óljósari. Embættismenn á vegum ríkisstjórnarinnar eru að athuga skattbyrði lágtekjufólks. ASÍ- menn vona að ríkisstjórnin komi til móts við þá bæði í skattamálum og lifeyrismálum, þótt lítið hafi enn miðað á því sviði. Aðalsamninganefnd ASÍ, 43 manna nefndin, hefur verið boðuð jj| fundará þriðjudag. -HH. fijálst, áháð dagblað FÖSTUDAGUR 3. OKT. 1980. Keðjubréfin upprunnin íNoregi — Rannsóknarlögregian kominíspilid Rannsóknarlögregla ríkisins rann- sakar nú umfang keðjubréfafaraldurs- ins, sem gengið hefur yfir að undan- förnu. Verður kannað með hvaða hætti bréfin berast á milli manna, en eins og skýrt var frá í DB í gær fullyrða upphafsmenn keðjubréfanna — sem skv. upplýsingum DB eru íslenzkir námsmenn í Noregi — að á 4—7 vikum geti menn orðið allt að 20.4 milljónum ríkari. Ekki hefur peningakeðja þessi vérið kærð en rannsóknarlögreglunni hafa borizt upplýsingar um hana úr ýmsum áttum. Er því hætt við að hver fari nú að verða siðastur til að græða tuttugu milljónirnar. -ÓV. Drengimir sem auglýst vareftirígær: Seldu gjaldeyri í miðbænum — höfðu brotizt inn itvöhús Drengirnir tveir 13 og 15 ára sem augiýst var eftir í gær fundust i Lækjargötu um þrjúleytið í gærdag. Drengirnir höfðu brotizt inn í tvö mannlaus hús og höfðu haft með sér eitthvert þýfi. Þar á meðal var gjald- eyrir sem þeir reyndu að selja i miðbænum í gær. Annar drengurinn hefur áður komið við sögu hjá lögregl- unni. -KI.A. Féll niður af vinnupalli Sá atburður gerðist um tíuleytið í gærmorgun að fertugur maður sem var við vinnu á vinnupalli við nýbyggingu á Smiðjuveginum féll niður af pallinum. Fallið mun vera um fjórir metrar. Maðurinn var fluttur á gjörgæzludeild Borgarspítalans en ekki fékkst uppgefið í morgun um líðan hans. -ELA. Borgarbíóið seldi óstimplaða miða Borgarbíóið í Kópavogi seldi aðgöngumiða, sem ekki voru stimpláðir af bæjárfógétanum vegna innheimtu menningarsjóðsgjalds, STEF-gjalds og söluskatts. Var þetta kært til Rannsóknarlögreglu ríkisins. Við yfirheyrslu játuðu eigendur bíósins að hafa sett slíka aðgöngumiða i sölu. Komst bíóið þannig undan því að skila ofangreindum gjöldum. Er nú rannsakað hversu umfangs- mikið þetta atferli er, og hefur Rann- sóknarlögregla ríkisins málið með höndum. -BS. LURKUPAGAR: 3. OKTÓBER 12076 Sjónvarpsspil. Vinningshafar hringi í síma 33622. i.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.